Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samdráttur hjá Wal-Mart Bandaríska verslanakeðjan Wal-Mart greindi frá því í dag að sala hefði dregist saman um 0,1 prósent í nóvember. Þetta er í fyrsta sinn sem samdráttar er vart í áratug hjá verslanakeðjunni. Verslanakeðjan segir að afslættir sem Wal-Mart bauð hafi ekki höfðað til viðskiptavina. 30.11.2006 17:05
Bakkavör Group hækkar hlutafé Hlutafé Bakkavarar Group hefur verið aukið um 23.979.203 hluti í samræmi við 3. gr. samþykkta félagsins, til að efna skuldbindingar félagsins samkvæmt breytanlegum skuldabréfum í eigu Kaupþings banka hf. 30.11.2006 15:05
Þjóðverjar vilja hækka eftirlaunaaldur Ríkisstjórn Þýskalands er sögð hafa á áætlun sinni að hækka eftirlaunaaldur úr 65 árum í 67. Með þessu er horft til þess að draga úr kostnaði úr lífeyrisgreiðslum ríkisins. Málið, sem hefur mætt harðri andstöðu verkalýðsfélaga, hefur enn ekki verið lagt fyrir þýska þingið. 30.11.2006 14:50
Hráolíuverð yfir 30 dölum Heimsmarkaðsverð á hráolíu fór í 63 dali á helstu fjármálamörkuðum í dag í kjölfar. Helsta ástæðan eru niðurstöður vikulegrar skýrslu bandaríska orkumálaráðuneytsins sem kom út í gær en hún sýndi að eldsneytisbirgðir landsins hefðu minnkað á milli vikna. Verð á hráolíu hefur ekki verið hærra í tvö mánuði. 30.11.2006 14:43
Fitch segir lánshæfishorfur Straums stöðugar Matsfyrirtækið Fitch Ratings staðfesti í dag lánshæfiseinkunnir Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka hf. Matsfyrirtækið gaf bankanum langtímaeinkunnina BBB-, skammtímaeinkunn F3, óháða einkunn C/D og stuðningseinkunnina 3. Horfur lánshæfiseinkunnanna eru stöðugar, að mati Fitch. 30.11.2006 14:33
Hagvöxtur á Indlandi umfram væntingar Hagvöxtur á Indlandi mældist 9,2 prósent á þriðja fjórðungi ársins, samkvæmt útreikningum hagstofu Indlands. Þetta er langt umfram væntingar greiningaraðila. 30.11.2006 13:42
Auðkýfingur ranglega orðaður við yfirtöku Gengi hlutabréfa í bandaríska dagblaðinu New York Times hækkuðu um 7,4 prósent á markaði í Bandaríkjunum í gær í kjölfar orðróms um að bandaríski auðkýfingurinn Maurice Greenberg hyggðist leggja fram yfirtökutilboð í dagblaðið. 30.11.2006 10:42
Spá hærri verðbólgu á evrusvæðinu Reiknað er með að verðbólga verði 1,8 prósent á evrusvæðinu í nóvember, samkvæmt bráðabirgðaútreikningum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, sem birt var í dag. Þetta er 0,2 prósenta hækkun frá mánuðinum á undan. 30.11.2006 10:22
Kosið um samruna Euronext og NYSE Stjórn samevrópska hlutabréfamarkaðarins Euronext segist fullviss um að hluthafar markaðarins muni samþykkja samruna við kauphöllina í New York í Bandaríkjunum (NYSE). Kosið verður um samrunann á sérstökum hluthafafundi í næsta mánuði. 30.11.2006 09:55
Windows Vista komið út Sala hófst í dag um allan heim á Windows Vista, nýjasta stýrikerfinu frá Microsoft. Um fyrirtækjaútgáfu stýrikerfisins er að ræða en útgáfan fyrir einstaklinga og heimili kemur út í lok janúar á næsta ári. Stýrikerfið hefur verið í þróun í fimm ár eða síðan Windows XP kom á markað. 30.11.2006 09:24
Eigum ekki að bera okkur saman við Nýsjálendinga Landbúnaður á Nýja-Sjálandi og Íslandi er svo ólíkur að ekki er hægt að bera löndin saman. Þar var ríkisstuðningur afnuminn fyrir um aldarfjórðungi. Valdimar Einarsson, sérfræðingur frá Nýja-Sjálandi, gagnrýnir framseljanlegan ríkisstuðning. 30.11.2006 07:15
Ekki minni halli í tólf mánuði Halli á vöruskiptum við útlönd hefur ekki mælst minni en nú síðastliðna tólf mánuði. Sjö milljarða halli var á vöruskiptum í október miðað við 6,4 milljarða í október 2005 á föstu gengi. Nýjar tölur sem Hagstofan birti í gær sýna að í október voru fluttar út vörur fyrir 20 milljarða króna og inn fyrir 27 milljarða. 30.11.2006 07:00
Eigendur Magasin kaupa í tískuhúsi M-Invest, félag í eigu Baugs og Birgis Þórs Bieltvedt, hefur eignast helmingshlut í Day Birger et Mikkelsen, einu frægasta tískuhúsi Danmerkur. 30.11.2006 06:45
Krónan kom mikið við sögu Hagnaður HB Granda var rúmur 1,5 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi og jókst um 160 prósent frá sama tímabili í fyrra. Uppgjörið er gott að mati Greiningar Glitnis. 30.11.2006 06:45
Fons nærri yfirtöku Fons, eignarhaldsfélag Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, á orðið 29,2 prósent í norrænu ferðaskrifstofukeðjunni Ticket og stendur því nærri þrjátíu prósenta yfirtökumörkum sem gilda fyrir skráð félög á sænska markaðnum. 30.11.2006 06:30
Nasdaq tryggir sig fyrir yfirtöku á LSE Stjórn bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq segist hafa tryggt sér tæplega 5,1 milljarð bandaríkjadala eða ríflega 358 milljarða íslenskra króna til að gera tilboð í öll hlutabréf í kauphöll Lundúna í Bretlandi (LSE). 30.11.2006 06:15
Peningaskápurinn ... Ekki er víst að fullur einhugur sé í ríkisstjórn um fyrirhugaðar tollalækkanir og afnám innflutningshafta í mars næstkomandi ef marka má orð Guðna Ágústssonar landbúnaðarráðherra þegar hann kvaddi sér hljóðs á morgunverðarfundi Bændasamtakanna um framtíð íslensks landbúnaðar í gær. „Við skulum halda þessari umræðu áfram. 30.11.2006 06:00
38.000 skrifa undir starfslokasamning hjá Ford Bandaríski bílaframleiðandinn Ford greindi frá því í dag að um 38.000 starfsmenn hafi skrifað undir starfslokasamninga. Þetta jafngildir um helmingi starfsmanna hjá Ford í Bandaríkjunum. 29.11.2006 15:48
Bogi hættir hjá Icelandic Group Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála hjá Icelandic Group hf., hefur ákveðið að láta af störfum. Starfslok hans verða um miðjan desember.Bogi hefur gegnt starfinu frá því í júní 2004. 29.11.2006 13:58
Erfitt að stjórna verðbólgu í litlum hagkerfum Það er erfiðara er að hafa stjórn á verðbólgu í litlum hagkerfum líkt og á Íslandi en í stórum hagkerfum. Þetta segir í nýrri vinnuskjali sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn birti í dag. 29.11.2006 11:37
Ryanair með fjórðungshlut í Aer Lingus Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur aukið við hlut sinn í írska innanlandsflugfélaginu Aer Lingus og á nú fjórðung í félaginu. Dermont Mannion, forstjóri Aer Lingus, staðfesti þetta í gær. Ryanair vinnur að óvinveittri yfirtöku á flugfélaginu. 29.11.2006 11:08
HB Grandi tapaði 1 milljarði króna Útgerðarfélagið HB Grandi tapaði rúmum einum milljarði króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Hagnaður félagsins á þriðja fjórðunig ársins nam hins vegar rúmum 1,5 milljörðum króna samanborið við 585 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra. 29.11.2006 10:25
Fáir nota netvarpið Niðurstöður nýlegrar könnunar sem bandaríska stofnunin Pew Internet and American Life Project gerði í Bandaríkjunum fyrir nokkru, benda til að þeim fjölgi sem hafa nýtt sér netvarp (e. podcast), en það er hljóð-, mynd- eða myndbandsefni sem hægt er að hala niður af netinu og hlusta og horfa á í spilurum á borð við iPod, sem geta ráðið við stafrænt efni á samþjöppuðu formi. 29.11.2006 09:00
Danir vilja efsta skattþrepið í burt Rannsóknastofnun í Danmörku hefur lagt til í nýrri skýrslu að efsta tekjuskattþrep landsins verði aflagt. Verði það gert megi gera ráð fyrir auknum tekjum í danska ríkiskassann. 29.11.2006 09:00
Botninum náð á fasteignamarkaði Vísbendingar eru um að fasteignamarkaður á höfuðborgarsvæðinu sé að taka við sér á ný með aukinni veltu. 29.11.2006 08:15
Fitch staðfestir lánshæfi LÍ Lánshæfimatsfyrirtækið Fitch hefur í kjölfar árvissrar skoðunar staðfest óbreyttar lánshæfimatseinkunnir Landsbankans. 29.11.2006 08:00
Finna fyrir erlendum áhuga á Icelandair Útboði á hlutafé í eignarhaldsfélagi Icelandair lýkur á mánudag. Starfsmönnum, almenningi og fagfjárfestum býðst að kaupa fyrir tæpa fimm milljarða króna. 29.11.2006 07:30
Exista undir útboðsgengi Gengi hlutabréfa í Existu hefur verið að lækka að undanförnu. Nú er svo komið að gengið er komið undir 21,5 sem var útboðsgengi við sölu á hlutafé í eigu Kaupþings. Hluturinn stóð í 21 krónu í gær. Helsta sýnilega ástæðan fyrir þessari lækkun er lækkandi virði eignarhlutar Existu í Kaupþingi. 29.11.2006 07:15
Aðhalds enn þörf að mati OECD Í nýútkominni hagspá Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) fyrir aðildarríkin er gert ráð fyrir að efnahagslegt ójafnvægi verði áfram umtalsvert á Íslandi þrátt fyrir að draga muni saman í hagkerfinu á næstu misserum. 29.11.2006 07:00
Galli í skrá Firefox Galli hefur fundist í Firefox-vafranum frá Mozilla sem gerir það að verkum að tölvuþrjótar geta rænt upplýsingum frá þeim netverjum sem nota vafrann. Sama galla er að finna í Internet Explorer frá Microsoft. 29.11.2006 07:00
Minni vöxtur í jólaverslun í ár Gert er ráð fyrir minni vexti í smásöluverslun um jólin en í fyrra og árið á undan. Rannsóknasetur verslunarinnar við háskólann á Bifröst segir um metár að ræða bæði árin á undan en líkur séu á að metið verði ekki slegið nú um jólin. Vöxturinn er sambærilegur og í Svíþjóð. 29.11.2006 07:00
Framkvæmdastjórinn er hættur að fara heim klukkan fjögur Á nokkrum mánuðum hafa stjórnendur Fons umbylt rekstri sænsku ferðaskrifstofukeðjunnar Ticket og skilaði félagið nýverið mesta hagnaði í sextán ára sögu þess. Stjórnendur félagsins ætla sér að búa til stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í Skandinavíu með 29.11.2006 07:00
Hannes Smárason kaupir í Sparisjóði Hafnarfjarðar Fjárfestingarfélagið Prímus, sem er í eigu Hannesar Smárasonar, forstjóra FL Group, er komið í hóp stofnfjáreigenda í SPH. Hann mun hafa keypt stofnfjárhlutina af SPV sem seldi bréfin vegna fyrirhugaðs samruna við SPH. Við sameiningu sparisjóðanna hefði SPV orðið að færa bréfin á nafnvirði sem hefði rýrt eignarhlutinn allverulega, enda mjög hátt yfirverð á stofnfjárhlutum í SPH. 29.11.2006 06:45
Ná þarf tökum á launamálum Framkvæmdastjóri SA segir með ólíkindum hversu illa gangi að ná stjórn á fjármálum Landspítalans. 29.11.2006 06:45
Átján þúsund í hagnaðarlausa geiranum Vísbendingar eru um að hér nemi velta svonefnds félagshagkerfis um 47 prósentum af landsframleiðslu. Frá þessu er greint í nýju riti, Félagshagkerfið á Íslandi, eftir dr. Ívar Jónsson, prófessor við Háskólann á Bifröst. 29.11.2006 06:45
Rafræn skráning innherja Rafræn skránin og umsýsla innherjalista fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöll Íslands tekur gildi næstkomandi mánudag. 29.11.2006 06:45
Norska ríkið selur í Storebrand Folketrygdfondet, sjóður í eigu norska ríksins, er ekki lengur stærsti hluthafinn í fjármálafyrirtækinu Storebrand. 29.11.2006 06:45
Minnkandi væntingar Brúnin hefur þyngst á neytendum undanfarnar vikur ef marka má væntingavísitölu Gallup fyrir nóvember. Væntingavísitala Gallup mælist nú 118,6 stig og lækkar úr 136,2 stigum frá því í október. Um 44 prósent neytenda telja efnahagsástandið gott en 17 prósent þeirra telja það hins vegar slæmt. 29.11.2006 06:45
Google sagt brjóta á blaðaútgefendum Búist er við að úrskurður liggi fyrir snemma á næsta ári í máli Copiepresse, samtaka frönskumælandi blaðaútgefenda í Belgíu, sem þeir höfðuðu gegn bandaríska netfyrirtækinu Google. 29.11.2006 06:30
Gaman að teika Þessi pistill er ekki við hæfi barna og gjalda ber varhug við þeim glæfrum sem í honum er lýst. Ég ætla að gera játningu. 29.11.2006 06:30
Hafa lokið þéttingu nets Vodafone hefur lokið við að fjölga GSM-sendum og þétta kerfi sitt víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu. Aðgerðina segir fyrirtækið til komna vegna síaukinnar notkunar í símkerfi fyrirtækisins. 29.11.2006 06:30
Styrmir í stjórn SPH/SPV Styrmir Þór Bragason, framkvæmdastjóri MP Fjárfestingarbanka, tekur sæti í nýrri stjórn sameinaðs sparisjóðs SPV og SPH samþykki stofnfjáreigendur samrunatillögur stjórna sparisjóðanna. Önnur framboð, sem hafa borist, eru frá Jóni Þorsteini Jónssyni, núverandi stjórnarformanni SPV, Agli Ágústssyni, framkvæmdastjóra Íslensk-Ameríska, Magnúsi Ármann og Matthíasi Páli Imsland. 29.11.2006 06:30
Íslendingarnir hleyptu miklu lífi í félagið Lennart Käll tók við forstjórastarfinu hjá Ticket fyrir þremur og hálfu ári, en hann starfaði áður á fjármálamarkaði. Breytingar þær sem urðu á eignarhaldi og stjórnun félagsins með innkomu Fons styrktu fyrirtækið og hleyptu miklu lífi inn í æðstu stjórn fyrirtæksins. 29.11.2006 06:30
Ticket horfir til Danmerkur Stjórnendur Ticket, sænsku ferðaskrifstofukeðjunnar, sem er að fjórðungshluta í eigu Fons, stefna á 45-50 milljarða veltu á þessu ári eftir að félagið yfirtók viðskiptaferðaskrifstofuna MZ Travel Group á dögunum. 29.11.2006 06:15
HugurAx kaupir Mekkanis HugurAx hefur keypt Mekkanis hugbúnaðarstofu. Eigendur fyrirtækjanna skrifuðu undir samning þess efnis fyrir stuttu og verða félögin sameinuð í framhaldinu. 29.11.2006 06:00