Fleiri fréttir Hnupl kostar níu þúsund á mann Hver landsmaður greiðir um níu þúsund krónur á ári vegna þjófnaða og mistaka. Samkvæmt frétt frá Rannsóknarsetri verslunarinnar fara árlega fara 2,8 milljarðar króna í vaskinn hér á landi vegna rýrnunar af þessum sökum. Er þá miðað við meðaltalstölur frá 24 Evrópulöndum. Ætla má að stærstan hluta þessarar rýrnunar megi rekja til þjófnaða, eða um 2,4 milljarða, og restina vegna mistaka. Í 48,8 prósenta tilvika eru það viðskiptavinir sem stela en í næst stærstum hluta tilvika eru það starfsmenn. 7.10.2006 06:30 Glitnir lýkur við kaup á NPØ Kaupum norska bankans BNbank, sem er í eigu Glitnis, á 45 prósenta hlut í Norsk Privatøkonomi eftir að norska fjármálaeftirlitið lagði blessun sína yfir kaupin. NPØ er fjármálaþjónustufyrirtæki sem starfar um allan Noreg. 7.10.2006 06:15 Prófanir á hjartalyfi tefjast Morgan Stanley mælir með langtímafjárfestingu í DeCode 7.10.2006 06:00 Kerkorian hættur við kaup í GM Bandaríski auðkýfingurinn Kirk Kerkorian, sem er einn stærsti hluthafinn í bandaríska bílaframleiðandanum General Motors (GM), er hættur við að auka við hlut sinn í fyrirtækinu eins og til stóð. Ástæðan er sögð óánægja hans með að samstarfsviðræðum GM við Nissan og Renault var slitið fyrr í vikunni. 6.10.2006 22:47 Google hugleiðir kaup á YouTube Bandaríska netleitarfyrirtækið Google er sagt eiga í viðræðum um kaup á myndskráavefnum YouTube. Kaupverð er talið nema 1,6 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði 109 milljarða íslenskra króna. 6.10.2006 18:14 Hagvöxtur minnkar í helstu hagkerfunum Efnahags- og framfarastofnunin segir flest benda til að hagvöxtur muni minnka á næstunni hjá sjö stærstu hagkerfum í heimi. Kanada og Brasilía er þar undanskilin. Þá er hagvöxtur sagður fara minnkandi í Kína og öðrum stórum hagkerfum en vera stöðugur í löndum á borð við Bandaríkin, Indland og Rússland. Hagvöxtur á evrusvæðinu stendur sömuleiðis í stað á milli mánaða. 6.10.2006 11:08 Olíuverð lækkaði lítillega Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði lítillega og fór niður fyrir 60 dali á tunnu á helstu fjármálamörkuðum í dag þrátt fyrir að OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, hafi áætlanir um að draga úr olíuframleiðslu til að sporna gegn verðlækkunum á hráolíu. 6.10.2006 11:02 Dótturfélag Nýsis kaupir í Bretlandi Nysir UK Limited, dótturfélag Nýsis hf., hefur keypt 69 prósent hlutafjár í breska fasteignastjórnunarfélaginu Operon, sem er með samninga um fasteignastjórnun á byggingum víða um Bretland. Kaupverð er trúnaðarmál. 6.10.2006 10:33 Aer Lingus segir tilboð Ryanair of lágt Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur aukið við hlut sinn í írska flugfélaginu Aer Lingus og á nú 19,2 prósenta hlut í félaginu. Fyrir átti Ryanair 16 prósent. Ryanair gerði í alla hluti Aer Lingus í gær en stjórn félagsins segir tilboðið vanmat á virði þess. 6.10.2006 09:44 Hitachi innkallar rafhlöður frá Sony Japanski tækniframleiðandinn Hitachi hefur ákveðið að innkalla 16.000 rafhlöður, sem fylgdu með fartölvum undir merkjum fyrirtækisins. Sony framleiddi rafhlöðurnar. Með þessu bætist Hitachi í hóp nokkurra fyrirtækja sem hafa innkallað ríflega 7 milljónir rafhlaða frá Sony. 6.10.2006 09:25 Verð símtala í útlöndum lækkar í kjölfar samnings Og Vodafone heitir eftirleiðis Vodafone á Íslandi. Í gær var skrifað undir samning við Vodafone Group um notkun vörumerkisins. Hann er sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum og markar upphaf nánara samstarfs fyrirtækjanna. 6.10.2006 06:00 Stjórnendur selja í Mosaic Fashions 6.10.2006 00:50
Sjá næstu 50 fréttir
Hnupl kostar níu þúsund á mann Hver landsmaður greiðir um níu þúsund krónur á ári vegna þjófnaða og mistaka. Samkvæmt frétt frá Rannsóknarsetri verslunarinnar fara árlega fara 2,8 milljarðar króna í vaskinn hér á landi vegna rýrnunar af þessum sökum. Er þá miðað við meðaltalstölur frá 24 Evrópulöndum. Ætla má að stærstan hluta þessarar rýrnunar megi rekja til þjófnaða, eða um 2,4 milljarða, og restina vegna mistaka. Í 48,8 prósenta tilvika eru það viðskiptavinir sem stela en í næst stærstum hluta tilvika eru það starfsmenn. 7.10.2006 06:30
Glitnir lýkur við kaup á NPØ Kaupum norska bankans BNbank, sem er í eigu Glitnis, á 45 prósenta hlut í Norsk Privatøkonomi eftir að norska fjármálaeftirlitið lagði blessun sína yfir kaupin. NPØ er fjármálaþjónustufyrirtæki sem starfar um allan Noreg. 7.10.2006 06:15
Kerkorian hættur við kaup í GM Bandaríski auðkýfingurinn Kirk Kerkorian, sem er einn stærsti hluthafinn í bandaríska bílaframleiðandanum General Motors (GM), er hættur við að auka við hlut sinn í fyrirtækinu eins og til stóð. Ástæðan er sögð óánægja hans með að samstarfsviðræðum GM við Nissan og Renault var slitið fyrr í vikunni. 6.10.2006 22:47
Google hugleiðir kaup á YouTube Bandaríska netleitarfyrirtækið Google er sagt eiga í viðræðum um kaup á myndskráavefnum YouTube. Kaupverð er talið nema 1,6 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði 109 milljarða íslenskra króna. 6.10.2006 18:14
Hagvöxtur minnkar í helstu hagkerfunum Efnahags- og framfarastofnunin segir flest benda til að hagvöxtur muni minnka á næstunni hjá sjö stærstu hagkerfum í heimi. Kanada og Brasilía er þar undanskilin. Þá er hagvöxtur sagður fara minnkandi í Kína og öðrum stórum hagkerfum en vera stöðugur í löndum á borð við Bandaríkin, Indland og Rússland. Hagvöxtur á evrusvæðinu stendur sömuleiðis í stað á milli mánaða. 6.10.2006 11:08
Olíuverð lækkaði lítillega Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði lítillega og fór niður fyrir 60 dali á tunnu á helstu fjármálamörkuðum í dag þrátt fyrir að OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, hafi áætlanir um að draga úr olíuframleiðslu til að sporna gegn verðlækkunum á hráolíu. 6.10.2006 11:02
Dótturfélag Nýsis kaupir í Bretlandi Nysir UK Limited, dótturfélag Nýsis hf., hefur keypt 69 prósent hlutafjár í breska fasteignastjórnunarfélaginu Operon, sem er með samninga um fasteignastjórnun á byggingum víða um Bretland. Kaupverð er trúnaðarmál. 6.10.2006 10:33
Aer Lingus segir tilboð Ryanair of lágt Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur aukið við hlut sinn í írska flugfélaginu Aer Lingus og á nú 19,2 prósenta hlut í félaginu. Fyrir átti Ryanair 16 prósent. Ryanair gerði í alla hluti Aer Lingus í gær en stjórn félagsins segir tilboðið vanmat á virði þess. 6.10.2006 09:44
Hitachi innkallar rafhlöður frá Sony Japanski tækniframleiðandinn Hitachi hefur ákveðið að innkalla 16.000 rafhlöður, sem fylgdu með fartölvum undir merkjum fyrirtækisins. Sony framleiddi rafhlöðurnar. Með þessu bætist Hitachi í hóp nokkurra fyrirtækja sem hafa innkallað ríflega 7 milljónir rafhlaða frá Sony. 6.10.2006 09:25
Verð símtala í útlöndum lækkar í kjölfar samnings Og Vodafone heitir eftirleiðis Vodafone á Íslandi. Í gær var skrifað undir samning við Vodafone Group um notkun vörumerkisins. Hann er sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum og markar upphaf nánara samstarfs fyrirtækjanna. 6.10.2006 06:00
Þriðji dagur Dow Jones í methæðum Bandaríska hlutabréfavísitalan Dow Jones sló enn eitt metið við lokun markaða vestanhafs í dag. Vísitalan hækkaði um 16,08 punkta eða 0,14 prósent í viðskiptum dagsins og endaði í 11.866,69 stigum. Þetta er þriðji dagurinn í röð sem vísitalan nær sögulegu hámarki. 5.10.2006 21:42
Nýjum íbúðalánum bankanna fækkar Útlán bankanna til íbúðakaupa í september námu tæpum 3,2 milljörðum króna en það er svipað og síðastliðna tvo mánuði. Sé miðað við sama tíma á síðasta ári er samdrátturinn hins vegar mikill en þá námu íbúðalán bankanna 14,9 milljörðum króna. Greiningardeild Landsbankans spáir 2-3 prósenta lækkun á fasteignaverði á árunum 2006 til 2007. 5.10.2006 17:06
Spá sterkri krónu fram yfir áramót Gengisvísitala krónunnar styrktist um 1,1 prósent í dag og stóð vísitala hennar í 118,7 stigum við lokun markaða. Greiningardeild Kaupþings gerir ráð fyrir að krónan haldist tiltölulega sterk fram yfir áramót. 5.10.2006 17:00
Seðlabanki Danmerkur hækkar stýrivexti Seðlabanki Danmerkur ákvað í dag að feta í fótspor evrópska seðlabankans og hækka stýrivexti um 25 punkta í 3,5 prósent. 5.10.2006 15:03
Olía hækkar í verði Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur hækkað nokkuð á helstu fjármálamörkuðum í dag í kjölfar þess að forseti samtaka olíuútflutningsríkja, OPEC, sagði samtökin vera að íhuga að draga úr olíuframleiðslu til að sporna gegn frekari lækkunum á olíu. 5.10.2006 14:51
Evrópski seðlabankinn hækkar stýrivexti Seðlabanki Evrópu ákvað í dag að hækka stýrivexti á evrusvæðinu um 25 punkta í 3,25 prósent. Fjármálasérfræðingar töldu margir líkur á þessari ákvörðun bankastjórnarinnar. 5.10.2006 11:50
Bernanke segir verðbólguna of háa Ben Bernanke, bankastjóri Seðlabanka Bandaríkjanna, varaði í gær við of mikilli verðbólgu vestanhafs. Hann gaf þó ekkert í skyn hvort bankinn muni hækka stýrivexti vegna þessa á næstunni. 5.10.2006 11:32
Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi Stjórn Englandsbanka ákvað í dag að halda stýrivöxtum í Bretlandi óbreyttum í 4,75 prósentum. Ákvörðunin kemur ekki á óvart enda bjuggust flestir greiningaraðilar við þessari niðurstöðu. 5.10.2006 11:14
Og Vodafone heitir Vodafone á Íslandi Og fjarskipti ehf. (Og Vodafone), dótturfélag Dagsbrúnar, hefur gert samning við alþjóðlega farsímafélagið Vodafone Group um nánara samstarf og samnýtingu vörumerkis. Og Vodafone mun því hér eftir heita Vodafone á Íslandi og verða vörur og þjónusta fyrirtækisins markaðsett undir vörumerki Vodafone. 5.10.2006 10:56
Glitnir spáir Kaupþingi yfir 39 milljarða hagnaði Greiningardeild Glitnis spáir því að Kaupþing banki hafi hagnist um 39,3 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi. Þetta kemur fram í afkomuspá Glitnis sem kom út í dag. Gangi spáin eftir er um mesta hagnað í sögu nokkurs íslensks félags á einum ársfjórðungi. 5.10.2006 10:48
Dow Jones í nýjum hæðum Bandaríska hlutabréfavísitalan Dow Jones setti enn á ný met við lokun markaða vestanhafs í gær. Þetta er annar dagurinn sem lokagengi vísitölunnar nær sögulegum hæðum. 5.10.2006 09:41
Ryanair vill Aer Lingus Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur gert tilboð í allt hlutafé írska flugfélagsins Aer Lingus. Tilboðið hljóðar upp á 1,48 milljarða evrur eða tæplega 130 milljarða íslenskra króna. Ryanair hefur þegar keypt 16 prósent í flugfélaginu. Forstjóri Ryanair segir þetta einstakt tækifæri til að byggja upp eitt sterkt flugfélag á Írlandi. 5.10.2006 09:10
Starfsfólk Icelandair áhugasamt fyrir skráningu. Skráning Icelandair Group í Kauphöll Íslands og hlutafjársala til fjárfesta og starfsmanna leggst vel í Jón Karl Ólafsson, forstjóra félagsins. Jón Karl finnur fyrir miklum áhuga starfsmanna og telur að stór hluti þeirra muni taka þátt í verkefninu. „Það verður einnig jákvætt að fá inn breiðan hóp hluthafa sem stendur þá við bakið á fyrirtækinu og tekur það áfram inn í framtíðina.“ 5.10.2006 00:01
Færast nær yfirtöku á House of Fraser Fjárfestahópurinn Highland Acquisitions náði mikilvægum áfanga á leið sinni til yfirtöku á House of Fraser á þriðjudaginn. Þá lagði stór hluti eigenda HoF blessun sína yfir tillögu stjórnar um að samþykkja yfirtökutilboð frá Highland. 5.10.2006 00:01
Fyrirtækið Saga fjárfestingar hf. stofnað á Akureyri Stofnað hefur verið á Akureyri fyrirtækið Saga fjárfestingar hf. sem leggja mun áherslu á sérvalin verkefni á fyrirtækjamarkaði. 5.10.2006 00:01
Jarðboranir kaupa Sæþór Jarðboranir hf., dótturfélag Atorku Group, hefur keypt allt hlutafé í verktakafyrirtækinu Sæþór ehf., ásamt tækjakosti og búnaði. Kaupverð nemur 130 milljónum króna. 4.10.2006 16:51
Viðræðum bílarisa slitið Rick Wagoner, forstjóri bandaríska bílaframleiðandans General Motors (GM) og Carlos Ghosn, forstjóri bílaframleiðendanna Nissan og Renault, slitu viðræðum um mögulegt samstarf í dag. Bandaríska dagblaðið The Wall Street Journal segir forstjórana hafa greint á um of margt. 4.10.2006 16:17
Nýr fjárfestingarbanki á Akureyri Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson hefur yfirgefið herbúðir Kaupþings, en hann gegndi stöðu framkvæmdastjóra eigin viðskipta bankans. Með honum hverfur á braut hópur starfsmanna úr stöðutöku bankans. Þorvaldur segir hópinn taka þátt í stofnun fyrirtækis í fjármálaþjónustu með höfuðstöðvar á Akureyri. 4.10.2006 14:30
Hluthafar BAE styðja sölu til EADS Meirihluti hluthafa í breska hergagnaframleiðandanum BAE voru fylgjandi því á hluthafafundi í fyrirtækinu í morgun að selja 20 prósent hlutafjár félagsins í Airbus til EADS, móðurfélags flugvélaframleiðandans. 4.10.2006 13:29
Líkur á óbreyttum vöxtum Líkur eru sagðar á því að peningamálanefnd Englandsbanka ákveði að halda stýrivöxtum óbreyttum en bankinn tilkynnir á morgun hvort breytingar verði gerðar á stýrivaxtastigi í Bretlandi. Búist er við að bankinn hækki stýrivexti í 5 prósent í næsta mánuði. 4.10.2006 12:39
Líkur á 7,7 milljarða króna vöruskiptahalla Bráðabirgðatölur Hagstofunnar benda til að vöruskiptahalli verði 7,7 milljarða króna september. Gangi þetta eftir hafa vöruskipti ekki verið lægri síðan í febrúar á þessu ári. 4.10.2006 11:57
Enn fleiri rafhlöður innkallaðar Japanski tölvuframleiðandinn Fujitsu hefur bæst í hóp þeirra fyrirtækja sem hafa ákveðið að innkalla rafhlöður frá Sony, sem seldar voru með fartölvum fyrirtækisins. Um 287.000 rafhlöður er að ræða að þessu sinni, sem verða innkallaðar í varúðarskyni. 4.10.2006 09:01
Tafir á afhendingu risaþota frá Airbus Mörg af stærstu flugfélögum í heimi munu vera að endurskoða pantanir sínar á A380 risaþotum eftir að stjórn EADS, móðurfélags evrópska flugvélaframleiðandans Airbus, greindi frá því að afhending á risaþotunum myndi dragast fram á haustið 2007. 4.10.2006 09:01
Samdráttur hjá 3i Group Breski fjárfestingasjóðurinn 3i, sem sérhæfir sig í yfirtökum á skráðum félögum, greindi frá því að fjárfestingatekjur hans hefðu fallið um þriðjung frá því í apríl til loka ágúst miðað við sama tímabil í fyrra. 4.10.2006 07:45
Stöð 2 verði efld Efling ljósvakamiðla 365 er meðal þess sem stjórnendur Dagsbrúnar horfa til nú þegar unnið er að uppskiptingu félagsins í tvo hluta, 365 hf. og Teymis hf. Er þar aðallega horft til Stöðvar 2 þar sem stjórnendur félagsins sjá aukna vaxtarmöguleika en alls mun einn þriðji hluti eigna Dagsbrúnar falla í fjölmiðlahlutann. 4.10.2006 07:45
Hallinn dregst hratt saman Viðskiptahallinn mun fara í 18,7 prósent í ár og dragast svo hratt saman á næsta ári. Þá mun hann mælast 11 prósent af landsframleiðslu en fjögur prósent árið 2008. Lækkun á gengi krónunnar á þessu ári mun hjálpa til við þessa þróun. Þetta er meðal þess sem kom fram í nýrri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins. 4.10.2006 07:00
SPRON lýkur við fjármögnun SPRON hefur lokið við fjármögnun upp á 90 milljónir evra, sem samsvara átta milljörðum króna, en sökum mikllar eftirspurnar fjárfesta var ákveðið að sækja meira fé út á markaðinn. 4.10.2006 07:00
Halda aftur af verðbólgu Hlutfall útlendinga af heildarvinnuafli er nú 5,5 prósent og hefur það nær þrefaldast frá árinu 1998. Á morgunverðarfundi KB banka í gær, þar sem sýn bankans á þróun efnahagsmála á næstu misserum var kynnt, kom fram að innflutningur fólks hafi orðið til þess að breyta gríðarlegri aukningu í heildareftirspurn í hagkerfinu í hagvöxt sem líklega hefði ella sprungið út mun fyrr með verðbólgu. Þeir stuðli þar að auki að því að verðbólga muni ganga hratt niður á árinu 2007. 4.10.2006 06:45
Lendingin verður mismjúk Íbúar á höfuðborgarsvæðinu munu finna mest fyrir áhrifum samdráttar í hagkerfinu. Í nýrri efnahagsspá KB banka er gert ráð fyrir 0,2 prósenta samdrætti í hagvexti á næsta ári. 4.10.2006 06:30
Hagkerfið í Færeyjum vex Danski Seðlabankinn býst áfram við áframhaldandi framþróun í færeyska hagkerfinu. Eftir nokkur samdráttarár sýnir færeyska hagkerfið framfarir. Þetta sést sérstaklega á hækkandi launum og umbótum á vinnumarkaði. Hagvöxtur er drifinn áfram af háu fiskverði og vaxandi fjárfestingu í fasteignum. 4.10.2006 06:30
Síldarvinnslan í breytingum Síldarvinnslan hf. og Garðar Guðmundsson hf., sem gerir út ms Gudmund Ólaf ÓF, verða sameinuð á næstunni í kjölfar þess að Síldarvinnslan keypti um 20 prósenta hlut í félaginu. Fyrir átti Síldarvinnslan um 80 prósenta hlut í félaginu. 4.10.2006 06:30
Laxaverðið lækkar Verð á eldislaxi hefur lækkað talsvert á Evrópumarkaði frá því í sumar. Síðustu vikurnar hefur verðið lækkað um 26-27 prósent. Fiskifréttir hafa eftir norsku vefsíðunni Kynt.no að verð á eldislaxi hafi í síðustu viku verið að jafnaði 27,43 norskar krónur á kíló eða um 293,50 íslenskar krónur. Það er 25,5 króna lækkun á milli vikna. Verð á eldislaxinum fór hæst í 44,50 krónur á kíló að meðaltali um hvítasunnuna síðustu en síðan þá hefur verðið lækkað um 38 prósent. 4.10.2006 06:30
Krónan sögð til trafala Á morgunfundi Viðskiptaráðs var þeirri spurningu velt upp hvort krónan væri á útleið bakdyramegin og evra að koma í staðinn. Rædd var virkni peningamálastefnu Seðlabankans. 4.10.2006 06:15