Fleiri fréttir Nýr yfirmaður Vodafone í Evrópu Vittorio Colao hefur verið ráðinn sem nýr yfirmaður farsímarisans Vodafone í Evrópu. Hann hefur störf í október. Colao tekur við að Bill Morrow, fyrrum yfirmanni Vodafone, sem lét af skyndilega af störfum hjá farsímarisanum af persónulegum ástæðum í júlí. 5.9.2006 10:00 Nýr stjórnarformaður Excel Airways Group Magnús Þorsteinsson, starfandi stjórnarformaður Avion Group, mun taka við stjórnarformennsku í Excel Airways Group af Eamonn Mullaney, fyrrum stjórnarformanni og eins af stofnendum breska flugfélagsins Excel Airways. Mullaney hefur tilkynnt um starfslok sín sem taka gildi í lok október. 5.9.2006 09:48 Hagnaður Alfesca 1,1 milljarður króna Hagnaður af rekstri Alfesca á síðasta ári, sem lauk í júní, nam 12 milljón evrum eða eða tæplega 1,1 milljarði króna. Á fjórða fjárhagsári fyrirtækisins tapaði það hins vegar 603.000 evra eða 53,6 milljónum íslenskra króna. 5.9.2006 09:23 Spá minni hagvexti í Brasilíu Hagfræðingar á vegum Seðlabanka Brasilíu reikna með 3,2 prósenta hagvexti í landinu á þessu ári í endurskoðaðri hagvaxtarspá sinni. Minni hagvöxtur í Brasilíu skrifast á HM í Þýskalandi en fjölmörg fyrirtæki gáfu starfsmönnum sínum frí til að fylgjast með leikjum landsliðsins. 5.9.2006 09:11 Segir rétta tímann til krónukaupa Núna gæti verið rétti tíminn til að kaupa íslenskar krónur þar sem gengi krónunnar er hagstætt um þessar mundir. Þetta er haft eftir Momtchil Pojarliev, sérfræðingi hjá svissneska bankans Pictet & Cie, í frétt á vefsíðu Bloomberg í gær þar sem fjallað var um íslensku krónuna. 5.9.2006 00:01 Spá talsverðri lækkun á verðbólgu Útlit er fyrir 0,8 prósenta hækkun vísitölu neysluverðs milli ágúst og september og allt bendir til þess að verðbólga hafi þegar náð hámarki og muni minnka á næstu mánuðum. Þetta kemur fram í endurskoðaðri verðbólguspá Greiningardeildar Glitnis. 5.9.2006 00:01 Olían lækkar í verði Verð á hráolíu lækkaði nokkuð í framvirkum samningum í dag og fór niður fyrir 69 bandaríkjadali á tunnu á helstu fjármálamörkuðum. Verðið hefur ekki verið lægra síðastliðnar 10 vikur. Helsta ástæðan eru færri og minni fellibyljir á yfirstandandi tímabili við Bandaríkin og auknar olíubirgðir þar í landi. 4.9.2006 15:28 Risaþotan loksins komin í loftið A380 risaþota frá samevrópsku flugvélasmiðjunni Airbus fór í loftið frá flugvelli í Toulouse í Frakklandi dag. Þetta var fyrsta tilraunaflug vélarinnar af fjórum í vikunni með áhöfn og farþega innanborðs. Flugið tekur sjö klukkustundir en farþegarnir, sem voru allir starfsmenn Airbus, munu gera prófanir á vélinni, sem er ein þeirra stærstu í heimi. 4.9.2006 13:10 Segist saklaus af bókhaldsbrellum 4.9.2006 11:29 Spá óbreyttum stýrivöxtum Stjórn Englandsbanka fundar á fimmtudag til að ákveða hvort breytingar verði gerðar á stýrivöxtum í Bretlandi. Vextirnir voru hækkaðir í byrjun ágúst og standa nú í 4,75 prósentum. Greiningardeild Glitnis hefur eftir fréttaveitunni Bloomberg að líkur séu á óbreyttum stýrivöxtum. 4.9.2006 10:55 Olíuverð hækkaði lítillega Verð á hráolíu hækkaði lítillega í framvirkum samningum á nokkrum helstu mörkuðum í dag eftir snarpar lækkanir í síðustu viku. 4.9.2006 09:16 VÍS hagnaðist um 468 milljónir króna Vátryggingafélag Íslands hagnaðist um 468 milljónir króna á fyrri árshelmingi og nam eigið fé félagsins 15,7 milljörðum króna. Allt árið í fyrra hagnaðist VÍS um 8,4 milljarða króna. 2.9.2006 00:01 Verðmæti Exista á bilinu 211 til 233 milljarðar Markaðsvirði Exista liggur á bilinu 211 til 233 milljarðar króna, en endanlegt virði félagsins kemur í ljós þann 7. september næstkomandi, þegar útboð til fagfjárfesta hefst. Þetta gerir Exista að fjórða eða fimmta verðmætasta félagi í Kauphöll Íslands. 2.9.2006 00:01 FlyMe kaupir Astreus í Bretlandi Norræna lággjaldaflugfélagið FlyMe, sem Pálmi Haraldsson í Fons á stærstan hluta í, hefur keypt fimmtíu og eins prósents hlut í breska leiguflugfélaginu Astreus. 2.9.2006 00:01 Hreinn Jakobsson til Anza Hreinn Jakobsson, fyrrum forstjóri Skýrr, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Anza hf. Guðni B. Guðnason, sem verið hefur framkvæmdastjóri fyrirtækisins, lætur af störfum í dag. 1.9.2006 16:25 Góður hagvöxtur innan ESB Hagvöxtur aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB) jókst um 0,9 prósent á öðrum ársfjórðungi sem er 0,1 prósentustigi meira en í fjórðungnum á undan. Hagvöxturinn, sem nemur 2,8 prósentum á ársgrundvelli, var meiri en í Bandaríkjunum og Japan. 1.9.2006 15:31 Tap á rekstri Jeratúns Jeratún ehf., einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar, sem sér um byggingu og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellings í Grundarfirði, tapaði tæpum 14 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári skilaði fyrirtæki tæplega 7,4 milljóna króna hagnaði. 1.9.2006 14:45 Hagnaður Landsafls rúm 241 milljón Landsafl hf., fasteignafélag í eigu Landsbankans og Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka, skilaði 241,4 milljóna króna hagnaði á fyrri helmingi ársins samanborið við tæplega 1,4 milljarða króna hagnaðs á sama tímabili í fyrra. Afkoman er viðunandi, að mati stjórnenda félagsins. 1.9.2006 14:26 Fjöltækniskólinn kaupir Flugskóla Íslands Fjöltækniskóli Íslands hefur keypt allt hlutafé í Flugskóla Íslands og verður starfsemi Flugskólans að mestu flutt frá Reykjavíkurflugvelli í húsnæði Fjöltækniskólans. Með sameiningunni er horft til þess að nám flugmanna verði viðurkennt hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna, að sögn skólastjóra Flugskólans. 1.9.2006 13:40 Fasteignaverðið hæst í Lundúnum 1.9.2006 13:26 Atvinnuleysi minnkar á evrusvæðinu Atvinnuleysi mældist 7,8 prósent í aðildarríkjum myntbandalags Evrópusambandsins (ESB) í júlí, samkvæmt útreikningum Eurostat, hagstofu ESB. Þetta er 0,8 prósentustiga samdráttur á milli mánaða. Á sama tíma mældist 8,0 prósenta atvinnuleysi innan aðildarríkja ESB og helst það óbreytt á milli mánaða. Á sama tíma fyrir ári mældist hins vegar 8,7 prósenta atvinnuleysi í aðildarríkjum ESB. 1.9.2006 12:28 Tap á rekstri Leifsstöðvar Rétt rúmlega eins milljarðs krónu tap varð á rekstri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar (FLE) á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári skilaði rekstur flugstöðvarinnar 380 milljóna króna hagnaði. Hluti tapsins er kominn vegna gengistaps en stór hluti skulda FLE er í erlendri mynt. 1.9.2006 10:31 Ford selur Aston Martin Forsvarsmenn bandaríska bílaframleiðandans Ford opinberuðu í gær áætlanir þess efnis að selja hugsanlega hluta af framleiðslulínu og vörumerki Aston Martin sportbílsins. Aston Martin bílar eru í dýrari kantinum en 1.700 manns vinna við framleiðslu hans í Buckinhamshire í Bretlandi. 1.9.2006 10:11 TM með 90 prósent í Nemi Tryggingamiðstöðin hefur eignast rétt rúma 90 prósenta af útgefnu hlutafé í norska tryggingafélaginu NEMI Forsikring ASA. 1.9.2006 10:00 Tap FlyMe tvöfaldast milli ára Þótt velta FlyMe hafi aukist um 75 prósent á fyrri helmingi ársins, samanborið við árið 2005, jókst tap félagsins um helming á milli ára. Norræna lággjaldaflugfélagið tapaði 1,1 milljarði á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 560 milljóna króna tap í fyrra. 1.9.2006 00:01 Nýir eigendur greiddu út einn milljarð í arð. Jarðboranir, sem voru yfirteknar af Atorku Group fyrr á árinu, skiluðu 402 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við þrjú hundruð milljónir króna í fyrra. 1.9.2006 00:01 Actavis hækkar yfirtökutilboð sitt í Pliva Actavis hækkaði tilboð sitt í króatíska lyfjafyrirtækið Pliva um 10 prósent í gær og hljóðar það nú upp á 795 kúnur á hlut. Lokað var fyrir viðskipti með bréf í Pliva í Króatíu í gærmorgun skömmu áður en fréttin fór í loftið. Barr Pharmaceuticals sem líka vill kaupa Pliva ætlar sér viku til að hugleiða næstu skref. 1.9.2006 00:01 Óbreyttir stýrivextir Evrópski seðlabankinn ákvað að loknum vaxtaákvörðunarfundi sínum í gær að halda stýrivöxtum á evrusvæðinu óbreyttum en þeir standa nú í þremur prósentum. Greiningaraðilar telja líkur á að bankinn hækki vextina í október. 1.9.2006 00:01 Byr með Urði rekstrarvörur Byr ehf., eignarhaldsfélag Tæknivals hf., hefur keypt fyrirtækið Urðir rekstrarvörur ehf. Gengið var frá kaupunum 18. ágúst. Urðir rekstrarvörur er sérhæft fyrirtæki í sölu á rekstrar- og fylgivöru fyrir tölvur og prentara auk þess sem fyrirtækið hefur um árabil boðið öfluga viðgerðar- og tækniþjónustu á tölvubúnaði og jaðartækjum. 1.9.2006 00:01 Vöruskiptahallinn aldrei verið meiri Vöruskiptahalli var 19,1 milljarður króna í júlí og hefur ekki verið meiri frá því mælingar hófust, samkvæmt Hagstofu Íslands. Fluttar voru inn vörur fyrir 16,2 milljarða króna í mánuðinum og inn fyrir 35,2 milljarða. Tæplega tólf milljarða halli var á vöruskiptum í júlí 2005. 1.9.2006 00:01 Samdráttur í dagvöruverslun Dagvöruverslun dróst saman um 3,9 prósent í júlí samkvæmt Rannsóknarsetri verslunarinnar (RSV). Velta í dagvöruverslun var 0,6 prósentum minni í júlí en á sama tíma í fyrra. Mestur samdráttur varð í áfengiskaupum, eða 18,2 prósent milli ára. 1.9.2006 00:01 Tap Blaðsins var í takt við áætlanir Sigurður G. Guðjónsson, stjórnarformaður Árs og dags, útgefanda Blaðsins, segir að tap félagsins á síðasta rekstrarári hafi verið í takt við þær áætlanir sem lagt var upp með. Það sé eðlilegt fyrir fjölmiðlafyrirtæki sem byrji frá grunni. Sigurður gefur ekki upp nákvæmar tölur. 1.9.2006 00:01 Síminn og OR ræðast áfram við Á næstu vikum skýrist hvort verður af samstarfi um rekstur fjarskiptaneta Símans og Orkuveitu Reykjavíkur. Viðræður fyrirtækjanna halda áfram, en Orkuveitan kaupir ekki kerfi Símans. 1.9.2006 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Nýr yfirmaður Vodafone í Evrópu Vittorio Colao hefur verið ráðinn sem nýr yfirmaður farsímarisans Vodafone í Evrópu. Hann hefur störf í október. Colao tekur við að Bill Morrow, fyrrum yfirmanni Vodafone, sem lét af skyndilega af störfum hjá farsímarisanum af persónulegum ástæðum í júlí. 5.9.2006 10:00
Nýr stjórnarformaður Excel Airways Group Magnús Þorsteinsson, starfandi stjórnarformaður Avion Group, mun taka við stjórnarformennsku í Excel Airways Group af Eamonn Mullaney, fyrrum stjórnarformanni og eins af stofnendum breska flugfélagsins Excel Airways. Mullaney hefur tilkynnt um starfslok sín sem taka gildi í lok október. 5.9.2006 09:48
Hagnaður Alfesca 1,1 milljarður króna Hagnaður af rekstri Alfesca á síðasta ári, sem lauk í júní, nam 12 milljón evrum eða eða tæplega 1,1 milljarði króna. Á fjórða fjárhagsári fyrirtækisins tapaði það hins vegar 603.000 evra eða 53,6 milljónum íslenskra króna. 5.9.2006 09:23
Spá minni hagvexti í Brasilíu Hagfræðingar á vegum Seðlabanka Brasilíu reikna með 3,2 prósenta hagvexti í landinu á þessu ári í endurskoðaðri hagvaxtarspá sinni. Minni hagvöxtur í Brasilíu skrifast á HM í Þýskalandi en fjölmörg fyrirtæki gáfu starfsmönnum sínum frí til að fylgjast með leikjum landsliðsins. 5.9.2006 09:11
Segir rétta tímann til krónukaupa Núna gæti verið rétti tíminn til að kaupa íslenskar krónur þar sem gengi krónunnar er hagstætt um þessar mundir. Þetta er haft eftir Momtchil Pojarliev, sérfræðingi hjá svissneska bankans Pictet & Cie, í frétt á vefsíðu Bloomberg í gær þar sem fjallað var um íslensku krónuna. 5.9.2006 00:01
Spá talsverðri lækkun á verðbólgu Útlit er fyrir 0,8 prósenta hækkun vísitölu neysluverðs milli ágúst og september og allt bendir til þess að verðbólga hafi þegar náð hámarki og muni minnka á næstu mánuðum. Þetta kemur fram í endurskoðaðri verðbólguspá Greiningardeildar Glitnis. 5.9.2006 00:01
Olían lækkar í verði Verð á hráolíu lækkaði nokkuð í framvirkum samningum í dag og fór niður fyrir 69 bandaríkjadali á tunnu á helstu fjármálamörkuðum. Verðið hefur ekki verið lægra síðastliðnar 10 vikur. Helsta ástæðan eru færri og minni fellibyljir á yfirstandandi tímabili við Bandaríkin og auknar olíubirgðir þar í landi. 4.9.2006 15:28
Risaþotan loksins komin í loftið A380 risaþota frá samevrópsku flugvélasmiðjunni Airbus fór í loftið frá flugvelli í Toulouse í Frakklandi dag. Þetta var fyrsta tilraunaflug vélarinnar af fjórum í vikunni með áhöfn og farþega innanborðs. Flugið tekur sjö klukkustundir en farþegarnir, sem voru allir starfsmenn Airbus, munu gera prófanir á vélinni, sem er ein þeirra stærstu í heimi. 4.9.2006 13:10
Spá óbreyttum stýrivöxtum Stjórn Englandsbanka fundar á fimmtudag til að ákveða hvort breytingar verði gerðar á stýrivöxtum í Bretlandi. Vextirnir voru hækkaðir í byrjun ágúst og standa nú í 4,75 prósentum. Greiningardeild Glitnis hefur eftir fréttaveitunni Bloomberg að líkur séu á óbreyttum stýrivöxtum. 4.9.2006 10:55
Olíuverð hækkaði lítillega Verð á hráolíu hækkaði lítillega í framvirkum samningum á nokkrum helstu mörkuðum í dag eftir snarpar lækkanir í síðustu viku. 4.9.2006 09:16
VÍS hagnaðist um 468 milljónir króna Vátryggingafélag Íslands hagnaðist um 468 milljónir króna á fyrri árshelmingi og nam eigið fé félagsins 15,7 milljörðum króna. Allt árið í fyrra hagnaðist VÍS um 8,4 milljarða króna. 2.9.2006 00:01
Verðmæti Exista á bilinu 211 til 233 milljarðar Markaðsvirði Exista liggur á bilinu 211 til 233 milljarðar króna, en endanlegt virði félagsins kemur í ljós þann 7. september næstkomandi, þegar útboð til fagfjárfesta hefst. Þetta gerir Exista að fjórða eða fimmta verðmætasta félagi í Kauphöll Íslands. 2.9.2006 00:01
FlyMe kaupir Astreus í Bretlandi Norræna lággjaldaflugfélagið FlyMe, sem Pálmi Haraldsson í Fons á stærstan hluta í, hefur keypt fimmtíu og eins prósents hlut í breska leiguflugfélaginu Astreus. 2.9.2006 00:01
Hreinn Jakobsson til Anza Hreinn Jakobsson, fyrrum forstjóri Skýrr, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Anza hf. Guðni B. Guðnason, sem verið hefur framkvæmdastjóri fyrirtækisins, lætur af störfum í dag. 1.9.2006 16:25
Góður hagvöxtur innan ESB Hagvöxtur aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB) jókst um 0,9 prósent á öðrum ársfjórðungi sem er 0,1 prósentustigi meira en í fjórðungnum á undan. Hagvöxturinn, sem nemur 2,8 prósentum á ársgrundvelli, var meiri en í Bandaríkjunum og Japan. 1.9.2006 15:31
Tap á rekstri Jeratúns Jeratún ehf., einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar, sem sér um byggingu og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellings í Grundarfirði, tapaði tæpum 14 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári skilaði fyrirtæki tæplega 7,4 milljóna króna hagnaði. 1.9.2006 14:45
Hagnaður Landsafls rúm 241 milljón Landsafl hf., fasteignafélag í eigu Landsbankans og Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka, skilaði 241,4 milljóna króna hagnaði á fyrri helmingi ársins samanborið við tæplega 1,4 milljarða króna hagnaðs á sama tímabili í fyrra. Afkoman er viðunandi, að mati stjórnenda félagsins. 1.9.2006 14:26
Fjöltækniskólinn kaupir Flugskóla Íslands Fjöltækniskóli Íslands hefur keypt allt hlutafé í Flugskóla Íslands og verður starfsemi Flugskólans að mestu flutt frá Reykjavíkurflugvelli í húsnæði Fjöltækniskólans. Með sameiningunni er horft til þess að nám flugmanna verði viðurkennt hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna, að sögn skólastjóra Flugskólans. 1.9.2006 13:40
Atvinnuleysi minnkar á evrusvæðinu Atvinnuleysi mældist 7,8 prósent í aðildarríkjum myntbandalags Evrópusambandsins (ESB) í júlí, samkvæmt útreikningum Eurostat, hagstofu ESB. Þetta er 0,8 prósentustiga samdráttur á milli mánaða. Á sama tíma mældist 8,0 prósenta atvinnuleysi innan aðildarríkja ESB og helst það óbreytt á milli mánaða. Á sama tíma fyrir ári mældist hins vegar 8,7 prósenta atvinnuleysi í aðildarríkjum ESB. 1.9.2006 12:28
Tap á rekstri Leifsstöðvar Rétt rúmlega eins milljarðs krónu tap varð á rekstri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar (FLE) á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári skilaði rekstur flugstöðvarinnar 380 milljóna króna hagnaði. Hluti tapsins er kominn vegna gengistaps en stór hluti skulda FLE er í erlendri mynt. 1.9.2006 10:31
Ford selur Aston Martin Forsvarsmenn bandaríska bílaframleiðandans Ford opinberuðu í gær áætlanir þess efnis að selja hugsanlega hluta af framleiðslulínu og vörumerki Aston Martin sportbílsins. Aston Martin bílar eru í dýrari kantinum en 1.700 manns vinna við framleiðslu hans í Buckinhamshire í Bretlandi. 1.9.2006 10:11
TM með 90 prósent í Nemi Tryggingamiðstöðin hefur eignast rétt rúma 90 prósenta af útgefnu hlutafé í norska tryggingafélaginu NEMI Forsikring ASA. 1.9.2006 10:00
Tap FlyMe tvöfaldast milli ára Þótt velta FlyMe hafi aukist um 75 prósent á fyrri helmingi ársins, samanborið við árið 2005, jókst tap félagsins um helming á milli ára. Norræna lággjaldaflugfélagið tapaði 1,1 milljarði á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 560 milljóna króna tap í fyrra. 1.9.2006 00:01
Nýir eigendur greiddu út einn milljarð í arð. Jarðboranir, sem voru yfirteknar af Atorku Group fyrr á árinu, skiluðu 402 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við þrjú hundruð milljónir króna í fyrra. 1.9.2006 00:01
Actavis hækkar yfirtökutilboð sitt í Pliva Actavis hækkaði tilboð sitt í króatíska lyfjafyrirtækið Pliva um 10 prósent í gær og hljóðar það nú upp á 795 kúnur á hlut. Lokað var fyrir viðskipti með bréf í Pliva í Króatíu í gærmorgun skömmu áður en fréttin fór í loftið. Barr Pharmaceuticals sem líka vill kaupa Pliva ætlar sér viku til að hugleiða næstu skref. 1.9.2006 00:01
Óbreyttir stýrivextir Evrópski seðlabankinn ákvað að loknum vaxtaákvörðunarfundi sínum í gær að halda stýrivöxtum á evrusvæðinu óbreyttum en þeir standa nú í þremur prósentum. Greiningaraðilar telja líkur á að bankinn hækki vextina í október. 1.9.2006 00:01
Byr með Urði rekstrarvörur Byr ehf., eignarhaldsfélag Tæknivals hf., hefur keypt fyrirtækið Urðir rekstrarvörur ehf. Gengið var frá kaupunum 18. ágúst. Urðir rekstrarvörur er sérhæft fyrirtæki í sölu á rekstrar- og fylgivöru fyrir tölvur og prentara auk þess sem fyrirtækið hefur um árabil boðið öfluga viðgerðar- og tækniþjónustu á tölvubúnaði og jaðartækjum. 1.9.2006 00:01
Vöruskiptahallinn aldrei verið meiri Vöruskiptahalli var 19,1 milljarður króna í júlí og hefur ekki verið meiri frá því mælingar hófust, samkvæmt Hagstofu Íslands. Fluttar voru inn vörur fyrir 16,2 milljarða króna í mánuðinum og inn fyrir 35,2 milljarða. Tæplega tólf milljarða halli var á vöruskiptum í júlí 2005. 1.9.2006 00:01
Samdráttur í dagvöruverslun Dagvöruverslun dróst saman um 3,9 prósent í júlí samkvæmt Rannsóknarsetri verslunarinnar (RSV). Velta í dagvöruverslun var 0,6 prósentum minni í júlí en á sama tíma í fyrra. Mestur samdráttur varð í áfengiskaupum, eða 18,2 prósent milli ára. 1.9.2006 00:01
Tap Blaðsins var í takt við áætlanir Sigurður G. Guðjónsson, stjórnarformaður Árs og dags, útgefanda Blaðsins, segir að tap félagsins á síðasta rekstrarári hafi verið í takt við þær áætlanir sem lagt var upp með. Það sé eðlilegt fyrir fjölmiðlafyrirtæki sem byrji frá grunni. Sigurður gefur ekki upp nákvæmar tölur. 1.9.2006 00:01
Síminn og OR ræðast áfram við Á næstu vikum skýrist hvort verður af samstarfi um rekstur fjarskiptaneta Símans og Orkuveitu Reykjavíkur. Viðræður fyrirtækjanna halda áfram, en Orkuveitan kaupir ekki kerfi Símans. 1.9.2006 00:01