Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hlutur Nasdaq í LSE eykst Bandaríski hlutabréfamarkaðurinn Nasdaq segist hafa aukið við hlut sinn í kauphöll Lundúna í Bretlandi (LSE) og nemi hann nú 22,7 prósentum. 10.5.2006 15:46
Hollinger tapaði rúmum 800 milljónum króna Bandaríska dagblaðaútgáfan Hollinger International tapaði 11,7 milljónum Bandaríkjadölum, jafnvirði 824,6 milljóna íslenskra króna, á fyrsta ársfjórðungi 2006. Tapið nemur 13 sentum á hlut. Þetta er ófullnægjandi afkoma, að sögn stjórnar útgáfunnar. 10.5.2006 15:06
Færri íbúðalán Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu alls 3 milljörðum króna í síðasta mánuði. Þar af voru rúmlega 2,8 milljarðar sem tilheyra almennum lánum og tæpar 200 milljónir sem tilheyra leiguíbúðalánum. Þetta er samdráttur á milli mánaða og sama tíma í fyrra en það sem af er árinu hafa umsvif á fasteignamarkaði verið minni en á sama tíma í fyrra. 10.5.2006 10:34
Hlutabréf hækkuðu í Japan Gengi hlutabréfa lækkaði töluvert í kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag, m.a. vegna styrkingar jensins gagnvart dollar. Það kemur fyrirtækjum í útflutningi illa. Nikkei-225 hlutabréfavísitalan lækkaði um 1,39 prósent, 238,98 punkta, og endaði í 16.951,93 stigum. 10.5.2006 09:52
Dagsbrún tapaði 195 milljónum króna Dagsbrún hf. tapaði 195 milljónum króna í rekstri á fyrstu þremur mánuðum ársins. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaður fyrirtækisins 199 milljónum króna. Hagnaður fyrir afskriftir, vexti og skatta nam 662 milljónum króna en var 727 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi 2005. Þá námu rekstrartekjur Dagsbrúnar hf. 4,88 milljörðum króna en það er aukning um 43 prósent. 9.5.2006 17:01
Gullverð ekki hærra í aldarfjórðung Gullverð hækkaði um 19,90 Bandaríkjadali í framvirkum samningum á mörkuðum í New York í Bandaríkjunum í dag og endaði í 699,90 dölum á únsu. Verðið hefur ekki verið jafn hátt síðan í október árið 1980 en þá fór verð á únsu í 850 dali. Fjármálasérfræðingar segja verðið ekki undrunarefni í sjálfu sér heldur sé það athyglisvert hversu mikil hækkunin hafi verið. 9.5.2006 16:16
AOL segir upp 1.300 manns Bandaríska netveitan American Online (AOL) greindi frá því í dag að hún ætli að segja upp 1.300 manns, sem er um 7 prósent allra starfsmanna fyrirtækisins. Þá mun fyrirtækið loka þremur skrifstofum sínum í Bandaríkjunum. 9.5.2006 15:39
Olíuverð hækkaði í dag Olíuverð fór rétt yfir 70 dollara markið á helstu mörkuðum í dag vegna óvissu um hvort Íranar íhugi að draga úr olíuframleiðslu sinni vegna yfirvofandi refsiaðgerða vegna kjarnorkuáætlunar landsins. Íran er annað stærsta olíuframleiðsluríkið innan OPEC og gæti samdráttur á olíuframleiðslu landsins haft áhrif á olíuframboð á heimsvísu. 9.5.2006 15:13
Olíutunnan yfir 70 dollurum Verð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu mörkuðum í dag í kjölfar vaxandi spennu vegna kjarnorkuáætlunar Írana, sem er annað stærsta landið innan OPEC, samtaka olíuframleiðsluríkja, og það fjórða stærsta á heimsvísu. Stjórnvöld í Íran hafa hótað að draga úr olíuframleiðslu sinni vegna yfirvofandi refsiaðgerða en það hefur töluverð áhrif á olíuframboð. 8.5.2006 09:32
Mjúk lending sögð líklegust Mjúk lending hagkerfisins er langlíklegust, segir Leif Beck Fallesen, ritstjóri og framkvæmdastjóri Danska viðskiptablaðsins Börsen. Fallesen flutti erindi á ársfundi Útflutningsráðs Íslands sem haldinn var í Salnum í Kópavogi í gær. 6.5.2006 06:00
Spá 1,1 prósents verðbólgu í maí Greiningardeild Landsbankans spáir 1,1 prósents verðbólgu í endurskoðaðri verðbólguspá sinni fyrir maí. Fyrri spá deildarinnar hljóðaði upp á 0,8 prósenta hækkun. Nýr grunnur vísitölunnar hefur einnig áhrif til hækkunnar vísitölunnar. 5.5.2006 17:07
Eigið fé neikvætt hjá RÚV Eigið fé Ríkisútvarpsins (RÚV) var neikvætt um 186,2 milljónir í lok síðasta árs en það nam 10,2 milljónum við upphaf árs. Í ársuppgjöri RÚV fyrir síðasta ár segir að stofnunin standi á tímamótum. Stjórnvöld áformi að breyta því í hlutafélag um mitt þetta árið. Samhliða því verða eignastaða þess metin og eiginfjarstaðan bætt með framlagi úr ríkissjóði. 5.5.2006 14:08
Fáar nýráðningar í Bandaríkjunum Nýráðningar voru með minnsta móti í Bandaríkjunum í síðasta mánuði, samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar Bandaríkjanna. Nýráðningar voru 138.000 talsins og er það með minnsta móti samanborið við síðustu sex mánuði. Laun hafa hins vegar hækkað nokkuð og vekur það ugg manna um yfirvofandi verðbólgu. Atvinnuleysi stóð í stað á milli mánaða en það mældist 4,7 prósent í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. 5.5.2006 13:08
Kögun tapaði 100 milljónum Kögun hf. og dótturfélög fyrirtækisins töpuðu 100 milljónum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er 195 prósenta viðsnúningur frá síðasta ári þegar fyrirtækið skilaði 105 milljóna króna hagnaði. Tap Kögunar fyrir skatta nam 120 milljónum króna. Kögun hf. verður skráð úr Kauphöll Íslands gangi yfirtökutilboð Skoðunar ehf. í fyrirtækið eftir. 5.5.2006 10:52
Olíuverð hækkaði lítillega Olíuverð hækkaði lítillega á mörkuðum í dag í kjölfar lækkana síðustu daga og fór yfir 70 dollara markið á ný á helstu mörkuðum. Verð á olíu, sem afhent verður í næsta mánuði, hækkaði um 14 sent í kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum og stendur verðið í 70,08 dollurum á tunnu. Verð á Norðursjávarolíu hækkaði um 21 sent á markaði í Lundúnum í Bretlandi og stendur nú í 70,50 dollurum á tunnu. 5.5.2006 10:17
Seðlabankinn segir vandasama siglingu framundan Seðlabanki Íslands sendi í gær frá sér skýrslu um fjármálastöðugleika hér. Davíð Oddsson Seðlabankastjóri segist vilja sjá meiri merki um að dragi úr útlánum viðskiptabankanna og að staða Íbúðalánasjóðs sé óviðunandi. Á heildina litið segir bankinn stöðuna þó góða. 5.5.2006 07:45
Minni innflutningur í apríl Vörur voru fluttar hingað til lands fyrir 27 milljarða króna í síðasta mánuði ef marka má bráðabirgðatölur um innheimtu virðisaukaskatts. Þetta kemur fram í Vefriti Fjármálaráðuneytisins í dag. Þetta er 6 milljörðum krónum minna en í mars. 4.5.2006 16:53
Olíuverð lækkaði Olíuverð lækkaði um rúman dal á helstu mörkuðum í dag í kjölfar þess að orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna greindi frá því í vikulegri greinargerð sinni að olíubirgðir í landinu hefðu aukist. Þetta er annar dagurinn í röð sem olíuverð lækkar. 4.5.2006 15:57
Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi Stjórn Seðlabanka Bretlands ákvað á fundi sínum í morgun að halda stýrivöxtum í landinu óbreyttum. Stýrivextir í Bretlandi hafa staðið óbreyttir í 4,5 prósentum síðastliðna níu mánuði. Almennt var ekki búist við vaxtabreytingum. 4.5.2006 12:07
Hagnaður Shell jókst á milli ára Hollenska olíufélagið Royal Dutch Shell hagnaðist um 3,31 milljarð punda á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta jafngildir því að olíufélagið hafi hagnast um 1,5 milljónir punda, rúmar 205 milljónir íslenskar krónur á klukkustund frá janúar til marsloka. 4.5.2006 11:05
Hagnaður UBS jókst um 33 prósent Svissneski bankinn UBS hagnaðist um 3,5 milljarða svissneskra franka, jafnvirði 210 milljarða íslenskra króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er 33 prósenta aukning frá frá sama tímabili í fyrra. Stór hluti hagnaðarins er vegna sölu á svissneska orkufyrirtækinu Motor-Clumbus AG. 4.5.2006 09:17
Star Europe í Þýskalandi Flugfélagið Star Europe, dótturfélag Avion Group, hefur hafið starfsemi í Þýskalandi. Félagið fékk nýlega útgefið flugrekstrarleyfi frá þýskum flugmálayfirvöldum og tók ferlið aðeins þrjá mánuði. Venjan er að slíkt ferli taki 12 – 18 mánuði. Framkvæmdastjóri Star Europe er Martin Greiffenhagen. Martin er þýskur að uppruna og hefur áratuga reynslu úr flugiðnaði. 3.5.2006 16:36
Lokað fyrir viðskipti í Eurotunnel Breska fjármálaeftirlitið hefur lokað fyrir viðskipti með hlutabréf í félaginu Eurotunnel í kauphöll Lundúna í Bretlandi (LSE). Eurotunnel rekur umferðargöng undir Ermarsund á milli Bretlands og Frakklands. Ástæða lokunarinnar er sú að stjórn Eurotunnel skilaði ekki uppgjöri fyrir síðasta ár áður en lokafrestur rann út. 3.5.2006 12:35
Easyjet tapaði 5,5 milljörðum króna Breska lággjaldaflugfélagið Easyjet tapaði 40,3 milljón pundum, jafnvirði rúmlega 5,5 milljarða íslenskra króna, fyrir skatta í mars á sex mánaða tímabili. Á sama tímabili í fyrra tapaði fyrirtækið 21,6 milljón pundum. Helsta ástæða tapsins er 49 prósenta hækkun á eldsneytisverði og páskahátíðin, sem var í apríl. Þrátt fyrir þetta er búist við að afkoma fyrirtækisins verði allt að 15 prósent meiri en á síðasta ári. 3.5.2006 12:02
Þórólfur Árnason ráðinn forstjóri Skýrr Þórólfur Árnason hefur verið ráðinn í starf forstjóra Skýrr hf. Skýrr hf., sem er eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði upplýsingatækni með 200 starfsmenn, er dótturfélag Kögunar hf. en það er í meirihlutaeigu Dagsbrúnar hf. EJS er dótturfélag Skýrr hf. 3.5.2006 11:03
Verðbólga innan OECD 2,6 prósent í mars Verðbólga mældist að meðaltali 2,6 prósent í mars á 12 mánaða tímabili í löndum innan Efnhags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD). Í febrúar mældist verðbólgan 2,8 prósent á 12 mánaða tímabili. Verðbólga innan OECD hækkaði um 0,4 prósent frá febrúar til mars. Á milli janúar og febrúar hækkaði hún hins vegar um 0,2 prósent. 3.5.2006 10:02
5,5 prósenta hækkun vísitölu neysluverðs Vísitala neysluverðs hækkaði um 5,5, prósent frá apríl 2005 til jafnlengdar á þessu ári. Verðbólga hefur einkum aukist síðustu mánuði vegna mikilla hækkana á eigin húsnæði og eldsneytisverði, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,4 prósent. 3.5.2006 09:42
Methagnaður hjá Landsbankanum Hagnaður Landsbankans nam 14,3 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins. Hagnaður fyrir skatta nam 17,3 milljörðum króna en til samanburðar nam hann á sama tímabili í fyrra 7,4 milljörðum króna. Þetta er methagnaður í sögu bankans. 2.5.2006 10:28
Milestone kaupir Sjóvá Glitnir banki hf hefur selt allan sinn hlut í tryggingarfélaginu Sjóvá í kjölfar tilboðs sem bankanum barst í 33,4 prósenta hlut hans í tryggingarfélaginu. Kaupandi er Milestone ehf., sem er í eigu Karls Wernerssonar og fjölskyldu. Milestone ehf. átti fyrir 66,6 prósenta í Sjóvá en er eftir kaupin alfarið í eigu þess. 2.5.2006 10:17
Nýr forstjóri Faroe Ship Jóhanna á Bergi hefur verið ráðin forstjóri Faroe Ship frá og með 22. maí nk. Jóhanna tekur við af Árna Joensen sem fer á eftirlaun eftir tæplega 30 ára starf sem forstjóri fyrirtækisins. Árni verður stjórnarformaður Faroe Ship. 2.5.2006 09:58