Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dræmar viðtökur á yfirtökutilboði Actavis Group hefur sent stjórnendum króatíska semheitalyfjafyrirtækisins PLIVA óformlegt tilboð um kaup á öllu hlutafé félagsins, sem skráð er í kauphöllinni í Króatíu og London. Tilboðið kveður á um að greitt verði HRK 570 fyrir hvern hlut í félaginu, sem er um 35 prósenta yfirverð miðað við meðalgengi hlutabréfa félagsins síðustu þrjá mánuði. Markaðsvirði félagsins, að teknu tilliti til yfirverðs, er sagt vera um 1,6 milljarðar dollara eða um 110 milljarðar króna. 18.3.2006 00:01
Styrk staða áréttuð Landsbanki Íslands sendi í gær upplýsingar um stöðu bankans til Kauphallar Íslands, en það var sagt gert í ljósi nýlegrar umræðu í erlendum fjölmiðlum og greininga á íslenskum efnahagsmálum og bankakerfinu hér. 18.3.2006 00:01
Lítil verðbólga í samræmdri mælingu Samræmd vísitala neysluverðs í ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins hækkaði um 0,3 prósent milli janúar og febrúar meðan lækkaði hér um 0,2 prósent. Hér mælist 12 mánaða verðbólga í samræmdri mælingu þar sem ekki er tekið tillit til húsnæðisverðs 1,2 prósent. 17.3.2006 13:17
Actavis býður í króatískt samheitalyfjafyrirtæki Actavis Group hefur gert óformlegt tilboð í króatíska samheitalyfjafyrirtækið Pliva, sem skráð er í kauphöllinni í Króatíu og London. Markaðsvirði félagsins er um 1,6 milljarðar dollara eða um 110 milljarðar króna. 17.3.2006 12:35
Stofnandi Opera í Noregi látinn Geir Ivarsøy sem stofnaði Opera Software með Jóni S. von Tetzchner í Noregi árið 1995 lést fyrir um viku síðan eftir langvinna baráttu við krabbamein. Á vef Opera Software í dag er hans minnst, en Geir verður borinn til grafar í dag frá Grefsen kirkju í Osló. 17.3.2006 12:34
Actavis býður í PLIVA Actavis Group hefur sent stjórnendum króatíska semheitalyfjafyrirtækisins PLIVA, óformlegt tilboð um kaup á öllu hlutafé félagsins, sem skráð er í kauphöllinni í Króatíu og London. 17.3.2006 11:46
Samræmd vísitala neysluverðs 100,8 stig Samræmd vísitala neysluverð í EES-ríkjunum var 100,9 stig í febrúar og hækkaði um 0,3 prósent frá fyrri mánuði. Vísitalan fyrir Ísland var 100,8 stig og lækkaði hún um 0,2 prósent frá fyrri mánuði. Verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu var mest í Lettlandi. 17.3.2006 09:32
Hlutur í Livedoor seldur Yasuhide Uno, forstjóri japanska kapalfyrirtækisins Usen Corp., ákvað í gær að kaupa sjálfur allan hlut Fuji Television Network í japanska netfyrirtækinu Livedoor fyrir 9,5 milljarða jena, jafnvirði 5,7 milljarða íslenskra króna. Lokað var fyrir öll viðskipti í kauphöllinni í Tókýó í Japan 18. janúar síðastliðinn þegar grunur vaknaði um misferli hjá stjórnendum fyrirtækisins. 17.3.2006 00:01
Segir bankana standa vel Greiningardeild hollenska bankans ABN Amro segir fjármögnun íslensku bankanna trausta og greiðslugetu næga. 17.3.2006 00:01
Fastagjöld hjá Telenor Norska fjarskiptafyrirtækið Telenor hefur innleitt fasta verðskrá fyrir fastlínusímtöl innanlands. Þetta er bylting í 150 ára sögu Telenor, sem aldrei fyrr hefur boðið viðskiptavinum sínum fast gjald fyrir símaþjónustu. Á sama tíma lækkaði fyrirtækið verð á millilandasímtölum um 20 prósent auk þess sem kostnaður við að hringja úr fastlínusíma í farsíma var lækkaður. 17.3.2006 00:01
Hermenn fá gervihné Össurar Fjallað var um nýtt og háþróað gervihné gervilima- og stoðtækjafyrirtækisins Össurar í úttekt Los Angeles Times síðasta föstudag um stuðning stjórnvalda í Bandaríkjunum við hermenn sem tapað hafa útlim í Íraksstríðinu. 17.3.2006 00:01
Meiri krónubréf Þýski ríkisbankinn Rentenbank gaf út krónubréf fyrir 2 milljarða krónur á miðvikudag til tveggja ára og bera bréfin 9 prósenta vexti. Þetta er fyrsta útgáfa krónubréfa í mars og þriðja útgáfan frá því Fitch breytti horfum á lánshæfismati ríkisins úr stöðugum í neikvæðar. 17.3.2006 00:01
SAS hefur ekki keypt í Icelandair SAS hefur neitað þeirri frétt sem birtist á vefsíðu tímaritsins Travel People að félagið hafi eignast hlut í Icelandair. 17.3.2006 00:01
Allianz mótfallið yfirtökutilboði Merck Tryggingafyrirtækið Allianz, sem er stærsti hluthafinn í þýska lyfjafyrirtækinu Schering, sagði í dag að það væri mótfallið yfirtökutilboði samkeppnisaðilans Merck en ætli engu að síður að íhuga það. Þýski lyfjarisinn Merck gerði á mánudag óvinveitt yfirtökutilboð í Schering og nam tilboð fyrirtækisins 77 evrum á hlut. Í heild hljóðaði yfirtökutilboðið upp á 14,6 milljarða evrur. 16.3.2006 16:27
Grísk farsímafyrirtæki höfðu samráð Gríska fjarskiptastofnunin sektaði í dag þrjú stærstu farsímafyrirtæki landsins fyrir að hafa allt frá síðasta ári haft samráð um gjaldskrá smáskilaboða. Sektin sem hvert fyrirtæki verður að greiða nemur einni milljón evra, jafnvirði rúmra 84,4 milljóna íslenskra króna. 16.3.2006 16:00
365 Media Scandinavia stofnað Dagsbrún hf. hefur stofnað félagið 365 Media Scandinavia A/S í Danmörku. Í tilkynningu til Kauphallar Íslands segir að stofnun félagsins marki fyrstu skref félagsins í átt að útgáfu fríblaðs í líkingu við Fréttablaðið í Danmörku. 16.3.2006 13:55
Lánshæfi ríkissjóðs staðfest Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor’s staðfesti í dag lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs á langtímaskuldbindingum í erlendri mynt AA- og AA+ fyrir langtímaskuldbindingar í íslenskum krónum. Einnig var staðfest einkunnin A-1+ fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum. Horfur um lánshæfismatið eru stöðugar, að mati Standard & Poor’s. 16.3.2006 13:42
Stýrivextir hækka í Noregi Stjórn Seðlabanka Noregs ákvað í dag að hækka stýrivexti um 0,25 prósent og standa stýrivextir í landinu nú í 2,5 prósentum. Búist var við hækkuninni og kemur hún ekki á óvart. Í yfirlýsingu frá bankanum kemur fram að stefna bankans sé að hækka stýrivexti í Noregi jafnt og þétt í litlum skrefum. 16.3.2006 13:27
Krónubréfaútgáfa þrátt fyrir neikvæða umfjöllun Þýski ríkisbankinn Rentenbank gaf út krónubréf fyrir 2 milljarða krónur í gær. Útgáfan er til tveggja ára og bera bréfin 9 prósenta vexti. Þetta er fyrsta útgáfa krónubréfa í mars og þriðja útgáfan frá því Fitch breytti horfum á lánshæfismati ríkisins úr stöðugum í neikvæðar. 16.3.2006 12:49
SAS hefur ekki keypt í Icelandair SAS hefur neitað þeirri frétt sem birtist í tímaritinu Travel People að félagið hafi eignast hlut í Icelandair en játar að samstarf félagsins við Icelandair verði haldið áfram. „Það eru engar viðræður yfirhöfuð í gangi um að við verðum eigendur í Icelandair. Þetta eru algjörlega rangar upplýsingar,“ segir Bertil Ternert, upplýsingafulltrúi SAS við Dagens Industri. 16.3.2006 11:01
Usen kaupir í Livedoor Yasuhide Uno, forseti japanska kapalfyrirtækisins, Usen Corp. ákvað í dag að kaupa sjálfur allan hlut Fuji Television Network í japanska netfyrirtækinu Livedoor fyrir 9,5 miljarða jena, jafnvirði 5,7 milljarða íslenskra króna. 16.3.2006 10:32
Stærstu eigendur Livedoor íhuga sölu Forsvarsmenn Fuji Television Network, eins stærsta hluthafa í japanska netfyrirtækinu Livedoor, eru sagðir vera að íhuga að selja 12,5 prósenta hlut sinn í fyrirtækinu. Lokað varð fyrir öll viðskipti í kauphöllinni í Tókýó í Japan 18. janúar á þessu ári þegar grunur vaknaði um misferli hjá fyrirtækinu. 16.3.2006 10:07
Hlutabréf lækkuðu í Japan Gengi hlutabréfa lækkaði nokkuð í kauphöllinni í Japan í dag í kjölfar þess að fjárfestar settu inn í áætlanir sínar yfirvofandi hækkun stýrivaxta í landinu. Nikkei-225 hlutabréfavísitalan lækkaði um 1,37 prósent og endaði í 16.096,21 stigi. Í gær hækkaði gengi hlutabréfanna hins vegar um hálf prósent. 16.3.2006 09:35
Snertir rekstur Bakkavarar lítið Breska matvælafyrirtækið Northern Foods sendi frá sér afkomuviðvörun í annað skipti á árinu en félagið er einn helsti samkeppnisaðili Bakkavarar í kældum matvörum í Bretlandi. 16.3.2006 00:01
Sögulegur hagnaður Sparisjóðs Svarfdæla Sparisjóður Svarfdæla skilaði 403 milljóna króna hagnaði á síðasta ári en um methagnað er að ræða í sögu sparisjóðsins. Þetta er 220 milljónum króna meira en árið 2004. Arðsemi eigin fjár var 58,3 prósent á síðasta ári en var 36,4 prósent árið á undan. 16.3.2006 00:01
Hagnaður KEA minnkar Hreinar rekstrartekjur Kaupfélags Eyfirðinga fyrir árið 2005 drógust saman vegna minni hagnaðar af hlutabréfum. Nam hagnaðurinn 263 milljónum króna samanborið við 1.959 milljónir króna árið 2004. Heildareignir félagsins nema 5.101 milljónum króna og skuldir og skuldbindingar 840 milljónum króna. Bókfært eigið fé er 4.261 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 84 prósent. 16.3.2006 00:01
Fjármálaeftirlitið breytir áfallaviðmiðum banka Breytt hefur verið reglum um áfallaviðmið fjármálastofnana vegna innlendrar hlutabréfaeignar. Bankarnir stóðust settar kröfur í nýju álagsprófi. Ekki var tekið mið af nýtilkominni veikingu krónunnar. Fjármálaeftirlitið hefur breytt reglum um um áfallaviðmið fjármálastofnana vegna hlutabréfaeignar í innlendum félögum og bætt við lið í áfallapróf þar sem reiknuð eru áhrif breytinga á virði erlendra gjaldmiðla á eiginfjár- og áhættugrunn fjármálafyrirtækja. 16.3.2006 00:01
Hráolíuverð lækkaði Heimsmarkaðsverð á hráolíu, sem afhent verður í næsta mánuði, lækkaði um 40 sent á mörkuðum á Wall Street í Bandaríkjunum í dag og endaði í 62,70 dollurum á tunnu. Verð á Brent Norðursjávarolíu lækkaði um 26 sent í kauphöllinni í Lundúnum og endaði í 63,71 dal á tunnu. 15.3.2006 16:58
Tölvuþrjótar herja á Ebay Vírusvarnarfyrirtækið McAfee varaði í dag við tölvuskeytum þar sem fólki er ýmist sagt að það hafi unnið glaðning á uppboðsvefnum Ebay, þurfi að greiða fyrir vöru á uppboðsvefnum og verði að bregðast við. Í póstinum er hlekkur á falsaða útgáfu af uppboðssíðunni á netinu og þarf fólk að gefa þar upp ýmsar persónuupplýsingar. 15.3.2006 15:38
Ríkisstjórn Japans vill óbreytta stýrivexti Ríkisstjórn Japans hefur þrýst á stjórn Seðlabanka Japans að halda stýrivöxtum óbreyttum, eða nálægt núllinu, þar til stjórnvöldum hafi tekist að sporna við viðvarandi verðhjöðnun í landinu. 15.3.2006 14:57
Methagnaði spáð hjá BMW Búist er við methagnaði í sögu þýska bílaframleiðandans BMW á þessu ári. Hagnaður fyrirtækisins fyrir skatta á síðasta ári nam 3,28 milljörðum evrum, jafnvirði 277 milljarða íslenskra króna, en það er 8,3 prósentum minna en árið á undan. 15.3.2006 14:33
Hagræðing hafin hjá British Airways Willie Walsh, framkvæmdastjóri breska flugfélagsins British Airways, er byrjaður að sveifla niðurskurðarhnífnum og ætlar að segja upp 400 manns hjá flugfélaginu í hagræðingarskyni. Störfin sem lögð verða niður eru hjá símsvörunarþjónustu fyrirtækisins í Belfast á Írlandi sem tók við bókunum í flug á vegum félagsins. Ástæðan fyrir þessu er sögð sú, að bókunum á netinu hefur fjölgað mikið. 15.3.2006 13:12
Mesta atvinnuleysi í þrjú ár Atvinnulausum fjölgaði um 14.600 í Bretlandi á milli mánaða í febrúar en það er mesta fjölgun atvinnulausra frá árinu 1992. Í lok síðasta árs voru 1,53 milljónir manna án atvinnu í Bretlandi en fleiri hafa ekki verið atvinnulausir síðastliðin þrjú ár. 15.3.2006 10:44
Hefur áhyggjur af fjárlagahalla Bandaríkjanna Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, hefur látið í ljósi áhyggjur sínar vegna aukins fjárlagahalla Bandaríkjanna, en búist er við metfjárlagahalla á þessu ári. Bernanke segir að koma verði í veg fyrir viðvarandi fjárlagahalla og benti sérstaklega á að fjölgun ellilífeyrisþega geti orðið birgði á hinu opinbera á næstu árum. 15.3.2006 09:47
Hlutabréf hækkuðu í Japan Gengi flestra hlutabréfa hækkaði í kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag að undanskildum bréfum í hátæknifyrirtækinu Sony, sem frestaði útgáfu á PlayStation 3 leikjatölvunni fram í nóvember á þessu ári. 15.3.2006 09:20
Opera í þýskum farsímum Debitel Norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software gerði í gær tveggja ára samning við þýska fjarskiptafyrirtækið Debitel. Samningurinn kveður á um að Debitel býður viðskiptavinum sínum upp á stuðning við öll stýrikerfi Opera, Opera Mini, Opera Mobile og Opera Platform, í farsímum fyrirtækisins. 15.3.2006 01:13
Rekstrarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja verður bætt Árni Mathiesen fjármálaráðherra kynnti á mánudag frumvarp og breytingar á reglugerðum er varða fyrirfram skráningu nýsköpunarfyrirtækja auk breytinga sem geri lífeyrissjóðum kleift að styðja fyrirtæki í nýsköpun og hátækni. 15.3.2006 01:13
Sala á osti eykst Osta- og smjörsalan hagnaðist um 6,4 milljónir króna á árinu 2005. Hagnaðurinn árið á undan var 94 milljónir en innifalinn í því var 49 milljóna króna hagnaður af sölu Íslensks markaðar. Sala á ostum og viðbiti jókst töluvert árið 2005. 15.3.2006 01:13
TM íhugar að skrá sig úr Kauphöll Í máli Gunnlaugs Sævars Gunnlaugssonar, stjórnarformanns TM, á aðalfundi félagsins kom fram að taka þyrfti ákvarðanir um hvort það ætti að vera áfram skráð í Kauphöllina. Félagið uppfyllir ekki skilyrði um dreifða eignaraðild. 15.3.2006 01:13
Krónufjárfestar brenndir Bæði innlendir og erlendir fjárfestar hafa tapað töluverðum fjárhæðum við veikingu krónunnar undanfarna daga. 15.3.2006 01:13
Flugfélagið til sölu? Orðrómur er uppi um að Flugfélag Íslands sé til sölu eins og margt annað í eignasafni FL Group. 15.3.2006 01:13
Launaskrið á bankastjórum Forstjórar viðskiptabankanna fengu allir yfir áttatíu milljónir króna í laun á síðasta ári. Mest hækkuðu laun Sigurjóns Þ. Árnasonar og Jóns Sigurðssonar á milli ára. 15.3.2006 01:13
Staða Seðlabankans erfið Horfur eru á að verðbólga verði nálægt sex prósentum í vor. Búist er við að veiking krónunnar gangi eilítið til baka. 15.3.2006 01:13
Opna gleraugnaverslun í apótekum Lyf og heilsa hefur opnað tvær nýjar gleraugnaverslanir í apótekum sínum á höfuðborgarsvæðinu undir heitinu Augastaður. Verslanirnar eru í nýju apóteki Lyfja og heilsu í Hamraborg í Kópavogi og í JL-húsinu í Vesturbæ Reykjavíkur. Í fyrra var einnig opnuð verslun í Apótekaranum í Hafnarstræti á Akureyri. 15.3.2006 01:13
Hlutur Fons í sölumeðferð Tæplega 62 prósenta hlutur Fons Eignarhaldsfélags, sem er í eigu þeirra Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, í Plastprenti, er nú í sölumeðferð hjá MP Fjárfestingabanka hf. 15.3.2006 01:13