Fleiri fréttir

Vinstri-slys og varnarleysi?!

Herstjórnarlistin sem við getum átt von á frá Sjálfstæðisflokknum á næstu misserum mun  hljóma kunnuglega í eyrum margra. Slagorð um vinstri- hættur og varnarleysi munu taka að hljóma á ný og nýrri pólitískri stöðu verður mætt á stöðnuðum sagnfræðilegum forsendum.

Krónan veikir landsbyggðina

Ein meginástæða hins háa gengis eru að mati hagspekinga stórframkvæmdirnar á Austurlandi og húsbyggingasprengjan á höfuðborgarsvæðinu.

Sextán milljarðar á silfurfati

Í löndum þar sem fyrirtæki hafa verið færð úr ríkiseigu í einkaeign undanfarin ár hafa víða verið sett sérstök lög til að tryggja,að einkavæðingin nái tilgangi sínum og rétt verð fáist fyrir eignirnar. Hér hafa engin slík ákvæði verið leidd í lög.

Vandræðagangur ESB-sinna

Áhrif lagagerða ESB á Íslandi - Hjörtur J. Guðmundsson sagnfræðinemi Nú kveður við algerlega nýjan tón í málflutningi Evrópusambandssinna í þessum efnum sem hingað til hefur allur snúist um það hversu hátt hlutfallið lagagerða væri í gildi hér á landi en ekki um vægi einstakra lagagerða

Jórsalafarar

Hér er fjallað um kvikmyndina Kingdom of Heaven sem segir frá ævintýrum krossferðariddara sem missir trúna, bókaflokk Péturs Gunnarssonar Skáldsögu Íslands, Saladin og Bin Laden, dýralífsmyndir í sjónvarpi og loks er minnst á klíkuveldið sem Ingibjörg Sólrún talaði um á landsfundi Samfylkingarinnar...

Leiftursókn frá vinstri

Sjálfstæðismenn í Reykjavík virðast fremur farnir að leita að arftaka Ingibjargar Sólrúnar en arftaka Davíðs Oddssonar.

Að falla í fyrstu lotu

"Blaðið" og landsfundur Samfylkingarinnar - Gísli Gunnarsson prófessor  "Blaðið" hefur ekki viljað birta þessa augljósu skýringu mína og síðast í dag neitaði ritstjórinn í viðtali við mig að láta blað sitt skýra frá henni. Ljóst er að þetta "stórhlutlausa" blað vill ekki birta neitt sem skyggt gæti á kenningu þess um pizzur, bjór, rútur og kosningasvindl. Því skal haldið áfram allt í rauðan dauðann!

Þær eru vanmetnar

Þó að laun kvenna hækki töluvert með námi á Bifröst, fá þær samt mun lægri laun á vinnumarkaði en karlar sem útskrifast þaðan.

Glæsileg framtíðarsýn

Með tillögum sínum um eyjaborgina Reykjavík sýnir borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna að hann hugsar stórt og tekur með þeim frumkvæðið í baráttunni sem er framundan um stjórnartaumana í Reykjavík.

Upphafið að einhverju...

Maður er farinn að binda smá vonir við næstu borgarstjórnarkosningar. Líklega verður kosið um skipulagsmálin. Vinstri flokkarnir þurfa nú að svara hugmyndum sjálfstæðismanna – helst toppa þær. Þetta gæti jafnvel verið upphafið að einhverju...

Rónalíf

Hér er fjallað um morgunverk rónanna í Reykjavík, lífið á bekkjunum á Lækjartorgi og inni á veitingastaðnum Kaffi Skít, óþrifaðinn í bænum um helgar, sómasamloku sem datt af himnum ofan og stefnu Samfylkingarinnar, ríkisstjórnarinnar og Moggans í varnarmálum...

Uppstokkun í ríkisstjórninni

Hér er fjallað um mögulega uppstokkun í ríkisstjórninni sem Morgunblaðið hefur boðað, breytta verkaskiptingu í stjórninni, Sjálfstæðisflokkinn og heilbrigðisráðuneytið og hinn magnaða heilbrigðisráðherra og óvin lækna- og lyfjamafíanna, Sighvat Björgvinsson...

Bankasalan - vonandi sagan öll

Hér er fjallað um fyrsta hluta af fréttaskýringu um sölu Búnaðarbanka og Landsbanka sem birtist í Fréttablaðinu, Halldór Ásgrímsson sem hefur áhyggjur af göngustígum á Esjunni og Davíð Oddsson sem skipar sendiherra eins og hann eigi lífið að leysa, en einnig er minnst á malaríu og skordýraeitrið DDT...

Ósamkvæmni Vinstri grænna

Sjálfsagt er að ræða á opinberum vettvangi um álver og stóriðju og eðlilegt að um slík efni séu skiptar skoðanir. En þegar til lengri tíma er litið er hætt við að menn muni fremur minnast Vinstri grænna vegna umhverfisspellvirkjanna í Nauthólsvíkinni, gangi þau fram, heldur en deilnanna um orkusölu til álvers í Helguvík.

Friðartækifæri í Darfur

Darfur í Súdan - Kofi A. Annan og Alpha Oumar Konare Deilendur [í Darfur í Súdan] verða svo að komast að pólitísku samkomulagi með traustum tryggingum fyrir varanlegum friði. Afríkusambandið og alþjóðasamfélagið í heild bæði geta og verða að koma til hjálpar. En um síðir munu eingöngu Súdanbúar sjálfir geta tryggt að friður ríki.

Vörumst ríkisvæðingu stjórnmálanna

Björgvin Guðmundsson skrifar

Frá árinu 2000 hafa ríkisframlög til stjórnmálaflokka hækkað um rúmlega sextíu prósent. Í ár nema framlög skattgreiðenda til flokkanna rúmum 300 milljónum króna. Það er vel yfir milljarður króna á einu kjörtímabili, hækki upphæðin ekki á þeim tíma.

Fálkaorðan orðin glingur Habsburgara

Og þótt veraldleg gæfa Habsburgaranna hafi sannarlega verið mikil gegnum tíðina, þá finnst mér skorta töluvert á andleg afrek hennar - sérstaklega miðað við hve þrálát hefur verið tilvist ættarinnar og setur hennar í hásætum hingað og þangað um Evrópu.

Faðerni og pólitískar deilur

Afar sérkennilegt dómsmál hefur komist í fjölmiðla undanfarna daga, sem snýst um að Lúðvík Gizurarson lögfræðingur er nú á efri árum að reyna að komast að því hver var hans raunverulegi faðir - því hann fékk nýlega staðfest með DNA-rannsókn að Gizur sá Bergsteinsson sem hann hefur alla ævi kennt sig við, hann var hreint ekki raunverulegur faðir hans.

Að byggja úti í eyjunum

Hér er fjallað um djarfar skipulagshugmyndir sjálfstæðismanna sem Steinunn Valdís segir að þeir hafi stolið frá sér, málamiðlun í flugvallarmálinu, fréttaflutning af meintu kosningasvindli Ágústs Ólafs Ágústssonar og einnig er vikið að matvöru og sjónvarpsefni sem Íslendingar eru að selja í útlöndum...

Sviptingar í R-listanum

Segja má að Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri sé nú í svipaðri stöðu og þegar Árni Sigfússon tók skyndilega við leiðtogahlutverki sjálfstæðismanna nokkrum mánuðum fyrir borgarstjórnarkosningar á sínum tíma og tapaði kosningunum.

Svona eiga sýslumenn að vera

Ingibjörg Sólrún ber léttan farangur inn á formannsskrifstofu Samfylkingarinnar og inn í stjórnarráðið, þegar þar að kemur. Hún verður ekki sökuð um sérdrægni. Styrkur hennar sem stjórnmálamanns er m.a. fólginn í því, að hún hefur ekki bundið trúss sitt við hagsmunahópa og ekki heldur við jafnaðarflokka í öðrum löndum eða aðra strauma og stjórnmálastefnur.

Alþýðusambandið fer á kostum

Starfsmannaleigur - Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður Hefði aðstoðarframkvæmdastjórinn ómakað sig og fylgst með réttarhöldunum hefði hann séð að það var í raun ekki fyrr en vinnuveitandi Lettanna var yfirheyrður að kjör mannanna og ráðningarsamband skýrðist. Fram að því hafði þetta verið í þoku enda þessir ágætu menn ekki með sín mál mjög á hreinu.

Belgíska Kongó

Þorvaldur Gylfason skrifar

Leópold II var ekki einn um ódæðisverk í Afríku. Ferill annarra nýlenduvelda er einnig blóði drifinn. En Leópold var stórtækastur. Nýlenduveldin skildu ekki eftir sig lýðræði eins og þau bjuggu við heima fyrir, heldur harðýðgi, einræði og arðrán.

Herferð gegn dólgum

Hér er fjallað um stjórn Tonys Blair sem hefur skorið upp herör gegn dólgshætti í enskum borgum, bann við hettupeysum í verslunarmiðstöðvum og "happy hours" sem heyra sögunni til, sérstæða stjórnmálaskýringu Árna Mathiesen og ungan áhugamann um marsbúa...

Schröder tapar í Þýskalandi

Ein helsta ástæða þess hvers vegna hallað hefur undan fæti hjá jafnaðarmönnum í Þýskalandi er hið mikla atvinnuleysi þar í landi. Það mælist nú um 12 af hundraði sem þýðir að um fimm milljónir manna eru atvinnulausar, þar af um ein milljón í hinu þéttbýla landi Nordhrein-Westfalen.

Gömlustrákafélagið að störfum

Hér er fjallað um klíkur í íslensku samfélagi, "the old boys network", ráðhúsklíkuna og Jóhönnu Sig sem er ekki boðið sendiherraembætti, prest sem er í uppnámi, gáfumannlega umfjöllun um nýju Star Wars myndina, stelpur með Gucci töskur í Kína og Davíð sem fór hvergi...

Burt með frumskógarlögmálið

Málefnum neytenda er stöðugt gefinn meiri gaumur í íslensku samfélagi. Það hefur allt of lengi verið lenska að neytendur láti hreinlega svindla á sér.

Gott útspil Kristjáns Þórs

Staðreyndin er líka sú að Þingeyingar, og þá ekki síst Húsvíkingar, hafa unnið meira og markvissar að því að álver verði reist í þeirra heimabyggð en margir aðrir. Þeir hafa bent á verksmiðjulóð fyrir norðan bæinn og að hafnarskilyrði séu góð á Húsavík. Þá eru ónýttar orkulindir á næsta leiti og því stutt að flytja orkuna til álversins.

Misnotkun á erlendu verkafólki

Starfsmannaleigur - Halldór Grönvold aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ Alþýðusambandið er ekki að beita sér gegn erlendu verkafólki. Það er að beita sér gegn framgöngu eins og hér er lýst af hálfu fyrirtækja eins og Vislande og GT verktaka. Gegn misnotkun á erlendu verkafólki. Á slíkri starfsemi tapa allir.

Egill á nú Silfur Egils

Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Íslenska sjónvarpsfélagsins, sem m.a. rekur Skjá einn, afsalaði í dag vörumerkinu "Silfur Egils" til Egils Helgasonar, þáttastjórnanda á Stöð 2. Magnús mætti í lokaþátt Silfurs Egils og afhenti Agli afsal til staðfestingar þessu.

Steingrímur J. þingmaður ársins

Steingrímur J. Sigfússon, formðaur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs er þingmaður ársins að mati lesenda Vísis. Niðurstöður kosninga á Vísi voru kynntar í lokaþætti Silfurs Egils í dag og hlaut Steingrímur J. afgerandi kosningu. Þá er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sá einstaklingur sem lesendur Vísis vilja helst sjá á þingi.

Alvarlegt en um leið hlægilegt

Hér er fjallað um Evróvision, hið misheppnaða íslenska atriði, ömmuna frá Moldavíu, Evópusambandið og Love Parade, Norðurlandamafíuna, okrið á Íslandi, viðtal við Gísla Martein í Mogganum, vofu sem leitar að borgarandanum og örvæntingarfullan landsbyggðarþingmann úr Samfylkingu...

Kína, WalMart og skapandi eyðing

Bandarískir framleiðendur eru ekki samkeppnishæfir lengur. Þeir geta ekki keppt við undirboðin frá Kína. Og það er ekki bara tuskur og plastdót sem ber stimpilinn Made in China. Sem dæmi má nefna að framleiðsla sjónvarpstækja hefur að mestu lagst af í Bandaríkjunum. Joseph Schumpeter kallaði þetta "skapandi eyðileggingu"...

Árangur af Kínaheimsókn forsetans

Við erum friðsöm þjóð og eigum aðild að mörgum mikilvægum alþjóðastofnunum sem Kínverjar eiga mikið undir að séu þeim vinsamlegar, en þar höfum við ekki haldið uppi mikilli gagnrýni á kínverskt samfélag líkt og sumir aðrir.

Álver bóndi enn á ferð

Algerlega ótímabært er að taka af skarið um það hvort annar hvor þessara staða eða báðir eigi að njóta forgangs til orku og uppbyggingar stóriðju. Það er raunar ekki tímabært að segja neitt til um það hvort stóriðja eigi yfirleitt að rísa á þessum stöðum.

Sjá næstu 50 greinar