Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Persónuleg vandamál hrjá Singh Ekki er langt síðan kylfingurinn Vijay Singh var fyrir ofan Tiger Woods á heimslistanum í golfi eftir að hafa unnið 17 mót á árunum 2003-2005. Á síðustu misserum hefur Singh horfið af sjónarsviðinu, vegna þess sem hann sjálfur kallar “persónuleg vandamál.” 29.12.2006 20:15
Tiger: Af hverju vann ekki Federer? Kylfingurinn Tiger Woods er steinhissa á að hann skuli hafa verið tekinn framyfir tenniskappann Roger Federer sem íþróttamaður ársins að mati AP fréttastofunnar. Kjör AP, sem þykir með þeim virtari í íþróttaheiminum, var gert opinbert í gær. 27.12.2006 14:15
Wie fer í háskóla Kvennakylfingurinn Michelle Wie hefur tilkynnt að hún hafi fengið inngöngu í Stanford-háskólann í Bandaríkjunum og hefji þar nám næsta haust, eftir að hún útskrifast úr menntaskóla. Margir bjuggust við því að Wie myndi einbeita sér að golf-íþróttinni eftir menntaskóla en hún ákvað sjálf að setja menntun í fyrsta sætið. 22.12.2006 21:00
Woosnam íhugaði að segja af sér Ian Woosnam, fyrirliði Evrópuliðsins í Ryder-keppninni fyrr á þessu ári, segist hafa íhugað að segja af sér eftir að danski kylfingurinn Thomas Bjorn gagnrýndi hann harðlega fyrir að velja sig ekki í lið Evrópu. 22.12.2006 15:15
Ætlar að skáka Tiger Woods Suður-Afríkubúinn Ernie Els hefur sett í gang þriggja ára markmið til að skáka Tiger Woods. Woods er langefstur á heimslista kylfinga þar sem Els situr í fimmta sæti. 21.12.2006 00:01
Woods sigraði á mótinu sínu Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods sigraði í nótt á Target World mótinu í golfi sem fram fór í Kaliforníu, en hann skipuleggur mótið sjálfur. Woods lauk keppni á 16 höggum undir pari, fjórum höggum á undan Ástralanum Geoff Ogilvy. Aðeins 16 kylfingar tóku þátt í mótinu og var sigurinn sá annar á þremur árum hjá Woods á mótinu. Hann gaf verðlaunaféð allt til góðgerðamála. 18.12.2006 13:39
Ernie Els sigraði í Suður-Afríku Heimamaðurinn Ernie Els sigraði glæsilega á SA Airways mótinu í Suður-Afríku í dag en mótið var liður í evrópsku mótaröðinni. Els lék frábært golf á lokasprettinum og hafði betur gegn landa sínum Trevor Immelman. Els lauk keppni á 24 höggum undir pari en Immelman var þremur höggum þar á eftir. 17.12.2006 17:31
Birgir Leifur lauk keppni á pari Birgir Leifur Hafþórsson lauk keppni á SA Airlines mótinu í golfi í morgun á sléttu pari. Hann lék lokahring sinn á mótinu á þremur höggum yfir pari og endaði í 82. sæti á mótinu sem var partur af Evrópumótaröðinni og verður það að teljast mjög góður árangur á þessu sterka móti. 17.12.2006 13:47
Birgir Leifur í þremur undir pari Birgir Leifur Hafþórsson heldur áfram að spila vel á SA Airlines mótinu í golfi í Portl Elizabeth í Suður-Afríku, en hann lauk þriðja hringnum í morgun á 70 höggum eða tveimur undir pari. Hann er því á samtals þremur höggum undir pari á mótinu og er í kring um 57. sæti í mótinu. 16.12.2006 13:49
Sjöland efstur - Birgir Leifur áfram Sænski kylfingurinn Patrik Sjöland er í efsta sæti á SA Airways mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku þegar tveimur fyrstu hringjunum er lokið. Sjöland er samtals á 12 höggum undir pari eftir að hann lék á 8 undir í dag. Birgir Leifur tryggði sér naumlega áframhaldandi keppni eftir góðan leik í dag. Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu sem halda áfram í fyrramálið. 15.12.2006 16:15
Birgir Leifur í góðri stöðu Birgir Leifur Hafþórsson er kominn með annan fótinn í gegn um niðurskurðinn á SA Airways mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku eftir að hann lauk öðrum hring í dag á þremur höggum undir pari og er því á höggi undir pari samanlagt. Hann er sem stendur í 58. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum þegar skammt er eftir af öðrum hring og komast 70 efstu menn áfram á mótinu. 15.12.2006 15:44
Birgir Leifur á tveimur yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson lauk fyrsta keppnisdeginum á SA Airways mótinu í golfi á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari í dag. Mótið fer fram í Suður-Afríku og er hluti af evrópsku mótaröðinni. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu næstu daga. 14.12.2006 15:32
Þjóðverjar sigruðu á heimsmótinu Þjóðverjar fögnuðu sigri á heimsmótinu í golfi sem lauk á Barbados eyjum í gærkvöldi eftir spennandi lokasprett gegn Skotum en bráðabana þurfti til að skera úr um úrslit. 11.12.2006 19:51
Quiros sigraði á Dunhill mótinu Spænski kylfingurinn Alvaro Quiros sigraði nokkuð óvænt á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku sem lauk í dag, en Birgir Leifur Hafþórsson var á meðal keppenda á mótinu en komst ekki í gegn um niðurskurðinn. Quiros lauk keppni á 13 höggum undir pari, einu höggi á undan heimamanninum Schwartzel sem hafði forystu allt fram á lokahringinn. 10.12.2006 14:59
Birgir Leifur úr leik Birgir Leifur Hafþórsson er úr leik á Alfred Dunhill mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku eftir að hann lauk keppni í dag á þremur höggum yfir pari eða 75 höggum. Birgir kemst því ekki í gegn um niðurskurðinn á mótinu og lýkur keppni á 8 höggum yfir pari. Sjónvarpsstöðin Sýn er með beinar útsendingar frá mótinu um helgina. 8.12.2006 17:13
Birgir á pari á fyrstu 9 holunum Birgir Leifur Hafþórsson hefur nú leikið fyrri 9 holurnar á öðrum hringnum á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku og er á pari vallar. Hann er því enn á fimm höggum yfir pari og þarf að leika fullkomlega á síðari 9 holunum til að komast í gegn um niðurskurðinn á mótinu. Sýn er með beina útsendingu frá mótinu. 8.12.2006 14:07
Birgir Leifur á fimm yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson náði sér ekki á strik á fyrsta keppnisdeginum á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku í dag en sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu alla fjóra keppnisdagana. Birgir lauk fyrsta hringnum á 77 höggum eða 5 yfir pari og er því á meðal neðstu manna á móginu. Birgir verður því að leika óaðfinnanlega á morgun ef hann á að komast í gegn um niðurskurðinn á mótinu þar sem 70 kylfingar halda áfram keppni. 7.12.2006 15:06
Birgir Leifur í beinni á Sýn í fyrramálið Birgir Leifur Hafþórsson tryggði sér fyrir skömmu keppnisrétt á evrópsku mótaröðinni í golfi og hann verður í eldlínunni innan um marga af bestu kylfingum heims á tveimur mótum sem haldin verða í Suður-Afríku fyrir jól. Fyrra mótið hefst í fyrramálið og verður sjónvarpsstöðin Sýn með beinar útsendingar frá mótinu alla fjóra keppnisdagana. 6.12.2006 15:14