Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aron: Byggjum þetta skref fyrir skref „Það er mikil vinna á bakvið þennan titil, menn hafa lagt mikið á sig í vetur og við erum bara að uppskera eftir því núna," sagði Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, eftir að hans lið innsiglaði Íslandsmeistaratitilinn í kvöld. 11.4.2008 20:53
Haukar Íslandsmeistarar Haukar eru Íslandsmeistarar í handbolta 2008. Þeir unnu öruggan sigur á Fram á Ásvöllum í kvöld. 11.4.2008 18:59
Fannar í Stjörnuna Liðin í N1-deild karla vinna greinilega hörðum höndum þessa dagana að mynda leikmannahópa sína fyrir næsta tímabil. Fannar Þorbjörnsson hefur samið við Stjörnuna og gengur til liðs við félagið í sumar. 10.4.2008 18:46
Magnús tekur við kvennaliði Gróttu Handknattleiksdeild Gróttu hefur gert samning við Magnús Kára Jónsson um að hann þjálfi meistaraflokk kvenna í Gróttu næstu þrjú árin. Magnús hefur mikla reynslu sem þjálfari og þjálfaði hann árið 2006-2007 meistaraflokk kvenna í Fram. 10.4.2008 18:41
Tryggvi og Hafsteinn í Hauka Tryggvi Haraldsson og Hafsteinn Ingason munu leika með Haukum í handboltanum næsta tímabil samkvæmt heimildum vefsíðunnar handbolti.is. Þeir hafa síðustu ár leikið með Ribe í Danmörku. 10.4.2008 17:04
Ísland í efsta styrkleikaflokki Handknattleikssamband Evrópu hefur gefið út nýjan styrkleikalista þar sem íslenska liðið er á meðal átta efstu og sleppur því við að leika með sterkustu þjóðunum í riðli þegar dregið verður í riðla fyrir undankeppni EM 2010 í þessum mánuði. 10.4.2008 15:04
Sigur í fyrsta leik hjá Savehof Savehof, lið Hreiðars Guðmundssonar, vann í gærkvöld fyrsta leik sinn í undanúrslitaeinvíginu um sænska meistaratitilinn í handbolta þegar það vann öruggan sigur á Ystad 36-27. Í hinum undanúrslitaleiknum unnu meistarar Hammarby sigur á H 43 32-28. 10.4.2008 10:17
Arnór skoraði tvö í lokaleik FCK Danska úrvalsdeildarliðið FCK vann í gær stórsigur á Skanderborg 34-21 í síðasta leik sínum í deildarkeppninni, en var þegar búið að tryggja sér efsta sætið í deildinni fyrir úrslitakeppnina. Arnór Atlason skoraði tvö mörk í leiknum. Deildarkeppnin klárast um næstu helgi þar sem ræðst hvaða þrjú lið fylgja liðinu í úrslitakeppnina. 10.4.2008 10:14
Sigur hjá Gummersbach Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gærkvöld. Íslendingalið Gummersbach lagði Fuchse Berlín 35-32 þar sem Guðjón Valur Sigurðsson og Róbert Gunnarsson skoruðu tvö mörk hvor fyrir liðið. Rhein Neckar Löwen burstaði Melsungen 40-29. 10.4.2008 10:08
Auðvelt hjá Ciudad Real Ciudad Real heldur fast í toppsætið í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta. Liðið vann í gær stórsigur á Almeria 36-24 þar sem Ólafur Stefánsson skoraði tvö mörk fyrir Ciudad. Liðið hefur 51 stig í efsta sæti og Barcelona er fjórum stigum á eftir því í öðru sætinu. Sigfús Sigurðsson og félagar í Ademar Leon gerðu 25-25 jafntefli við Valladolid í gær og eru í 3. sæti deildarinnar með 42 stig. 9.4.2008 10:18
Íslendingaliðin töpuðu Tveir leikir voru í þýska handboltanum í kvöld. Kiel komst í efsta sæti deildarinnar með stórsigri á Nettelstedt Lübbecke 46-27. Birkir Ívar Guðmundsson varði eitt skot í leiknum. 8.4.2008 21:28
Aðalsteinn tekur við Fylki og Ragnar við Stjörnunni Aðalsteinn Eyjólfsson mun taka að sér þjálfun kvennaliðs Fylkis á næsta tímabili. Hann tilkynnti í lok síðasta mánaðar að hann ætlaði að hætta þjálfun Stjörnunnar. 8.4.2008 17:02
Jafnt hjá Val og Stjörnunni Valur og Stjarnan skildu jöfn, 20-20, í N1 deild karla í handbbolta í dag. Leikurinn var tíðindalítill og þótti markavarlsa Rolands Eradze í Stjörnumarkinu standa uppúr. 5.4.2008 17:45
Haukar og Stjarnan halda áfram sigurgöngu sinni Haukar báru sigurorð af ÍBV, 28-24, í Vestmannaeyjum í N1 deild karla í handbolta í dag. Jafnframt lagði Fram Akureyri að velli, 29-27, í Framhúsi. Í N1 deild kvennatók efsta lið deildarinnar Stjarnan Akureyri í kennslustund, 36-18. 5.4.2008 17:16
HK lagði Aftureldingu HK bar sigurorð af Aftureldingu, 25-21, í leik liðanna í kvöld í Digranesi í N1-deild karla í handbolta. Staðan í hálfleik var jöfn, 12-12. Með sigrinum styrkti HK stöðu sína í öðru sæti deildarinnar og er fjórum stigum á undan Fram. Afturelding er í sjöunda og næstneðsta sæti deildarinnar. 4.4.2008 21:19
Fram með fimm stiga forystu Framstúlkur náðu í kvöld fimm stiga forystu á toppi N1 deildar kvenna þegar þær unnu öruggan 31-20 sigur á Fylki. Fram hefur 37 stig í efsta sæti deildarinnar, Valur 32 í öðru og leik til góða og Stjarnan hefur 31 stig og á tvo leiki til góða á Fram. 3.4.2008 21:46
Alexander með sjö mörk í sigri Flensburg Íslenski landsliðsmaðurinn Alexander Petersson skoraði sjö mörk fyrir lið sitt Flensburg þegar það vann öruggan 36-27 sigur á Nordhorn í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. 2.4.2008 19:56
Patrekur tekur við Stjörnunni Patrekur Jóhannesson mun taka við þjálfun Stjörnunnar í sumar þegar að Kristján Halldórsson lætur af störfum. 2.4.2008 15:14
Alfreð hættir með Gróttu Alfreð Örn Finnsson hefur ákveðið að hætta þjálfun Gróttu sem leikur í N1-deild kvenna. Hann átti eitt ár eftir af samningi sínum. 2.4.2008 14:16
Ragnar sennilega á leið aftur til Dunkurque Ragnar Óskarsson, handknattleiksmaður hjá USAM Nimes í Frakklandi, er líklega á leið aftur til síns gamla félags, Dunkurque. 2.4.2008 12:51
Guðjón Valur: Skipti mér ekkert af málinu Guðjón Valur Sigurðsson segir að hann hafi látið félögin algjörlega um hvort að hann myndi klára samning sinn við Gummersbach eða fara fyrr en áætlað var til Rhein-Neckar Löwen. 1.4.2008 14:36
Guðjón Valur fer frá Gummersbach í sumar Gummersbach og Rhein-Neckar Löwen hafa komist að samkomulagi að Guðjón Valur Sigurðsson verði leystur undan samningi sínum í sumar, ári fyrr en áætlað var. 1.4.2008 13:04
Buday hættur hjá Fram Ferenc Buday hefur látið af störfum sem þjálfari Fram í DHL-deild karla en samningur hans átti að renna út í sumar. Viggó Sigurðsson mun taka við liðinu í lok tímabilsins. 1.4.2008 09:40
Sävehof í undanúrslit Sävehof er komið í undanúrslit í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir sigur á Lindesberg í kvöld, 29-23, og alls 3-0 í einvíginu. 31.3.2008 19:10
Rúnar framlengir við Fram Rúnar Kárason, leikmaður Fram í handbolta, hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2011. 31.3.2008 16:00
HK lagði Stjörnuna í Mýrinni HK skaust í kvöld í þriðja sæti N1 deildar karla þegar liðið vann góðan útisigur á Stjörnunni 29-25 í Mýrinni í Garðabæ. Heimir Örn Árnason skoraði 11 mörk fyrir heimamenn en Ragnar Hjaltested skoraði 6 mörk fyrir HK, sem er komið upp að hlið Fram í 2.-3. sæti deildarinnar. 30.3.2008 22:39
Haukar með aðra höndina á titlinum Haukar náðu í kvöld átta stiga forystu á toppi N1 deildar karla þegar þeir lögðu Valsmenn 27-23 á Ásvöllum í Hafnarfirði, en Valsmenn voru þremur mörkum yfir í hálfleik 14-11. 30.3.2008 18:03
Ísland hafnaði í neðsta sæti í Portúgal Íslenska kvennalandsliðið í handbolta hafnaði í sjötta og neðsta sæti á æfingamótinu í Portúgal eftir að það tapaði 29-22 fyrir Tyrklandi í lokaleik sínum í dag. 30.3.2008 16:50
Kiel bikarmeistari í Þýskalandi Stórlið Kiel heldur áfram að sópa til sín bikurum í Þýskalandi og í dag varð liðið bikarmeistari annað árið í röð eftir 32-29 sigur á Hamburg í úrslitaleik. Kiel tryggði sér sigurinn með góðum síðari hálfleik og vann sinn 5. bikartitil. Nikola Karabatic skoraði 9 mörk fyrir Kiel en stórskyttan Yoon var með 10 mörk hjá Hamburg. 30.3.2008 14:02
Góður sigur hjá GOG Danska liðið GOG vann í dag mikilvægan 24-23 útsigur á Skjern í toppbaráttu úrvalsdeildarinnar. Vignir Svavarsson skoraði 3 mörk fyrir Skjern en Snorri Steinn Guðjónsson var með 2 fyrir gestina. 29.3.2008 19:05
Einar fer aftur til Grosswallstadt Íslenski landsliðsmaðurinn Einar Hólmgeirsson hefur ákveðið að ganga aftur í raðir þýska úrvalsdeildarliðsins Grosswallstadt á næstu leiktíð. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2. 29.3.2008 18:49
ÍBV skellti Fram Mjög óvænt úrslit urðu í N1 deild karla í handbolta í dag þegar botnlið ÍBV skellti Frömurum í Safamýrinni 34-29. Framarar misstu þarna af mjög dýrmætum stigum í toppbaráttunni þar sem Haukar geta náð 8 stiga forystu með sigri á Val á morgun. 29.3.2008 16:56
Aðalsteinn hættir eftir tímabilið Aðalsteinn Eyjólfsson ætlar að hætta þjálfun kvennaliðs Stjörnunnar eftir tímabilið. Frá þessu er greint á heimasíðu Ríkisútvarpsins. 28.3.2008 17:52
Eins marks tap fyrir Kína Íslenska kvennalandsliðið tapaði í dag fyrir Kína 20-21 í æfingarmóti sem fram fer í Portúgal. Staðan í hálfleik var 9-15 fyrir Kína. 27.3.2008 20:45
Danir hafa meiri áhuga á handboltalandsliðinu Danska handboltalandsliðið hefur heldur betur slegið í gegn í heimalandi sínu eftir sigurinn á EM í Noregi. Mun fleiri Danir segjast þannig hafa áhuga á að horfa á handboltalandsliðið spila í sjónvarpinu en knattspyrnulandsliðið. 27.3.2008 12:39
Ólafur skoraði sjö fyrir Ciudad Ólafur Stefánsson skoraði sjö mörk fyrir lið sitt Ciudad Real á Spáni í gær þegar lað vann öruggan útisigur á Antequera 33-24 í deildinni. Ciudad er efst í úrvalsdeildinni með 43 stig, tveimur meira en erkifjendurnir í Barcelona. 27.3.2008 11:11
Stelpurnar töpuðu fyrir Brasilíu Íslenska kvennalandsliðið tapaði í dag fyrir Brasilíu 30-27 í fyrsta leik sínum í Portúgal. Leikurinn var vináttulandsleikur milli þjóðanna og var ekki hluti af æfingarmótinu sem liðið tekur nú þátt í. 26.3.2008 18:54
Öruggur sigur Gummersbach Guðjón Valur Sigurðsson skoraði átta mörk og Róbert Gunnarsson sex þegar Íslendingaliðið Gummersbach vann öruggan sigur á Melsungen 42-33 í þýsku deildinni í kvöld. 25.3.2008 21:00
Sverre í Digranes Sverre Jakobsson, leikmaður Gummersbach, hefur komist að samkomulagi við HK um að leika með liðinu næsta vetur jafnframt því að hann verður aðstoðarþjálfari liðsins. Þetta er samkvæmt heimildum handbolti.is. 25.3.2008 17:05
Ísland náði öðru sæti Íslenska U-20 landsliðið náði í dag öðru sæti í undankeppni HM kvenna sem fór fram í Kópavogi um helgina. 23.3.2008 19:13
Annar sigur hjá lærisveinum Dags Austurríska landsliðið vann í dag Túnis, 37-32, á lokadegi æfingamóts í Innsbruck í Austurríki. 22.3.2008 18:07
Strákarnir ekki á EM Íslenska U-20 landsliðið í handbolta tapaði í dag lokaleik sínum í undankeppni fyrir EM í sumar. 22.3.2008 17:18
Lærisveinar Dags lögðu heimsmeistarana Austurríska handboltalandsliðið vann í kvöld frábæran sigur á heimsmeisturum Þjóðverja 32-30 á móti sem haldið er í Innsbruck í Austurríki. Í gær töpuðu lærisveinar Dags Sigurðssonar naumlega fyrir Svíum. Á þessu sama móti báru Svíar sigurorð af Túnisum fyrr í dag 37-28. Svíar eru í efsta sæti mótsins með fjögur stig, heimamenn og Þjóðverjar tvö og Túnisar eru án stiga. 21.3.2008 21:41
Góður sigur á Serbum Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum yngri en 20 ára vann í dag frækinn sigur á Serbum 29-27 í þriðja leik sínum í undankeppni HM. Leikið var í Digranesi. 21.3.2008 18:47
Góð byrjun hjá Degi Dagur Sigurðsson stýrði sínum fyrsta leik með austurríska landsliðinu í dag er liðið tapaði fyrir Svíum, 30-26, á æfingamóti í Innsbruck. 20.3.2008 22:50