Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Geir gefur kost á sér Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem hann segist með formlegum hætti gefa kost á sér til formennsku hjá knattspyrnusambandinu eftir að Eggert Magnússon lætur af störfum snemma á næsta ári. Geir er einn fjölmargra manna sem nefndir hafa verið til sögunnar sem hugsanlegir eftirmenn Eggerts. 30.11.2006 20:36
Styrkja starfsemi KSÍ í heild sinni Samstarfsaðilar Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, eru sjö talsins. KSÍ hefur tengt slagorðið „Alltaf í boltanum“ við samstarfsaðilana og takmarkið er samkvæmt heimasíðu sambandsins að fyrirtækin sjö verði sýnileg í allri starfsemi KSÍ. 17.11.2006 11:45
Arnar Þór framlengir Varnarmaðurinn Arnar Þór Úlfarsson hefur framlengt samning sinn við Fylki til næstu tveggja ára en gamli samningurinn átti að renna út um áramótin. Arnar hefur spilað 39 leiki fyrir Fylki á þremur tímabilum og skorað í þeim tvö mörk. Hann er 26 ára gamall. 17.11.2006 06:30
Valur búinn að kaupa Helga Sigurðsson Lausn fékkst í deilu Helga Sigurðssonar og Fram í gær þegar Valur keypti Helga af Safamýrarliðinu. Kaupverðið er talið vera á milli 4-5 milljónir króna. Samkvæmt heimasíðu Fram tókst samkomulag á milli liðanna í vikunni og Brynjar Jóhannesson, framkvæmdastjóri rekstrarfélags meistaraflokks Fram, virðist því hafa verið að segja ósatt í samtali við Fréttablaðið á miðvikudagskvöld þegar hann sagði ekkert tilboð vera komið frá Val. 17.11.2006 06:00
Valur kaupir Helga Sigurðsson frá Fram Knattspyrnudeild Vals hefur gengið frá kaupum á framherjanum Helga Sigurðssyni sem lék með Fram í 1. deildinni á síðustu leiktíð. Heimildir NFS herma að kaupverðið hafi verið allt að 5 milljónir króna, en það hefur ekki fengist staðfest af forráðamönnum félaganna tveggja. 16.11.2006 17:28
Frank Posch yfirgefur Fram Þýski varnarmaðurinn Frank Posch er genginn í raðir Stjörnunnar í Garðabæ. Posch lék með Fram í sumar við góðan orðstír og lék alla leiki liðsins, en Fram vann fyrstu deildina með þónokkrum yfirburðum. 10.11.2006 06:15
Páll undir feldi fram að áramótum Knattspyrnukappinn Páll Einarsson er lagstur undir feld og búinn að breiða vel yfir höfuðið á meðan hann íhugar hvort hann á að halda áfram knattspyrnuiðkun. 10.11.2006 06:00
Bindur miklar vonir við íslenska knattspyrnumenn Einn litríkasti knattspyrnumarkvörður heims, Bruce Grobbelaar segir að Ísland verði á meðal sterkustu knattspyrnuþjóða innan tíu ára. Grobbelar dúkkaði óvænt upp á knattspyrnumóti í Egilshöll um síðustu helgi. 8.11.2006 20:18
Fimm nefndir sem hugsanlegir eftirmenn Eggert Magnússon hefur verið formaður Knattspyrnu-sambands Íslands síðan 1989. Undanfarnar vikur hefur hann farið fyrir hópi fjárfesta sem hefur reynt að eignast meirihluta hlutabréfa í enska úrvalsdeildarfélaginu West Ham. 7.11.2006 08:15
Eiður Smári gerir upp ferilinn hjá Chelsea Kl. 20:15 í kvöld verður sýndur þáttur á sjónvarpsstöðinni Sýn um feril Eiðs Smára Guðjohnsen hjá Chelsea. Sem kunnugt er gekk Eiður Smári í raðir Barcelona í sumar eftir að hafa spilað í sex ár með Chelsea. 6.11.2006 18:15
Hefur rætt við stjórnarformann West Ham Eggert Magnússon, formaður KSÍ, ræddi við Terry Brown, stjórnarformann West Ham, í gær um hugsanlega yfirtöku fjárfestingarhóps undir hans stjórn á Lundúnarfélaginu. Fundurinn þykir gefa sterkar vísbendingar um að Eggert sé ennþá með í baráttunni um yfirtöku á félaginu. 4.11.2006 14:30
Þór/KA áfrýjar til ÍSÍ Enn liggur ekki fyrir hvort það verður Þór/KA eða ÍR sem tekur sæti í Landsbankadeild kvenna á næsta tímabili eftir að forráðamenn kvennaliðs Þórs/KA áfrýjuðu í dag niðurstöðu áfrýjunardómstóls KSÍ til áfrýjunardómstóls ÍSÍ, þar sem endanlegrar niðurstöðu er að vænta eftir um það bil 10 daga. 3.11.2006 19:22
Valur semur við fjóra leikmenn Valsmenn héldu blaðamannafund í hádeginu þar sem kynntir voru fjórir nýjir leikmenn sem spila munu með liðinu í Landsbankadeildinni næsta sumar. Þetta eru þeir Hafþór Ægir Vilhjálmsson úr ÍA, Daníel Hjaltason úr Víkingi, Jóhann Helgason frá Grindavík og Gunnar Einarsson sem áður lék með KR. 3.11.2006 14:14
Pétur Marteinsson í KR Landsliðsmaðurinn Pétur Marteinsson sem leikið hefur með Hammarby í Svíþjóð síðustu ár hefur ákveðið að snúa aftur heim til Íslands og ætlar að ganga í raðir KR. Pétur mun einnig starfa með Akademíu KR þar sem hann mun vinna með ungum knattspyrnumönnum. 1.11.2006 18:11
Matthías skrifaði undir þriggja ára samning við FH Eins og fram kom í Fréttablaðinu í morgun hefur Valsmaðurinn Matthías Guðmundsson nú skrifað undir þriggja ára samning um að leika með Íslandsmeisturum FH. Matthías skrifaði undir hjá FH í hádeginu. 1.11.2006 18:06
Uppgjörið: KR - Afturelding 2-1 | Mosfellingar í fallsæti eftir tap í Vesturbænum Íslenski boltinn