Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Heiðar í byrjunarliði Fulham Heiðar Helguson er í fremstu víglínu hjá liði Fulham sem tekur á móti Middlesbrough í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Fulham er í 15. sæti deildarinnar með 20 stig og Middlesbrough í því 17. með 17 stig. 18.12.2006 19:43
Wenger ákærður fyrir ólæti Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var í dag ákærður fyrir ólæti sín í garð dómara í annað sinn á stuttum tíma, en hann lét dómara heyra það og var sendur upp í stúku á leik Arsenal og Portsmouth á dögunum. Wenger hefur frest til 5. janúar til að svara fyrir sig, en hann var sektaður um 10.000 pund fyrir rimmu sína við Alan Pardew á dögunum. 18.12.2006 18:24
Anthony fær 15 leikja bann Framherjinn Carmelo Anthony hjá Denver Nuggets í NBA deildinni var í dag settur í 15 leikja keppnisbann fyrir að vera í aðalhlutverki í slagsmálunum sem brutust út á leik New York Knicks og Denver á laugardagskvöldið. Alls þurfa leikmennirnir sem tóku þátt í látunum að sitja af sér 47 leikja bann. 18.12.2006 18:02
Curbishley skorar á Tevez að sanna sig Alan Curbishley, stjóri West Ham, hefur skorað á Carlos Tevez og aðra varamenn liðsins að sýna hvað í þeim býr á æfingum næstu daga, því liðið muni þurfa á þeim að halda í jólatörninni framundan. 18.12.2006 16:51
Jol hefur áhyggjur af hnénu á Lennon Martin Jol, stjóri Tottenham í ensku úrvalsdeildinni, segist vonast til að enski landsliðsmaðurinn Aaron Lennon verði orðinn klár í slaginn þegar liðið mætir Southend í deildarbikarnum á miðvikudag. Lennon fór í uppskurð á hné í haust og virðist enn ekki hafa náð sér að fullu. 18.12.2006 15:49
O´Neill hefur áhyggjur Martin O´Neill, þjálfari Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni, viðurkennir að hann hafi miklar áhyggjur af gengi liðins undanfarið eftir að því mistókst að sigra í sjötta leiknum í röð þegar það tapaði fyrir Bolton um helgina. 18.12.2006 15:41
Hitzfeld hafnaði Dortmund Ottmar Hitzfeld hefur hafnað tilboði þýska úrvalsdeildarliðsins Dortmund um að taka við þjálfun þess, en félagið hefur þegar tilkynnt að sitjandi þjálfari Bert van Marwijk hætti með liðið í vor. Hitzfeld segist ætla að einbeita sér að því að vinna fyrir sjónvarp í nánustu framtíð, en hann gerði Dortmund að Evrópumeisturum fyrir um áratug síðan. 18.12.2006 15:34
Hamar/Selfoss mætir KR Í dag var dregið í 8-liða úrslit bikarkeppni Lýsingar í körfubolta í karla- og kvennaflokki, en bikardrátturinn fór fram í húsakynnum Lýsingar. Í karlaflokki verða tvær viðureignir úrvalsdeildarliða þar sem ÍR mætir Skallagrími og Hamar/Selfoss tekur á móti KR. 18.12.2006 15:20
Eriksson í viðræðum við þrjú félög Umboðsmaður sænska þjálfarans Sven-Göran Eriksson segir skjólstæðing sinn vera í viðræðum við þrjú knattspyrnufélög og reiknar með því að fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga verði kominn í vinnu snemma á næsta ári. Eriksson hefur verið orðaður við tvö frönsk lið og eitt frá Katar, en engin félög á Englandi hafa sett sig í samband við kappann. 18.12.2006 14:22
Woods sigraði á mótinu sínu Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods sigraði í nótt á Target World mótinu í golfi sem fram fór í Kaliforníu, en hann skipuleggur mótið sjálfur. Woods lauk keppni á 16 höggum undir pari, fjórum höggum á undan Ástralanum Geoff Ogilvy. Aðeins 16 kylfingar tóku þátt í mótinu og var sigurinn sá annar á þremur árum hjá Woods á mótinu. Hann gaf verðlaunaféð allt til góðgerðamála. 18.12.2006 13:39
Everton ósátt við Mourinho Knattspyrnufélagið Everton hefur farið þess á leit við Jose Mourinho knattspyrnustjóra Chelsea að hann biðjist afsökunar á ummælum sem hann lét falla um Andy Johnson, framherja Everton eftir leik liðanna í gær. Mourinho sagði Johnson hafa sótt of fast að markverðinum Hilario og vændi hann um ruddaskap. 18.12.2006 13:35
Óbreytt staða á FIFA listanum Íslenska landsliðið situr sem fyrr í 93. sæti á styrkleikalista FIFA sem birtur var í dag. Engar breytingar hafa orðið á efstu liðum heldur, þar sem Brasilíumenn sitja enn í toppsætinu, Ítalír í öðru og Argentínumenn í því þriðja. Íslenska liðið hefur unnið sig upp um eitt sæti á listanum á árinu. 18.12.2006 13:31
Gilbert Arenas skoraði 60 stig gegn Lakers Gilbert Arenas fór hamförum með liði Washington Wizards í nótt þegar liðið sigraði LA Lakers 147-141 í framlengdum leik í Staples Center í Los Angeles. Arenas skoraði 60 stig fyrir Washington og var lykilmaðurinn á bak við góðan sigur liðsins í frábærum leik sem sýndur var beint á NBA TV á Fjölvarpinu. 18.12.2006 13:21
Cannavaro leikmaður ársins hjá FIFA Þær fréttir láku út í dag að ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro hjá Real Madrid verði á morgun kjörinn knattspyrnumaður ársins hjá Alþjóða Knattspyrnusambandinu. Cannvaro var á dögunum kosinn knattspyrnumaður Evrópu og sagt er að Zinedine Zidane hafi orðið í öðru sæti í kosningu FIFA og Ronaldinho í því þriðja. 17.12.2006 22:15
Real vann nauman sigur Real Madrid vann gríðarlega mikilvægan sigur á Espanyol í spænska boltanum í kvöld þar sem Ruud van Nistelrooy skoraði sigurmark liðsins. Real náði að hanga á sigrinum þó það missti Fabio Cannavaro af velli með rautt spjald eftir 54 mínútur. Sevilla er í efsta sæti deildarinnar með 34 stig, Barcelona hefur 33 og á leik til góða og Real Madrid hefur 32 stig. 17.12.2006 21:15
Njarðvík og Keflavík halda sínu striki Það er að verða ansi þröngt á þingi á toppnum í Iceland Express deild karla í körfubolta, en í dag komst Njarðvík upp að hlið Skallagríms, Snæfells og KR á toppi deildarinnar með sigri á botnliði Hauka 104-99. Keflvíkingar geta komist upp að hlið toppliðanna með sigri í leiknum sem liðið á til góða en liðið lagði granna sína í Grindavík í dag 90-86. 17.12.2006 20:56
Flensburg og Kiel efst Viggó Sigurðsson stýrði liði Flensburg í toppsætið í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag þegar lið hans lagði Magdeburg á útivelli 34-29. Þetta var næst síðasti leikur liðsins undir stjórn Viggós en síðasti leikur hans með liðið verður sýndur beint á Sýn á Þorláksmessu. 17.12.2006 20:47
Sigurganga Hauka stöðvuð í Keflavík Íslandsmeistarar Hauka í körfubolta töpuðu sínum fyrsta leik í IE deild kvenna í körfubolta í dag þegar liðið lá fyrir Keflavík 92-85. Keflvíkingar eru því komnir á topp deildarinnar en Haukaliðið á leik til góða. 17.12.2006 19:38
Verðum að klára færin okkar Sir Alex Ferguson sagði sína menn í Manchester United hafa farið illa með færi sín enn eina ferðina í dag og sagði það helstu ástæðuna fyrir tapinu gegn West Ham. Hann vill þó ekki meina að Chelsea sé komið í vænlega stöðu til að hirða af þeim toppsætið í deildinni. 17.12.2006 19:06
Sjálfstraustið lykillinn að sigri Jose Mourinho segir að sjálfstraust leikmanna sinna hafi verið það sem gerði útslagið í mögnuðum sigri Chelsea á Everton í dag þar sem liðið lenti tvívegis undir á útvelli áður en það tryggði sér 3-2 sigur með glæsimarki Didier Drogba. 17.12.2006 18:57
Espanyol - Real Madrid í beinni á Sýn Leikur Espanyol og Real Madrid er nú hafinn í beinni lýsingu Arnars Björnssonar á Sýn, en þar á undan var leikur Recreativo og Sevilla í beinni og það voru gestirnir sem höfðu auðveldan sigur 4-1. Þá er enn eftir leikur Getafe og Atletico í spænska boltanum og svo verður leikur úr NFL í beinni auk Tiger Woods mótsins í golfi. 17.12.2006 18:06
West Ham lagði Manchester United Alan Curbishley knattspyrnustjóri átti sannkallaða draumabyrjun með liði West Ham í dag þegar hann stýrði liðinu til 1-0 sigurs á toppliði Manchester United í lokaleik dagsins í enska boltanum. Það var Nigel Reo-Coker, fyrirliði West Ham, sem skoraði sigurmark liðsins á 75. mínútu og því er forskot Man Utd aðeins tvö stig á toppnum eftir sigur Chelsea á Everton í dag. 17.12.2006 18:00
Ernie Els sigraði í Suður-Afríku Heimamaðurinn Ernie Els sigraði glæsilega á SA Airways mótinu í Suður-Afríku í dag en mótið var liður í evrópsku mótaröðinni. Els lék frábært golf á lokasprettinum og hafði betur gegn landa sínum Trevor Immelman. Els lauk keppni á 24 höggum undir pari en Immelman var þremur höggum þar á eftir. 17.12.2006 17:31
Norðmenn Evrópumeistarar Kvennalið Noregs varði í dag Evrópumeistaratitil sinn í handknattleik kvenna þegar liðið sigraði Rússa í úrslitaleik mótsins 27-24 eftir að hafa leitt í hálfleik 16-12. Frakkar hirtu þriðja sætið með sigri á Þjóðverjum í bronsleiknum 29-25. 17.12.2006 17:26
Loksins útisigur hjá Tottenham Tottenham vann í dag sinn fyrsta útisigur í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni þegar liðið skellti Manchester City 2-1 á útivelli. Ungu mennirnir Calum Davenport og Tom Huddlestone komu Tottenham yfir í leiknum en Joey Barton minnkaði muninn fyrir City. Heimamenn áttu síðari háfleikinn og hefðu með öllu átt að fá vítaspyrnu undir lokin, en höfðu ekki heppnina með sér. 17.12.2006 17:14
Chelsea lagði Everton Englandsmeistarar Chelsea lentu tvisvar undir í leik sínum við Everton á útivelli í dag en náðu samt að hirða öll stigin og vinna 3-2 og halda því enn í við topplið Manchester United. Mikel Arteta og Joseph Yobo skoruðu mörk West Ham, en þeir Frank Lampard og Michael Ballack jöfnuðu fyrir Chelsea áður en Didier Drogba skoraði sigurmarkið með þrumuskoti skömmu fyrir leikslok. 17.12.2006 15:52
Jafnt í grannaslagnum í Glasgow Erkifjendurnir Glasgow Rangers og Glasgow Celtic gerðu í dag 1-1 jafntefli í skosku deildinni og hefur Celtic því enn 14 stiga forskot á toppi deildarinnar. Thomas Gravesen kom Celtic yfir á 38. mínútu í dag, en heimamenn í Rangers höfnuðu með marki Brahim Hemdani aðeins tveimur mínútum fyrir leikslok. 17.12.2006 15:09
Everton leiðir gegn Chelsea Everton leiðir 1-0 gegn Englandsmeisturum Chelsea þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna á Goodison Park. Mikel Arteta skoraði mark Everton úr víti þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik. Síðar í dag eigast svo við Manchester City og Tottenham og þá tekur West Ham á móti Man Utd. 17.12.2006 15:03
Phoenix jafnaði félagsmet Phoenix Suns vann í nótt 14. leikinn í röð í NBA deildinni í körfubolta þegar liðið skellti Sacramento 105-98 á útivelli. Á sama tíma tapaði Philadelphia 11. leiknum í röð í tapi gegn San Antonio 103-98, en eins og áður kom fram hér á vísi logaði leikur New York og Denver í slagsmálum áður en gestirnir sigruðu 123-100. 17.12.2006 14:54
Curbishley fær tíma og peninga Eggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham, hefur lýst því yfir að Alan Curbishley knattspyrnustjóri muni fá allan þann tíma og fjármuni sem hann þarf til að koma West Ham á réttan kjöl í vetur. 17.12.2006 14:05
Barcelona tapaði úrslitaleiknum Barcelona tapaði í morgun 1-0 fyrir brasilíska liðinu Internacional í úrslitaleik heimsmeistaramóts félagsliða í Japan. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona en var skipt af velli undir lokin. HM titill félagsliða er því enn eini titillinn sem katalónska félagið hefur ekki náð að krækja í til þessa. 17.12.2006 13:53
Birgir Leifur lauk keppni á pari Birgir Leifur Hafþórsson lauk keppni á SA Airlines mótinu í golfi í morgun á sléttu pari. Hann lék lokahring sinn á mótinu á þremur höggum yfir pari og endaði í 82. sæti á mótinu sem var partur af Evrópumótaröðinni og verður það að teljast mjög góður árangur á þessu sterka móti. 17.12.2006 13:47
Madison Square Garden logaði í slagsmálum Leikur New York Knicks og Denver Nuggets í NBA deildinni í nótt breyttist úr körfuboltaleik í hnefaleikakeppni á lokamínútunum. Tíu leikmönnum var vísað úr húsi og á stigahæsti leikmaður deildarinnar Carmelo Anthony líklega yfir höfði sér langt keppnisbann fyrir lúalegt hnefahögg. 17.12.2006 04:09
Leikmennirnir græða mest Sam Allardyce, stjóri Bolton, segir að auknar tekjur félaganna í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili í kjölfar nýrra sjónvarpssamninga muni nær eingöngu renna í vasa leikmanna. 16.12.2006 22:15
Curbishley ætlar sækja til sigurs á morgun Alan Curbishley, nýráðinn knattspyrnustjóri West Ham, segist aðeins hafa eitt markmið í huga þegar hann stýrir liðinu í fyrsta skipti gegn Mancehster United í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Hann ætlar að sækja þrjú stig. 16.12.2006 21:15
Miami - Memphis í beinni í kvöld Meistarar Miami Heat taka á móti Memphis Grizzlies í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni í kvöld klukkan hálf eitt. Bæði lið hafa átt mjög erfitt uppdráttar það sem af er vetri, en Dwyane Wade hjá Miami og Pau Gasol hjá Memphis snúa aftur eftir meiðsli í kvöld og því má eiga von á skemmtilegum leik. 16.12.2006 20:45
Lélegasti hálfleikur undir minni stjórn Paul Jewell, stjóri Wigan, sagði að fyrri hálfleikurinn í dag hefði verið lélegasti hálfleikur sem lið hans hafi spilað síðan hann tók við stjórn þess fyrir fjórum árum. Wigan tapaði á heimavelli fyrir lærisveinum Neil Warnock í Sheffield United, en þar á bæ voru menn að vonum kátari með niðurstöðuna. 16.12.2006 19:59
Íþróttaveislan á Sýn heldur áfram alla helgina Það er búið að vera mikið fjör á sjónvarpsstöðinni Sýn í dag og halda beinar útsendingar áfram langt fram á kvöld. Nú stendur Race of Champions sem hæst og klukkan 20:50 verður leikur Zaragoza og Valencia í spænska boltanum í beinni. Þá er rétt að minna á golfmót Tiger Woods í beinni klukkan 20 á Sýn Extra. 16.12.2006 19:17
Bolton lagði Aston Villa Bolton vann mikilvægan 1-0 útisigur á Aston Villa í lokaleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag og lyfti sér með sigrinum í 5. sæti deildarinnar. Það var gamla kempan Gary Speed sem skoraði sigurmark Bolton úr vítaspyrnu um miðjan síðari hálfleik. Bolton er í fimmta sæti með 30 stig en Aston Villa er enn í því áttunda með 25 stig. 16.12.2006 19:06
Ótrúlegt að vera á topp fjögur Harry Redknapp gat ekki verið annað en ánægður með frammistöðu sinna manna í Portsmough í dag þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Arsenal á útivelli. Hann hrósaði sínum mönnum í hástert og sagði það ótrúlegt að liðið væri á meðal fjögurra efstu liðanna í deildinni. 16.12.2006 19:01
Wenger óhress með fyrsta mark Portsmouth Arsene Wenger fékk ekki að standa á hliðarlínunni í síðari hálfleik í dag þegar hans menn í Arsenal náðu aðeins 2-2 jafntefli gegn spræku liði Portsmouth. Wenger þótti fyrsta mark Portsmouth ansi blóðugt en hrósaði leikmönnum sínum fyrir að ná að jafna leikinn. 16.12.2006 18:40
Valur lagði HK Valur lagði HK 25-22 í uppgjöri liðanna á toppi DHL deildarinnar í handbolta í dag eftir að Valsmenn höfðu yfir 14-10 í hálfleik. Markús Máni Michaelsson skoraði 8 mörk fyrir Val og Davíð Höskuldsson og Arnór Gunnarsson skoruðu 5 hvor. Valdimar Þórsson skoraði 8 mörk fyrir HK og Ragnar Hjaltested 6 mörk 16.12.2006 17:44
Schalke á toppinn Schalke komst í dag á toppinn í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið lagði Bielefeld 1-0 á útivelli með marki frá varamanninum Zlatan Bajramovic og Bayern Munchen burstaði Mainz 4-0 með mörkum frá Hasan Salihamidzic, Roy Makaay, Claudio Pizarro og Bastian Schweinsteiger. Bremen á leik til góða gegn Wolfsburg á morgun. 16.12.2006 17:33
Cannavaro maður ársins hjá World Soccer Ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro hefur verið útnefndur knattspyrnumaður ársins af breska tímaritinu World Soccer. Cannavaro er aðeins annar varnarmaðurinn sem hlýtur þessi verðlaun á þeim aldarfjórðungi sem þau hafa verið veitt, en áður hafði landi hans Paolo fengið þau árið 1994. Cannavaro fékk þrisvar sinnum fleiri atkvæði en næstu menn, þeir Thierry Henry og Samuel Eto´o. 16.12.2006 17:25
Arsenal og Portsmouth skildu jöfn Arsenal og Portsmouth skildu jöfn 2-2 í hörkuleik á Emirates vellinum í dag þar sem heimamenn lentu tveimur mörkum undir. Noe Pamarot kom Portsmouth yfir með skalla undir lok fyrri hálfleiks og Matt Taylor kom gestunum í 2-0 í upphafi þess síðari. Gilberto og Adebayor jöfnuðu metin svo með 2 mínútna millibili eftir klukkutíma leik. Freddie Ljungberg þurfti að fara meiddur af velli hjá Arsenal. 16.12.2006 17:04