Fleiri fréttir Jólunum aflýst Skóli á Spáni hefur aflýst öllum hátíðahöldum vegna jólanna í ár til þess að móðga ekki börn sem eru ekki kristin. Skólinn, sem er í Zaragoza á Spáni, sagði að kennararnir hefðu komið með þessa tillögu en einna helst er álitið að það sé vegna fjölda múslimskra barna í skólanum. 29.11.2006 21:00 Golfstraumurinn hægði á sér Golfstraumurinn hægði á sér um allt að 10% á tímabilinu 1200 til 1850, sem kallað er litla ísöldin, en þetta kom fram í rannsókn sem bandarískir vísindamenn birtu í dag og er búist við því að hún eigi eftir að gefa einhverjar nýjar vísbendingar um gróðurhúsaáhrifin svokölluðu. 29.11.2006 20:50 LRA dregur sig úr friðarviðræðum Uppreisnarmenn í Úganda hafa dregið sig úr friðarviðræðum við stjórnvöld þar í landi. Þeir segjast gera það þar sem stjórnarherinn hafi myrt þrjá hermenn þeirra sem voru á leið á fyrirfram ákveðna vin uppreisnarmanna, sem þeir dveljast í á meðan viðræðum stendur. Uppreisnarmennirnir eru í hópnum Uppreisnarher drottins (LRA) og vilja stofna ríki sem byggt er á boðorðunum tíu. 29.11.2006 20:37 Sarkozy tilkynnir framboð Innanríkisráðherra Frakklands, Nicolas Sarkozy, hefur lýst því yfir að hann muni sækjast eftir útnefningu hægri manna sem forsetaframbjóðandi þeirra á flokksþingi þeirra sem mun fara fram í janúar á næsta ári. Talið er líklegt að hann eigi eftir að hljóta útnefninguna þar sem sitjandi forseti Jaques Chirac, ætlar sér ekki fram í þriðja sinn. 29.11.2006 20:27 Ísraelar sleppa fanga Ísraelsk yfirvöld skýrðu frá því í dag að þeir hefðu leyst úr haldi einn af ráðherrum Hamas samtakanna sem þeir hnepptu í gæslu eftir að vígamenn rændu Ísraelskum hermanni í júní síðastliðnum. Ekki er þó vitað á þessari stundu hvort að það hafi eitthvað með hugsanleg fangaskipti að ræða en sem stendur ríkir vopnahlé á milli Ísraela og herskárra Palestínumanna. 29.11.2006 19:29 Skýrslan um Írak væntanleg 6. desember Búist er við því að nefnd sem George W. Bush Bandaríkjaforseti skipaði til þess að meta stefnuna í Írak og koma með nýjar tillögur um hvað er hægt að gera skili skýrslu sinni af sér þann sjötta desember næstkomandi. Nefndin starfar sjálfstætt og er þverpólitískt skipuð. Einnig er búist við því að hún eigi eftir að mæla með samstarfi með Sýrlandi og Íran til þess að reyna að stöðva þá öldu ofbeldis sem gengur yfir landið um þessar mundir. 29.11.2006 19:14 BA finnur leifar af geislavirku efni í tveimur flugvélum British Airways skýrði frá því í dag að það hefði fundið leifar af geislavirka efninu sem að varð Alexande Litvinenko, fyrrum rússneskum njósnara, að bana. Flugfélagið skýrði frá því að þrjár skammfleygar B767 vélar hefðu verið teknar úr umferð til þess að hægt væri að rannsaka þær. 29.11.2006 19:07 Bush frestar fundi til morguns George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur frestað fundi sínum með íraska forsætisráðherranum Nuri al-Maliki fram til morguns. Þetta var gert þar sem al-Maliki og Abdullah konungur Sýrlands höfðu þegar átt fund í dag en ráðgert hafði verið að þeir þrír myndu eiga fund í kvöld. 29.11.2006 18:48 Útlit hjálpar í kosningum Rannsókn sem skandinavískir hagfræðingar gerðu nýlega sýndi fram á að það hjálpar stjórnmálamönnum að vera myndarlegir og vegur sá þáttur hvað þyngst þegar mjótt er á munum. Hjálpar þetta konum meira ef kona og karl keppast um embættið en þetta kemur karlmönnum þó líka til góða. 29.11.2006 18:06 Íran leitar fanga í Austur-Kongó Nokkur lönd og þar á meðal Íran eru grunuð um að hafa reynt að nýta sér ástandið í Austur-Kongó til þess að næla sér ólöglega í úranínum. Á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar þegar landið var enn belgísk nýlenda sá Austur-Kongó Bandaríkjamönnum fyrir úrani í þær kjarnorkusprengjur sem síðar voru notaðar á japönsku borgirnar Hiroshima og Nagasaki. 29.11.2006 17:57 Rússar segja al-Kaída að störfum í Téteníu Andhryðjuverkasveit rússnesku lögreglunnar sagði í dag að jórdanskur maður sem lést í átökum rússneskra sérsveita og tétenskra uppreisnarmanna á sunnudaginn var hefði verið meðlimur al-Kaída. Sögðu þeir þetta sýna fram á að uppreisninni væri að hluta til haldið uppi fyrir tilburði al-Kaída. 29.11.2006 17:26 Íran vill Bandaríkin frá Írak Bréf sem íranski forsetinn Mahmoud Ahmadinejad skrifaði nýverið til bandarísku þjóðarinnar var gert opinbert í dag. Í því sakar hann George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, um að stjórna með "þvingunum, valdi og óréttlæti". Þá hvatti hann Bandaríkin til þess að draga herlið sitt frá Írak og að viðurkenna tilvist Palestínu sem sjálfstæðs ríkis. 29.11.2006 17:10 Norðmenn neita ásökunum um tvöfeldni Norðmenn hafa neitað því, reiðilega, að samningamaður þeirra á Sri Lanka hafi gefið einum leiðtoga Tamíl tígra peninga, til þess að kaupa vopn, og sjálfur þegið peninga frá tígrunum. Þessu er haldið fram í dagblaði sem sagt er málpípa stjórnvalda á Sri Lanka. 29.11.2006 16:37 Al Kæda fordæma heimsókn páfa til Tyrklands Al Kæda vængurinn í Írak hefur fordæmt heimsókn Benedikts páfa til Tyrklands og segir að hún sé hluti af krossferð til þess að skilja Tyrkland frá heimi múslima. 29.11.2006 16:10 Fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands veikist á dularfullan hátt Jegor Gaidar, fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands, liggur á sjúkrahúsi í Moskvu eftir að hafa veikst á dularfullan hátt í heimsókn til Írlands á dögunum. Gaidar, sem er mörgum talinn maðurinn á bak við efnahagsumbætur í Rússlandi eftir fall Sovétríkjanna, féll í öngvit í Dyflinni þar sem hann var að kynna nýja bók sína og var um tíma óttast um líf hans 29.11.2006 15:45 Pabbi er kominn Rúmensk kona ætlar í mál við kirkjuna eftir að hún fékk jarðneskar leifar föður síns sendar í pósti, vegna þess að byggingafélag hafði keypt kirkjugarðinn undir íbúðablokkir. Faðir hennar lést fyrir sextán árum. 29.11.2006 14:59 Stuðningsmenn al-Sadrs mótmæla fundi Malikis með Bush Ráðherrar og þingmenn sem hliðhollir eru sjíaklerknum Muqtada al-Sadr hafa sagt sig úr ríkisstjórn Íraks og hætt þátttöku í starfi írakska þingsins til þess að mótmæla fundi forsætisráðherrans Nouris al-Malikis með George Bush Bandaríkjaforseta í Jórdaníu. 29.11.2006 14:57 Var Stonehenge heilunarmiðstöð ? Breskur prófessor í fornleifafræði hefur sett fram þá tilgátu að hið fornfræga mannvirki Stonehenge hafi í upphafi verið lækningastaður, hvert menn komu til þess að fá bót meina sinna. Helstu samlíkinguna sé að finna í kraftaverkastaðnum Lourdes, í Frakklandi. 29.11.2006 14:16 Blaðamaður reyndi að hlera bresku konungsfjölskylduna Blaðamaður breska slúðurblaðsins News of the World játaði fyrir rétti, í dag, að hafa reynt að hlera síma bresku konungsfjölskyldunnar. 29.11.2006 13:52 Pálmatrjám fækkað í Los Angeles Mikinn hroll hefur sett að íbúum Los Angeles vegna þess að borgaryfirvöld hafa ákveðið að fækka stórlega pálmatrjám í borginni. Þau hafa löngum verið talin meðal helstu sérkenna hennar. 29.11.2006 13:26 Talin hafa sett barn sitt í örbylgjuofn Bandarísk kona hefur verið handtekin vegna gruns um að hún hafi myrt mánaðargamalt barn sitt með því að setja það í örbylgjuofn. Engir ytri áverkar sáust á barninu en sum líffæra þess voru hins vegar illa brennd og þykir það benda til að það hafi verið myrt á þennan óhugnanlega hátt. Móðirin neitar öllum ásökunum. 29.11.2006 13:00 Saudi-Arabía tilbúin að fara í stríð Saudi-Arabía er reiðubúin að beita öllu sínu afli, hvort sem er í peningum, vopnum eða oíu til þess að koma í veg fyrir að sjía múslimar í Írak kúgi og myrði súnní múslima, þegar Bandaríkjamenn byrja að flytja herlið sitt frá landinu. 29.11.2006 12:53 Hisbolla vilja taka völdin í Líbanon 29.11.2006 12:44 MacDonalds sækir um einkaleyfi á samlokum MacDonalds, hamborgarastaðurinn frægi, hefur nú sótt um einkaleyfi á samlokum. Hefur staðurinn sótt um leyfið í Bandaríkjunum og Evrópu og segir að það muni hjálpa sér að þróa sínar samlokur og að ná því að hafa þær eins alls staðar. 28.11.2006 23:43 Börnin eiga að njóta forgangs Kofi Annan ávarpaði í dag öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og sagði þar frá því að í átökunum í Mið-Austurlöndum væru börn farin að verða hermenn. Hann talaði um nauðsyn þess að koma í veg fyrir þessa þróun og bætti við að flestir flóttamenn á átakasvæðum væru konur og börn. 28.11.2006 23:21 NATO-ríki lofa aukinni þátttöku í Afganistan Á ráðstefnu Norður-Atlantshafs Bandalagsins (NATO) lofuðu aðildarríki því að leyfa herliðum sín í Afganistan að taka þátt í bardögum en George W. Bush Bandaríkjaforseti hafði lagt mikla áherslu á málið fyrir ráðstefnuna. 28.11.2006 23:01 Býflugur í bandaríska herinn Bandaríski herinn er farinn að þjálfa nýja tegund af hermönnum. Og með nýrri tegund er átt við aðra tegund en mannkynið því nýju hermennirnir eru býflugur. Rannsóknarstofnun bandaríska hersins skýrði frá því í gær að þeim hefði tekist að þjálfa venjulegar býflugur til þess að finna lykt af mörgum tegundum af sprengiefni og að leita það uppi. 28.11.2006 22:40 Karlmaður heimtaði frí vegna óléttu Suður-Afrískur maður ákvað nýlega að verða sér úti um vikufrí í vinnunni. Hann fór því með kærustu sinni, sem var ólétt, til kvensjúkdómalæknis og stal þar vottorði. Þvínæst fyllti hann það út með sínu nafni og skilaði inn til yfirmanna sinna. Á vottorðinu stóð að hann þyrfti viku frí frá vinnu þar sem hann væri óléttur. 28.11.2006 22:19 Íraski herinn að verða tilbúinn Þrettán af 112 herdeildum íraska hersins geta nú barist óstuddar við uppreisnarmenn þar í landi. Þetta kom fram í ræðu sem breskur ráðherra hélt í dag. Hann sagði ennfremur að 78 herdeildir þyrftu lágmarksstuðning en þær sem eftir væru væru enn í þjálfun. Ein írösk herdeild hefur um 500 hermenn. 28.11.2006 22:13 Frelsi á internetinu Kanadískir tölvufræðingar hafa búið til forrit sem mun gera notendum þess kleift að komast fram hjá eldveggjum ríkisstjórna á internetinu sem þýðir að fólk í löndum sem takmarka aðgang að efni á internetinu gæti skoðað hvað sem það vildi. 28.11.2006 22:02 Haldið upp á 80 ára afmæli Kastró Hátíðishöld vegna 80 ára afmælis Fídels Kastró, forseta Kúbu, hófust í dag en Kastró sást þó hvergi þar sem hann er enn að jafna sig eftir neyðaruppskurð sem hann fór í þann 31. júlí síðastliðinn. Margir Kúbverjar telja að Kastró sé of gamall til þess að snúa aftur til valda en hann eftirlét bróður sínum stjórntaumana eftir uppskurðinn. 28.11.2006 21:26 Fimm stúlkur láta lífið í áhlaupi Bandaríkjahers Sex Írakar, þar á meðal fimm ungar stúlkur, létu lífið í skotabardögum á milli bandarískra hermanna og grunaðra uppreisnarmanna í bænum Ramadi í dag. Bandaríska hersveitin notaði vopn gegn skriðdrekum, hríðskotabyssu og venjulegar byssur í skotbardaganum gegn tveimur mönnum sem voru uppi á þaki hússins sem stúlkurnar voru í. 28.11.2006 21:10 Norðmenn að taka við flugvellinum í Kabúl Norðmenn hafa boðist til þess að taka við stjórninni á flugvellinum í Kabúl en þeir tóku þó fram að þeir myndu aðeins gera það í sex mánuði og að þátttaka þeirra ylti á því hvað þeir yrðu beðnir um að gera. 28.11.2006 20:54 Fleiri fjölmiðlar segja ástandið í Írak borgarastríð Eftir að sjónvarpsstöðin CNN fór að kalla ástandið í Írak borgarastyrjöld hafa fleiri fréttamiðlar tekið heitið upp og það gegn vilja Hvíta hússins. Á meðal þessara miðla er dagblaðið New York Times en ritstjóri þess sagði að erfitt væri að færa rök fyrir því að það væri ekki borgarastyrjöld í Írak. 28.11.2006 20:20 Pútin ekki til Riga Talsmenn Pútins Rússlandsforseta sögðu í kvöld að hann gæti ekki farið til Riga til þess að eiga fund með forsetum Frakklands og Lettlands en nú stendur yfir leiðtogafundur NATO í Riga. Talað var um að fundur gæti átt sér stað á miðvikudaginn þegar að leiðtogafundi NATO myndi ljúka en ekki var hægt að finna tíma þar sem þeir gátu allir hist og því var hætt við fyrirhugaðan fund. 28.11.2006 20:11 Myrti fimm veiðimenn Grískur sauðfjárbóndi hefur viðurkennt að hafa skotið fimm veiðimenn til bana sem farið höfðu í óleyfi um landareign hans. 28.11.2006 20:00 Ísraelar halda sig við vopnahlé Ísraelski forsætisráðherrann Ehud Olmert sagðist í dag vonsvikinn yfir því að enn væri verið að skjóta flugskeytum frá Gaza á Ísrael en hélt því engu að síður fram að Ísraelar héldu sig við vopnahléið. 28.11.2006 19:52 Bandaríkjaher yfirgefi Írak Lykillinn að því að binda enda á vargöldina í Írak er að bandarískar hersveitir yfirgefi landið. Þetta sagði Ali Khameini, erkiklerkur í Íran, á fundi sínum með Jalal Talabani Íraksforseta í dag. 28.11.2006 19:45 Páfi í sáttahug Benedikt páfi sextándi rétti múslimum sáttarhönd við komuna til Ankara í Tyrklandi í dag. 28.11.2006 19:30 Varnirnar ekki ennþá fullnægjandi Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra ætlar á morgun að ræða við Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, um varnarsamstarf. Núverandi fyrirkomulag varna Íslands er ekki fullnægjandi, að mati ráðherrans. 28.11.2006 19:15 Sigríður Dúna afhendir trúnaðarbréf Föstudaginn 24. nóvember afhenti Sigríður Dúna Kristmundsdóttir Thabo Mbeki forseta Suður-Afríku trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Suður-Afríku. Fór afhendingin fram við hátíðlega athöfn í bústað forseta í Pretoríu, höfuðborg Suður-Afríku. 28.11.2006 19:01 Afganistan efst á baugi Enn frekari stækkun til austurs og hernaðurinn í Afganistan, eru efst á baugi á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem hófst í Lettlandi í dag. Georgía og Úkraína eru á meðal þeirra ríkja sem gætu fengið aðild að bandalaginu á næstu misserum. 28.11.2006 18:57 Íslendingar miðla málum í Sri Lanka Anna Jóhannsdóttir, yfirmaður íslensku friðargæslunnar, hitti í dag leiðtoga pólitísks arms Tamíltígranna ásamt föruneyti sínu og var tilgangurinn að kynnast aðeins fyrir hugsanlegar viðræður sem hin íslenska friðargæsla myndi taka þátt í. Jón Óskar Sólnes og Þorfinnur Ómarsson sátu einnig fundinn. 28.11.2006 18:24 Bemba í stjórnarandstöðu Jean-Pierre Bemba, maðurinn sem tapaði forsetakosningunum í Austur-Kongó fyrir Joseph Kabila í gær, hefur sagt að hann muni starfa í stjórnarandstöðu til þess að vernda hinn viðkvæma frið sem er í landinu um þessar mundir og bjarga þannig landinu frá óreiðu og ofbeldi. Í yfirlýsingu sem Bemba gaf frá sér sagði hann að hann stæði við kvartanir sínar sem var vísað frá dómi í gær en myndi engu að síður vilja styrkja lýðræðið í landinu og myndi því starfa í stjórnarandstöðu. 28.11.2006 17:52 Correa næsti forseti Ekvador Hæstaréttardómari í kjörstjórn í Ekvador sagði í dag að Rafael Correa hefði unnið sigur í forestakosningum í Ekvador eftir að 94% atkvæða höfðu verið talin. Sagði hann að Correa væri með alls 57% atkvæða og að niðurstöður ættu ekki eftir að breytast. Hins vegar var annar dómari sem vildi ekki staðfesta sigur Correa strax og sagði að réttara væri að bíða uns öll atkvæði hefðu verið talin. 28.11.2006 17:40 Sjá næstu 50 fréttir
Jólunum aflýst Skóli á Spáni hefur aflýst öllum hátíðahöldum vegna jólanna í ár til þess að móðga ekki börn sem eru ekki kristin. Skólinn, sem er í Zaragoza á Spáni, sagði að kennararnir hefðu komið með þessa tillögu en einna helst er álitið að það sé vegna fjölda múslimskra barna í skólanum. 29.11.2006 21:00
Golfstraumurinn hægði á sér Golfstraumurinn hægði á sér um allt að 10% á tímabilinu 1200 til 1850, sem kallað er litla ísöldin, en þetta kom fram í rannsókn sem bandarískir vísindamenn birtu í dag og er búist við því að hún eigi eftir að gefa einhverjar nýjar vísbendingar um gróðurhúsaáhrifin svokölluðu. 29.11.2006 20:50
LRA dregur sig úr friðarviðræðum Uppreisnarmenn í Úganda hafa dregið sig úr friðarviðræðum við stjórnvöld þar í landi. Þeir segjast gera það þar sem stjórnarherinn hafi myrt þrjá hermenn þeirra sem voru á leið á fyrirfram ákveðna vin uppreisnarmanna, sem þeir dveljast í á meðan viðræðum stendur. Uppreisnarmennirnir eru í hópnum Uppreisnarher drottins (LRA) og vilja stofna ríki sem byggt er á boðorðunum tíu. 29.11.2006 20:37
Sarkozy tilkynnir framboð Innanríkisráðherra Frakklands, Nicolas Sarkozy, hefur lýst því yfir að hann muni sækjast eftir útnefningu hægri manna sem forsetaframbjóðandi þeirra á flokksþingi þeirra sem mun fara fram í janúar á næsta ári. Talið er líklegt að hann eigi eftir að hljóta útnefninguna þar sem sitjandi forseti Jaques Chirac, ætlar sér ekki fram í þriðja sinn. 29.11.2006 20:27
Ísraelar sleppa fanga Ísraelsk yfirvöld skýrðu frá því í dag að þeir hefðu leyst úr haldi einn af ráðherrum Hamas samtakanna sem þeir hnepptu í gæslu eftir að vígamenn rændu Ísraelskum hermanni í júní síðastliðnum. Ekki er þó vitað á þessari stundu hvort að það hafi eitthvað með hugsanleg fangaskipti að ræða en sem stendur ríkir vopnahlé á milli Ísraela og herskárra Palestínumanna. 29.11.2006 19:29
Skýrslan um Írak væntanleg 6. desember Búist er við því að nefnd sem George W. Bush Bandaríkjaforseti skipaði til þess að meta stefnuna í Írak og koma með nýjar tillögur um hvað er hægt að gera skili skýrslu sinni af sér þann sjötta desember næstkomandi. Nefndin starfar sjálfstætt og er þverpólitískt skipuð. Einnig er búist við því að hún eigi eftir að mæla með samstarfi með Sýrlandi og Íran til þess að reyna að stöðva þá öldu ofbeldis sem gengur yfir landið um þessar mundir. 29.11.2006 19:14
BA finnur leifar af geislavirku efni í tveimur flugvélum British Airways skýrði frá því í dag að það hefði fundið leifar af geislavirka efninu sem að varð Alexande Litvinenko, fyrrum rússneskum njósnara, að bana. Flugfélagið skýrði frá því að þrjár skammfleygar B767 vélar hefðu verið teknar úr umferð til þess að hægt væri að rannsaka þær. 29.11.2006 19:07
Bush frestar fundi til morguns George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur frestað fundi sínum með íraska forsætisráðherranum Nuri al-Maliki fram til morguns. Þetta var gert þar sem al-Maliki og Abdullah konungur Sýrlands höfðu þegar átt fund í dag en ráðgert hafði verið að þeir þrír myndu eiga fund í kvöld. 29.11.2006 18:48
Útlit hjálpar í kosningum Rannsókn sem skandinavískir hagfræðingar gerðu nýlega sýndi fram á að það hjálpar stjórnmálamönnum að vera myndarlegir og vegur sá þáttur hvað þyngst þegar mjótt er á munum. Hjálpar þetta konum meira ef kona og karl keppast um embættið en þetta kemur karlmönnum þó líka til góða. 29.11.2006 18:06
Íran leitar fanga í Austur-Kongó Nokkur lönd og þar á meðal Íran eru grunuð um að hafa reynt að nýta sér ástandið í Austur-Kongó til þess að næla sér ólöglega í úranínum. Á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar þegar landið var enn belgísk nýlenda sá Austur-Kongó Bandaríkjamönnum fyrir úrani í þær kjarnorkusprengjur sem síðar voru notaðar á japönsku borgirnar Hiroshima og Nagasaki. 29.11.2006 17:57
Rússar segja al-Kaída að störfum í Téteníu Andhryðjuverkasveit rússnesku lögreglunnar sagði í dag að jórdanskur maður sem lést í átökum rússneskra sérsveita og tétenskra uppreisnarmanna á sunnudaginn var hefði verið meðlimur al-Kaída. Sögðu þeir þetta sýna fram á að uppreisninni væri að hluta til haldið uppi fyrir tilburði al-Kaída. 29.11.2006 17:26
Íran vill Bandaríkin frá Írak Bréf sem íranski forsetinn Mahmoud Ahmadinejad skrifaði nýverið til bandarísku þjóðarinnar var gert opinbert í dag. Í því sakar hann George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, um að stjórna með "þvingunum, valdi og óréttlæti". Þá hvatti hann Bandaríkin til þess að draga herlið sitt frá Írak og að viðurkenna tilvist Palestínu sem sjálfstæðs ríkis. 29.11.2006 17:10
Norðmenn neita ásökunum um tvöfeldni Norðmenn hafa neitað því, reiðilega, að samningamaður þeirra á Sri Lanka hafi gefið einum leiðtoga Tamíl tígra peninga, til þess að kaupa vopn, og sjálfur þegið peninga frá tígrunum. Þessu er haldið fram í dagblaði sem sagt er málpípa stjórnvalda á Sri Lanka. 29.11.2006 16:37
Al Kæda fordæma heimsókn páfa til Tyrklands Al Kæda vængurinn í Írak hefur fordæmt heimsókn Benedikts páfa til Tyrklands og segir að hún sé hluti af krossferð til þess að skilja Tyrkland frá heimi múslima. 29.11.2006 16:10
Fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands veikist á dularfullan hátt Jegor Gaidar, fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands, liggur á sjúkrahúsi í Moskvu eftir að hafa veikst á dularfullan hátt í heimsókn til Írlands á dögunum. Gaidar, sem er mörgum talinn maðurinn á bak við efnahagsumbætur í Rússlandi eftir fall Sovétríkjanna, féll í öngvit í Dyflinni þar sem hann var að kynna nýja bók sína og var um tíma óttast um líf hans 29.11.2006 15:45
Pabbi er kominn Rúmensk kona ætlar í mál við kirkjuna eftir að hún fékk jarðneskar leifar föður síns sendar í pósti, vegna þess að byggingafélag hafði keypt kirkjugarðinn undir íbúðablokkir. Faðir hennar lést fyrir sextán árum. 29.11.2006 14:59
Stuðningsmenn al-Sadrs mótmæla fundi Malikis með Bush Ráðherrar og þingmenn sem hliðhollir eru sjíaklerknum Muqtada al-Sadr hafa sagt sig úr ríkisstjórn Íraks og hætt þátttöku í starfi írakska þingsins til þess að mótmæla fundi forsætisráðherrans Nouris al-Malikis með George Bush Bandaríkjaforseta í Jórdaníu. 29.11.2006 14:57
Var Stonehenge heilunarmiðstöð ? Breskur prófessor í fornleifafræði hefur sett fram þá tilgátu að hið fornfræga mannvirki Stonehenge hafi í upphafi verið lækningastaður, hvert menn komu til þess að fá bót meina sinna. Helstu samlíkinguna sé að finna í kraftaverkastaðnum Lourdes, í Frakklandi. 29.11.2006 14:16
Blaðamaður reyndi að hlera bresku konungsfjölskylduna Blaðamaður breska slúðurblaðsins News of the World játaði fyrir rétti, í dag, að hafa reynt að hlera síma bresku konungsfjölskyldunnar. 29.11.2006 13:52
Pálmatrjám fækkað í Los Angeles Mikinn hroll hefur sett að íbúum Los Angeles vegna þess að borgaryfirvöld hafa ákveðið að fækka stórlega pálmatrjám í borginni. Þau hafa löngum verið talin meðal helstu sérkenna hennar. 29.11.2006 13:26
Talin hafa sett barn sitt í örbylgjuofn Bandarísk kona hefur verið handtekin vegna gruns um að hún hafi myrt mánaðargamalt barn sitt með því að setja það í örbylgjuofn. Engir ytri áverkar sáust á barninu en sum líffæra þess voru hins vegar illa brennd og þykir það benda til að það hafi verið myrt á þennan óhugnanlega hátt. Móðirin neitar öllum ásökunum. 29.11.2006 13:00
Saudi-Arabía tilbúin að fara í stríð Saudi-Arabía er reiðubúin að beita öllu sínu afli, hvort sem er í peningum, vopnum eða oíu til þess að koma í veg fyrir að sjía múslimar í Írak kúgi og myrði súnní múslima, þegar Bandaríkjamenn byrja að flytja herlið sitt frá landinu. 29.11.2006 12:53
MacDonalds sækir um einkaleyfi á samlokum MacDonalds, hamborgarastaðurinn frægi, hefur nú sótt um einkaleyfi á samlokum. Hefur staðurinn sótt um leyfið í Bandaríkjunum og Evrópu og segir að það muni hjálpa sér að þróa sínar samlokur og að ná því að hafa þær eins alls staðar. 28.11.2006 23:43
Börnin eiga að njóta forgangs Kofi Annan ávarpaði í dag öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og sagði þar frá því að í átökunum í Mið-Austurlöndum væru börn farin að verða hermenn. Hann talaði um nauðsyn þess að koma í veg fyrir þessa þróun og bætti við að flestir flóttamenn á átakasvæðum væru konur og börn. 28.11.2006 23:21
NATO-ríki lofa aukinni þátttöku í Afganistan Á ráðstefnu Norður-Atlantshafs Bandalagsins (NATO) lofuðu aðildarríki því að leyfa herliðum sín í Afganistan að taka þátt í bardögum en George W. Bush Bandaríkjaforseti hafði lagt mikla áherslu á málið fyrir ráðstefnuna. 28.11.2006 23:01
Býflugur í bandaríska herinn Bandaríski herinn er farinn að þjálfa nýja tegund af hermönnum. Og með nýrri tegund er átt við aðra tegund en mannkynið því nýju hermennirnir eru býflugur. Rannsóknarstofnun bandaríska hersins skýrði frá því í gær að þeim hefði tekist að þjálfa venjulegar býflugur til þess að finna lykt af mörgum tegundum af sprengiefni og að leita það uppi. 28.11.2006 22:40
Karlmaður heimtaði frí vegna óléttu Suður-Afrískur maður ákvað nýlega að verða sér úti um vikufrí í vinnunni. Hann fór því með kærustu sinni, sem var ólétt, til kvensjúkdómalæknis og stal þar vottorði. Þvínæst fyllti hann það út með sínu nafni og skilaði inn til yfirmanna sinna. Á vottorðinu stóð að hann þyrfti viku frí frá vinnu þar sem hann væri óléttur. 28.11.2006 22:19
Íraski herinn að verða tilbúinn Þrettán af 112 herdeildum íraska hersins geta nú barist óstuddar við uppreisnarmenn þar í landi. Þetta kom fram í ræðu sem breskur ráðherra hélt í dag. Hann sagði ennfremur að 78 herdeildir þyrftu lágmarksstuðning en þær sem eftir væru væru enn í þjálfun. Ein írösk herdeild hefur um 500 hermenn. 28.11.2006 22:13
Frelsi á internetinu Kanadískir tölvufræðingar hafa búið til forrit sem mun gera notendum þess kleift að komast fram hjá eldveggjum ríkisstjórna á internetinu sem þýðir að fólk í löndum sem takmarka aðgang að efni á internetinu gæti skoðað hvað sem það vildi. 28.11.2006 22:02
Haldið upp á 80 ára afmæli Kastró Hátíðishöld vegna 80 ára afmælis Fídels Kastró, forseta Kúbu, hófust í dag en Kastró sást þó hvergi þar sem hann er enn að jafna sig eftir neyðaruppskurð sem hann fór í þann 31. júlí síðastliðinn. Margir Kúbverjar telja að Kastró sé of gamall til þess að snúa aftur til valda en hann eftirlét bróður sínum stjórntaumana eftir uppskurðinn. 28.11.2006 21:26
Fimm stúlkur láta lífið í áhlaupi Bandaríkjahers Sex Írakar, þar á meðal fimm ungar stúlkur, létu lífið í skotabardögum á milli bandarískra hermanna og grunaðra uppreisnarmanna í bænum Ramadi í dag. Bandaríska hersveitin notaði vopn gegn skriðdrekum, hríðskotabyssu og venjulegar byssur í skotbardaganum gegn tveimur mönnum sem voru uppi á þaki hússins sem stúlkurnar voru í. 28.11.2006 21:10
Norðmenn að taka við flugvellinum í Kabúl Norðmenn hafa boðist til þess að taka við stjórninni á flugvellinum í Kabúl en þeir tóku þó fram að þeir myndu aðeins gera það í sex mánuði og að þátttaka þeirra ylti á því hvað þeir yrðu beðnir um að gera. 28.11.2006 20:54
Fleiri fjölmiðlar segja ástandið í Írak borgarastríð Eftir að sjónvarpsstöðin CNN fór að kalla ástandið í Írak borgarastyrjöld hafa fleiri fréttamiðlar tekið heitið upp og það gegn vilja Hvíta hússins. Á meðal þessara miðla er dagblaðið New York Times en ritstjóri þess sagði að erfitt væri að færa rök fyrir því að það væri ekki borgarastyrjöld í Írak. 28.11.2006 20:20
Pútin ekki til Riga Talsmenn Pútins Rússlandsforseta sögðu í kvöld að hann gæti ekki farið til Riga til þess að eiga fund með forsetum Frakklands og Lettlands en nú stendur yfir leiðtogafundur NATO í Riga. Talað var um að fundur gæti átt sér stað á miðvikudaginn þegar að leiðtogafundi NATO myndi ljúka en ekki var hægt að finna tíma þar sem þeir gátu allir hist og því var hætt við fyrirhugaðan fund. 28.11.2006 20:11
Myrti fimm veiðimenn Grískur sauðfjárbóndi hefur viðurkennt að hafa skotið fimm veiðimenn til bana sem farið höfðu í óleyfi um landareign hans. 28.11.2006 20:00
Ísraelar halda sig við vopnahlé Ísraelski forsætisráðherrann Ehud Olmert sagðist í dag vonsvikinn yfir því að enn væri verið að skjóta flugskeytum frá Gaza á Ísrael en hélt því engu að síður fram að Ísraelar héldu sig við vopnahléið. 28.11.2006 19:52
Bandaríkjaher yfirgefi Írak Lykillinn að því að binda enda á vargöldina í Írak er að bandarískar hersveitir yfirgefi landið. Þetta sagði Ali Khameini, erkiklerkur í Íran, á fundi sínum með Jalal Talabani Íraksforseta í dag. 28.11.2006 19:45
Páfi í sáttahug Benedikt páfi sextándi rétti múslimum sáttarhönd við komuna til Ankara í Tyrklandi í dag. 28.11.2006 19:30
Varnirnar ekki ennþá fullnægjandi Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra ætlar á morgun að ræða við Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, um varnarsamstarf. Núverandi fyrirkomulag varna Íslands er ekki fullnægjandi, að mati ráðherrans. 28.11.2006 19:15
Sigríður Dúna afhendir trúnaðarbréf Föstudaginn 24. nóvember afhenti Sigríður Dúna Kristmundsdóttir Thabo Mbeki forseta Suður-Afríku trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Suður-Afríku. Fór afhendingin fram við hátíðlega athöfn í bústað forseta í Pretoríu, höfuðborg Suður-Afríku. 28.11.2006 19:01
Afganistan efst á baugi Enn frekari stækkun til austurs og hernaðurinn í Afganistan, eru efst á baugi á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem hófst í Lettlandi í dag. Georgía og Úkraína eru á meðal þeirra ríkja sem gætu fengið aðild að bandalaginu á næstu misserum. 28.11.2006 18:57
Íslendingar miðla málum í Sri Lanka Anna Jóhannsdóttir, yfirmaður íslensku friðargæslunnar, hitti í dag leiðtoga pólitísks arms Tamíltígranna ásamt föruneyti sínu og var tilgangurinn að kynnast aðeins fyrir hugsanlegar viðræður sem hin íslenska friðargæsla myndi taka þátt í. Jón Óskar Sólnes og Þorfinnur Ómarsson sátu einnig fundinn. 28.11.2006 18:24
Bemba í stjórnarandstöðu Jean-Pierre Bemba, maðurinn sem tapaði forsetakosningunum í Austur-Kongó fyrir Joseph Kabila í gær, hefur sagt að hann muni starfa í stjórnarandstöðu til þess að vernda hinn viðkvæma frið sem er í landinu um þessar mundir og bjarga þannig landinu frá óreiðu og ofbeldi. Í yfirlýsingu sem Bemba gaf frá sér sagði hann að hann stæði við kvartanir sínar sem var vísað frá dómi í gær en myndi engu að síður vilja styrkja lýðræðið í landinu og myndi því starfa í stjórnarandstöðu. 28.11.2006 17:52
Correa næsti forseti Ekvador Hæstaréttardómari í kjörstjórn í Ekvador sagði í dag að Rafael Correa hefði unnið sigur í forestakosningum í Ekvador eftir að 94% atkvæða höfðu verið talin. Sagði hann að Correa væri með alls 57% atkvæða og að niðurstöður ættu ekki eftir að breytast. Hins vegar var annar dómari sem vildi ekki staðfesta sigur Correa strax og sagði að réttara væri að bíða uns öll atkvæði hefðu verið talin. 28.11.2006 17:40