Fleiri fréttir

Léttklæddum dvergum stolið

Léttklæddum garðdvergum hefur verið stolið úr skemmtigarði í Þýskalandi. Dverganna er sárt saknað en þeir eru helsta aðdráttarafl Dwarf Park Trusetal þar sem gægjuhneigð gesta er fullnægt. Í gegnum skráargöt sést í hold garðdverganna sem þekktir eru fyrir djarfar stellingar.

Nýr árgangur af rauðvínum

Frakkar sjá rautt þessi dægrin því fyrstu flöskurnar af nýjum rauðvínsárgangi eru komnar á markað. Það er ævinlega kátt á hjalla þegar Beaujolais Nouveau flöskurnar streyma inn á bari í Frakklandi, þriðja fimmtudag í nóvember, og það sama var uppi á teningunum í morgun.

Kyoto-sáttmálinn tekur brátt gildi

Eftir langa bið og endalaust japl, jamm og fuður stendur nú ekkert í vegi fyrir því að Kyoto-sáttmálinn um hlýnun jarðar taki gildi 16. febrúar næstkomandi. Rússar skrifuðu í morgun undir sáttmálann og því verða þær þjóðir, sem áður höfðu undirritað sáttmálann, skuldbundnar til að hlýta skilmálum hans og að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda.

Stjórnmálamenn eru óheiðarlegir

Stjórnmálamenn eru óheiðarlegir og haga sér ósiðlega. Þeir hafa of mikil völd og ábyrgð og láta aðra valdamikla menn hafa of mikil áhrif á sig. Þetta eru meginniðurstöður alþjóðlegrar könnunar, sem kynnt var í dag.

Karl prins vekur reiði Breta

Karl prins vakti mikla óánægju í Bretlandi þegar efni minnismiða varð opinbert, þar sem hann fer hörðum orðum um leti, hæfileikaleysi og óeðlilegan metnað landa sinna.

Framkvæmdastjórnin loks samþykkt

Þingmenn á þingi Evrópusambandsins samþykktu í gær nýja framkvæmdastjórn sambandsins, þremur vikum eftir að andstaða þeirra við upphaflega tillögu að skipan framkvæmdastjórnarinnar varð til þess að hún var dregin til baka.

Skutu þrjá egypska hermenn

Ísraelskir hermenn skutu þrjá egypska lögreglumenn til bana á landamærum Gaza og Egyptalands í gærmorgun. Ísraelarnir urðu varir við mannaferðir nærri landamærunum og töldu að þar væru á ferð Palestínumenn að smygla vopnum. Þeir skutu því á þá úr skriðdreka.

Fá sjúkraskýrslu Arafats

Palestínska heimastjórnin fær sjúkraskýrslu Jassers heitins Arafats í sínar hendur þrátt fyrir að frönsk lög heimili einungis að nánir ættingjar hans hafi aðgang að þeim. Ástæðan er sú að frændi Arafats, Nasser al-Qidwa, sem er fulltrúi Palestínu hjá Sameinuðu þjóðunum, á rétt á að fá gögnin og ætlar að afhenda Palestínustjórn þau.

Afganistan að verða fíkniefnaríki

Afganistan er komið langt á leið með að verða fíkniefnaríki og til marks um það er að ópíumframleiðsla hefur aukist um nær tvo þriðju á einu ári. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Þar er hvatt til þess að hersveitir Atlantshafsbandalagsins í Afganistan ráðist gegn fíkniefnaframleiðslu.

Óvíða meiri lífsgæði en hérlendis

Ísland er sjöunda besta land í heimi til að búa í samkvæmt úttekt breska tímaritsins The Economist á lífsgæðum í 111 ríkjum. Best er að búa á Írlandi en verst eru lífsgæðin í Simbabve samkvæmt könnuninni sem unnin er fyrir "World in 2005", árlegt rit sem The Economist gefur út.

Á annan tug létust

Í það minnsta sautján Írakar létust í gær vegna ofbeldisöldunnar sem riðið hefur yfir landið frá því að bandarískar og íraskar hersveitir réðust til atlögu í Falluja fyrir tæpum tveimur vikum. Sjö létust í sprengjuárásum á þjóðvegum nærri Samarra og Baiji.

Óveður hamlar samgöngum í Danmörku

Loka þurfti brúnni yfir Stóra belti næturlangt vegna óveðurs sem gekk yfir Danmörku í fyrrinótt. Vindurinn reif upp tré og feykti þökum af húsum auk þess sem sjávarborð hækkaði um allt að fjóra metra í mörgum höfnum á vesturströnd Danmerkur.

Íranar þróa kjarnorkueldflaugar

Bandarísk stjórnvöld hafa undir höndum gögn sem gefa til kynna að Íranar vinni að þróun eldflauga sem geta flutt kjarnorkusprengjur til skotmarka sinna, sagði Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hann sagðist í engum vafa um að Íranar hefðu áhuga á að koma sér upp kjarnorkuvopnum og eldflaugum sem gætu flutt þau.

Skildi við mömmu sína

Sautján ára stúlka hefur fengið lögskilnað frá móður sinni. Lögskilnaðinn fékk hún á grundvelli nýrra laga sem gefa börnum að segja skilið við foreldra sína ef þeim er ómögulegt að búa saman.

Ágreiningur um Íraksstríðið

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir að vissulega sé ágreiningur milli Breta og Frakka um réttmæti Íraksstríðsins en það sé bara ágreiningur.

Neðanjarðarborg í Belgrad

Neðanjarðarbyrgi tengd saman með leynigöngum hafa fundist í Belgrad, höfuðborg Serbíu-Svartfjallalands. Talið er að eftirlýstir stríðsglæpamenn hafi falið sig í byrgjunum, sem fjölmiðlar í Serbíu-Svartfjallalandi, hafa lýst sem "neðjanjarðarborg".

Atlantis fundin fyrir strönd Kýpur

Bandarískir vísindamenn telja sig hafa fundð hina týndu borg Atlantis úti fyrir strönd Kýpur. Samkvæmt sonar-mælingum þeirra virðast stór mannvirki vera á hafsbotninum milli Kýpur og Sýrlands. Vísindamennirnir segja að umfang mannvirkjanna og stærð þeirra passi við frásagnir Plató af borginni og konungdæminu.

Reynir allt til að tryggja frið

Mahmoud Abbas, sitjandi leiðtogi Palestínumanna, reynir nú allt til að semja við andstæðinga sína um að tryggja frið á svæðinu. Leiðtogar Hamas samtakanna funduðu í gær með Abbas og ræddu þá hvaða hlutverk íslamskir hópar muni hafa í framtíðarstjórn landsins.

Bysumenn á þinginu í Ekvador

Það hitnaði heldur betur í kolunum á þingi miðbaugsríkisins Ekvadors, þegar stuðningsmenn forsetans og andstæðingar tókust þar á og eldheitur stuðningsmaður forsetans dró upp byssu. Öryggisverðir urðu að skerast í leikinn og yfirbuga óeirðaseggina.

Heimurinn hættulegri

Heimurinn er hættulegri eftir Íraksstríðið, að mati Jacques Chiracs, forseta Frakklands. Chirac er væntanlegur í opinbera heimsókn til Bretlands á morgun, og sagði í viðtali við BBC meðal annars, að hann teldi engar líkur á að Bretar gætu miðlað málum á milli Frakka og Bandaríkjamanna. <font size="4"></font>

Hassan líklega skotin til bana

Allar líkur eru á því að konan, sem írakskir hryðjuverkamenn sjást skjóta til bana á myndbandsupptöku sem send var arabískri sjónvarpsstöð í gær, sé Margaret Hassan, yfirmaður CARE-mannúðarsamtakanna í Írak. Henni var rænt í síðasta mánuði og hún meðal annars neydd til að biðja sér griða á myndbandsupptöku.

Banameinið skorpulifur

Banamein Jassirs Arafats, leiðtoga Palestínumanna, var skorpulifur. Franska dagblaðið Le Monde greinir frá þessu í dag. Alla jafna er skorpulifur rakin til ofneyslu áfengis, en Arafat er sagður hafa verið vatnsdrykkjumaður mikill.

Reiði og sorg í Írak

Reiði og hneykslan ríkir í Írak í kjölfar þess að sýndar voru myndir af því þegar bandarískur hermaður skaut óvopnaðan, illa slasaðan Íraka til bana í Fallujah í gær. Fimm fórust og fimmtán slösuðust í bílsprengingu í morgun.

Heimurinn hættulegri en áður

Heimurinn er hættulegri en áður eftir Íraksstríðið, að mati Jacques Chiracs, forseta Frakklands. Hann segir stuðning Breta við stríðið engu hafa skilað.

Dollarinn lækkar enn

Dollarinn er á hraðri niðurleið gagnvart bæði krónunni og Evru. Dollarinn er kominn niður fyrir 67 krónur íslenskar og hefur hann ekki verið lægri í fjölmörg ár. Þá hefur dollarinn aldrei verið lægri í samanburði við Evruna, síðan hún komst á laggirnar.

Haldið upp á flauelsbyltingu

Tékkar halda í dag upp á 15 ára afmæli flauelsbyltingarinnar svokölluðu, sem leiddi til þess að kommúnistar hrökkluðust frá völdum í gömlu Tékkóslóvakíu. Þann 17. nóvember árið 1989 braut lögregla á bak aftur mótmælaaðgerðir þúsunda stúdenta á götum úti í Prag, sem leiddi til frekari mótmæla og á endanum til falls kommúnista í Tékklandi.

6 þúsund með Persaflóaheilkennið

Um 6 þúsund hermenn búa við afar bága heilsu vegna þáttöku í Persaflóastríðinu, samkvæmt nýrri skýrslu frá Bandaríkjunum. Ekki er nein ein afgerandi ástæða fyrir persaflóaheilkenninu svokallaða, eins og heilsubresturinn er kallaður, en í skýrslunni segir að hermenn sem fóru til Persaflóa séu helmingi líklegri til að þjást af alls kyns kvillum

2 látnir eftir sprengingu í bíói

Tveir létust og 29 slösuðust í sprengjuárás á kvikmyndahús í Pakistan í gær. Sprengjunni hafði verið komið fyrir í plastpoka við fremstu sætaröðina í kvikmyndahúsinu og sprakk hún rétt áður en myndinni lauk. 200 manns voru í salnum þegar sprengjan sprakk, en enginn hefur lýst tilræðinu á hendur sér.

Sprengingar í Buenos Aires

Óljósar fregnir berast af þremur sprengjur við bankaútibú í Buenos Aires í Argentínu. Vitað er að í það minnsta einn hefur látist, öryggisvörður við Citibank.

Ný tegund kjarnorkuflauga

Rússar eru að koma sér upp kjarnorkuflaugum, sem eru öðruvísi en þær flaugar sem nú þekkjast. Vladimir Pútín, forseti Rússlands segir nauðsynlegt að kjarnorkubúnaður landsins sé háþróaður á tímum hryðjuverka. Hann segist fullviss um að ekki muni á löngu líða uns flaugarnar verði tilbúnar til notkunar fyrir flugher landsins.

Sýknaður af bruðli

Jacques Chirac Frakklandsforseti, var í dag sýknaður af ákæru um að hafa bruðlað með almannafé þegar hann var borgarstjóri Parísar á árunum 1988 til 1995. Matarreikningar Chirac á tímabilinu voru að meðatali um 600 Evrur á dag, eða sem nemur rúmum 50 þúsund krónum. Alls borgaði Chirac kokki sínum rúmlega 130 milljónir króna á 7 ára tímabili.

Mannfallið heldur áfram

Mikið mannfall virðist daglegt brauð í Írak. Skærur halda áfram í Fallujah og í nágrannaborgum rekur hvert hryðjuverkið annað. Árásir halda áfram á hluta borgarinnar Fallujah í Írak, þó að talsmenn Bandaríkjahers segi aðgerðum þar lokið.

Sendinefnd til Parísar

Úr hverju dó Jassir Arafat? Það vilja palestínsk yfirvöld fá að vita og hyggjast senda nefnd til Parísar til að krefjast svara. Frá því að Arafat var lagður helsjúkur inn á sjúkrahús í París með ótilgreindan sjúkdóm hafa verið á kreiki sögusagnir þess efnis að ekki væri allt með felldu.

Rússar með nýjar kjarnorkuflaugar

Þeir sem töldu endalok Kalda stríðsins þýða endalok vopnakapphlaupsins virðast hafa haft rangt fyrir sér. Vladímír Pútín, forseti Rússlands, boðar nýja gerð kjarnorkusprengja, sem eiga að geta komist fram hjá stjörnustríðsskildi Bandaríkjanna.

Staðfesta ekki reikninga ESB

Tíunda árið í röð hafa endurskoðendur Evrópusambandsins neitað að votta reikninga þess. Ástæðan er líkt og undanfarin ár sú að ekki er nógu vel staðið að framkvæmd fjárlaga, útborgunum og bókhaldi. Gagnrýnin beinist hvort tveggja að Evrópusambandinu og aðildarríkjum þess.

Írakar drógu sér 1.400 milljarða

Stjórn Saddams Hussein dró sér um 1.400 milljarða króna úr áætlun Sameinuðu þjóðanna sem átti að gera Írökum kleift að selja olíu til að kaupa matvæli og lyf meðan landið sætti viðskiptabanni af hálfu Sameinuðu þjóðanna. Þetta kemur fram í gögnum sem tekin voru saman fyrir bandaríska þingnefnd sem rannsakar spillingu í kringum olíusöluna.

Konur 13 prósent stjórnarmanna

Langt er enn í land með að minnst 40 prósent stjórnarmanna í skráðum norskum fyrirtækjum séu kvenkyns eins og stefnt er að fyrir mitt næsta ár. Þetta kemur fram í skýrslu norsku jafnréttisstofnunarinnar. Hún sýnir að einungis þrettán prósent stjórnarmanna eru kvenkyns.

8.000 fórnarlömb jarðsprengja

Rúmlega átta þúsund manns hið minnsta létust eða slösuðust af völdum jarðsprengja á síðasta ári. Þetta er sá fjöldi atvika sem tilkynnt var um en raunverulegur fjöldi slasaðra og særða getur verið tvöfalt til þrefalt hærri þar sem ekki er tilkynnt um nærri öll atvik, að sögn samtaka sem börðust gegn banni við notkun jarðsprengja.

Hóta að sniðganga kosningarnar

Stjórnmálamenn og aðrir áhrifamenn úr röðum súnnímúslima hótuðu því í gær að sniðganga kosningarnar sem fara eiga fram í janúar og skoruðu á aðra að gera það sama til að mótmæla árásum Bandaríkjahers.

Réðist á mann sinn með öxi

82 ára gömul japönsk kona réðist með öxi á áttræðan eiginmann sinn vegna þess að hana grunaði að hann héldi framhjá sér. Konan réðist á eiginmann sinn þar sem hann lá sofandi í rúmi sínu og hjó hann nokkrum sinnum í höfuðið með öxinni.

Vilja ekki íslamskan helgidag

Hugmynd eins þingmanna Græningja um að lögfesta íslamskan helgidag sem þjóðarfrídag hefur mætt harðri gagnrýni í Þýskalandi. Jürgen Trittin, umhverfisráðherra flokksins, sem lýsti sig opinn fyrir umræðu um hugmyndinni, fékk að kenna á því og söluhæsta dagblað Þýskalands, Bild, sagði hann hafa tapað glórunni.

Um sextíu löggum rænt í Írak

Um sextíu íröskum lögregluþjónum var rænt þegar þeir sneru aftur til Íraks eftir að hafa fengið þjálfun í Jórdaníu.

Rice tekur við af Powell

Condoleezza Rice er sögð verða næsti utanríkisráðherra Bandaríkjanna, eftir að Colin Powel sagði af sér. Rice hefur verið þjóðaröryggisráðgjafi í stjórnartíð George Bush og er náinn vinur fjölskyldu forsetans. Hún er talin tilheyra herskárri armi stjórnarinnar, en Powell aftur á móti hinum hófsamari.

Stríðsglæpir í Fallujah?

Bandarískir og íraskir herforingjar segjast endanlega hafa náð borginni Falluja á sitt vald, en mannréttindasamtökin Amnesty International fullyrða að Bandaríkjamenn hafi framið stríðsglæpi í borginni.

Sjá næstu 50 fréttir