„Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Árni Sæberg skrifar 14. ágúst 2026 11:58 Benedikt S. Benediktsson er framkvæmdastjóri SVÞ. Vísir/Einar Netverslanir með áfengi áætla að allt að 100 þúsund manns kaupi áfengi af öðrum smásölum hér á landi en ÁTVR. Nýleg könnun Gallup sýnir að um þrjátíu prósent aðspurðra segjast hafa keypt áfengi í gegnum vefverslun og tæplega sextíu prósent ef einungis er horft til fólks á aldrinum 20 til 39 ára. Tölur verslananna sjálfra benda til þess að hlutfallið sé enn hærra.
Þetta segir í fréttatilkynningu vegna nýju herferðarinnar „Þriðji hver, verslar hér“, sem sjálfstæðar sérvöruverslanir með áfengi, í samvinnu við Samtök verslunar og þjónustu, hafa ýtt úr vör. Herferðinni er ætlað er að draga athygli að þeirri staðreynd að Íslendingar hafi nú þegar valið meira valfrelsi þegar kemur að áfengiskaupum en viðskipti við íslenska ríkið. Einfalda lagabreytingu þurfi til Aðstandendur herferðarinnar telja að sá mikli fjöldi sem kaupir áfengi í smásölu af öðrum en ÁTVR sýni hversu mikil breyting hefur nú þegar orðið á því hverjir selja áfengi hér á landi. Á sama tíma hafi heildarneysla Íslendinga á áfengi minnkað um 11 prósent frá árinu 2021, samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands. „Núverandi löggjöf gerir ráð fyrir að erlendir aðilar geti selt áfengi í gegnum vefverslun og sent til Íslands en gerir ekki ráð fyrir þessum möguleika fyrir íslensk fyrirtæki. Með einfaldri lagfæringu á lagarammanum megi leysa úr þessu ósamræmi og tryggja að almenningur geti áfram haft þetta valfrelsi sem fólk er, að mati aðstandenda herferðarinnar, sýnir með viðskiptum sínum að það vilji hafa. Um leið væri með lagabreytingu hægt að ná betur utan um markaðinn, umgjörðina og eftirlit með starfseminni.“ Á grundvelli núverandi löggjafar hefur einn forsvarsmaður netverslunar með áfengi, Vilhjálmur Forberg Ólafsson í Smáríkinu, verið sakfelldur fyrir brot á áfengislögum fyrir að selja eina belju af hvítvíni. Þá greindi Vísir frá því í gær að eigendur annarrar netverslunar með áfengi hefðu verið ákærðir fyrir brot á sömu lögum. Þjóðin alltaf skrefi á undan þinginu Þá segir í tilkynningu að á síðasta þingi hafi níu þingmenn Viðreisnar lagt fram frumvarp sem ætlað var að heimila netverslun með áfengi, en ekki hafi náðst að ljúka umræðu um það fyrir þinglok. Sú leið sem þar var lögð til sé svipuð og var nýlega farin í Finnlandi en allar Norðurlandaþjóðirnar hafi verið að stíga hæg skref í átt til aukins valfrelsis á sama tíma og áfengisneysla hafi almennt farið minnkandi, meðal annars hjá ungu fólki. „Það er okkar skoðun að það sé hægt að taka lítil skref í einu. ÁTVR og sjálfstæðar sérverslanir sem nýta frjálsa vefverslun á EES-svæðinu eiga að geta lifað í sátt og samlyndi. Þjóðin hefur alltaf tekið skrefin á undan löggjafanum þegar kemur að áfengislöggjöf. Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það. Fólk kýs í dag að versla af öðrum en bara ÁTVR og það kann að meta valfrelsið. Veruleikinn er þessi og öll umræða um að fara aftur á bak í þeirri þróun er ekki raunhæf að okkar mati,“ segir Benedikt,“ er haft eftir Benedikt S. Benediktssyni, framkvæmdastjóra SVÞ.
Áfengi Netverslun með áfengi Tengdar fréttir „Netverslun með áfengi er smásala áfengis“ Þingmaður Flokks fólksins segir vefverslun með áfengi vera skýrt brot á áfengislögum. Hann ræddi málið við þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem segist ekki deila þeirri skoðun með honum, í Sprengisandi í morgun. 10. júlí 2022 15:48 Hildur vill heimila íslenska netverslun með áfengi Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins er flutningsmaður frumvarps um breytingu á lögum um netverslun með áfengi sem hún leggur fram í dag. Í frumvarpinu er lagt til að heimilað verði að starfrækja vefverslun með áfengi í smásölu til neytenda. 9. febrúar 2022 10:39 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira
„Netverslun með áfengi er smásala áfengis“ Þingmaður Flokks fólksins segir vefverslun með áfengi vera skýrt brot á áfengislögum. Hann ræddi málið við þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem segist ekki deila þeirri skoðun með honum, í Sprengisandi í morgun. 10. júlí 2022 15:48
Hildur vill heimila íslenska netverslun með áfengi Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins er flutningsmaður frumvarps um breytingu á lögum um netverslun með áfengi sem hún leggur fram í dag. Í frumvarpinu er lagt til að heimilað verði að starfrækja vefverslun með áfengi í smásölu til neytenda. 9. febrúar 2022 10:39