Erlent

Draumur Demó­krata að rætast

Eiður Þór Árnason skrifar
Demókratinn James Talarico er sagður hafa sigrað Repúblikanaþingmanninn Ken Paxton. Hann verður fyrsti öldungadeildarþingmaður Demókrataflokksins í Texas frá 1993.
Demókratinn James Talarico er sagður hafa sigrað Repúblikanaþingmanninn Ken Paxton. Hann verður fyrsti öldungadeildarþingmaður Demókrataflokksins í Texas frá 1993. ap/Eric Gay

Demókrataflokkurinn er talinn hafa tryggt sér meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins eftir kosningar sem margir álíta dóm á störf Donalds Trump forseta. Talning atkvæða er í fullum gangi en línurnar eru víða farnar að skýrast. 

Dæmi eru um að fulltrúar Demókrata hafi náð markverðum árangri í mörgum höfuðvígum Repúblikanaflokksins. Náði flokkurinn til að mynda öldungadeildaþingsæti í Suður-Karólínu og fær sinn fyrsta öldungardeildarþingmann í Texas í yfir þrjá áratugi með sigri James Talarico.

Repúblikanar hafa verið með meirihluta í báðum þingdeildum. Á meðan kannanir bentu sterklega til þess að Demókratar myndu ná yfirhöndinni í fulltrúadeildinni eftir kosningarnar í gær ríkti meiri spenna um niðurstöðurnar í öldungadeildinni. Virðist flest hafa farið Demókrataflokknum í hag og stefnir í mikinn ósigur Trumps og Repúblikanaflokksins. 

Langan tíma gæti tekið að staðfesta niðurstöður endanlega á sumum svæðum en helstu miðlar vestanhafs eru sammála um að óvissa fari þverrandi.

Mike Johnson, leiðtogi meirihlutans í fulltrúadeildinni og þingmaður Repúblikana, er sagður hafa viðurkennt ósigur flokksins í kosningapartýi sínu í Louisiana nokkru áður en fjölmiðlar staðfestu endanlega þá niðurstöðu. Kosið var um öll 435 þingsæti fulltrúadeildarinnar í gær, 35 sæti í öldungadeildinni, embætti ríkisstjóra víða og önnur embætti.

Demókratar náð yfirhöndinni í öldungadeildinni

Þegar þetta er skrifað eru Demókratar sagðir hafa náð sjö sætum af Repúblikönum í öldungadeild þingsins og tryggt sér 53 þingsæti en 51 þarf þar til að ná meirihluta. 

Samkvæmt spámódeli The New York Times þurfti flokkurinn að sigra í þremur lykilríkjum til þess að ná meirihluta í deildinni en hafi gert gott betur og tryggt sér sigur í þremur barátturíkjum til viðbótar. Hér er um að ræða ríkin Iowa, Kansas, Maine, Ohio, Suður-Karólínu og Texas. 

Staðan einnig slæm fyrir Repúblikana í fulltrúadeildinni

Þegar þetta er skrifað eru Demókratar sagðir hafa tryggt sér 223 sæti í fulltrúadeildinni en þeir þurfa 218 til að ná þar meirihluta. Eins og er hefur flokkurinn grætt átján sæti á kostnað Repúblikana. 

Líkt og yfirleitt í kosningum í Bandaríkjunum ríkti lítil spenna í miklum fjölda umdæma þar sem sæti voru alla tíð talin örugg fyrir annan hvorn flokkinn.  

Samkvæmt spámódeli The New York Times þurftu Demókratar að vinna fjórtán lykilsæti í heildina til þess að ná yfirhöndinni í fulltrúadeildinni en hafi unnið alls 27. Þá er flokkurinn sagður frekar eða mjög líklegur til að vinna í 22 mikilvægum umdæmum til viðbótar. Gangi þetta upp munu Demókratar enda með sinn sterkasta meirihluta í deildinni frá árinu 2008. 

Náðu einnig til sín ríkisstjórastólnum í Texas

Einnig var kosið um ríkisstjóra í 36 ríkjum Bandaríkjanna í gær. Þegar þetta er skrifað eru Demókratar sagðir hafa náð til sín fjórum ríkisstjórastólum á kostnað Repúblikana í Iowa, Ohio, Georgíu og Texas.

Trump Bandaríkjaforseti hefur mælst óvinsæll í könnunum um nokkurt skeið.  Kjósendur víðs vegar um Bandaríkin sögðu í samtali við AP-fréttaveituna að Trump hefði haft slæm áhrif á hagkerfi Bandaríkjanna. Um tveir þriðju svarenda sögðu áhrifin slæm en einungis þrír af tíu sögðu forsetann hafa haft jákvæð áhrif.

Flestir sem fréttaveitan ræddi við sögðu að verðlag og spilling væru helstu málefnin sem þau hefðu í huga fyrir kosningarnar. Eldsneytisverð hefur hækkað skarpt í Bandaríkjunum eftir innrás Bandaríkjanna og Ísrael í Íran og lokun Hormússunds. Þá ríkir víðtæk óánægja með stríðsreksturinn.

Hægt er að fylgjast með nýjustu niðurstöðum talningar í útsendingunum hér fyrir neðan.

Fréttin var síðast uppfærð klukkan 07:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×