Erlent

Trúnaðar­brestur á Græn­landi og sam­þykkt Bandaríkja­samnings sett á ís

Smári Jökull Jónsson skrifar
Donald Trump Bandaríkjaforseti, Mette Frederiksen forsætisráðherra Dana og forsætisráðherra Grænlands Jens-Frederik Nielsen skrifuðu undir samninginn í september.
Donald Trump Bandaríkjaforseti, Mette Frederiksen forsætisráðherra Dana og forsætisráðherra Grænlands Jens-Frederik Nielsen skrifuðu undir samninginn í september. Vísir/EPA

Stjórnvöld á Grænlandi saka stjórnarandstöðuflokkinn Naleraq um að hafa birt trúnaðarupplýsingar úr varnarsamningi við Bandaríkin eftir að samningurinn var ræddur á lokuðum nefndarfundi. Hefur samþykkt samningsins á grænlenska þinginu verið frestað vegna þessa.

Í frétt DR segir að grænlenska þingið hafi komið saman í dag til að samþykkja varnarsamninginn sem Grænland, Bandaríkin og Danmörk undirrituðu í New York þann 22. september eftir yfirlýsingar Donalds Trump Bandaríkjaforseta mánuðina þar á undan um mögulega yfirtöku Grænlands.

Þingfundi var þó frestað strax í upphafi hans og eftir fjörutíu og fimm mínútna hlé var tilkynnt að forseti grænlenska þingsins hefði tilkynnt stjórnarandstöðuflokkinn Naleraq til lögreglu fyrir að brjóta trúnað.

Utanríkisráðherrann Múte B. Egede sakar Naleraq um að birta upplýsingar sem deilt var í utanríkis- og öryggismálanefnd fyrir luktum dyrum.

„Í minnihlutaáliti sínu birti Naleraq trúnaðarupplýsingar sem ríkisstjórnin hefur deilt með utanríkis- og öryggismálanefnd á lokuðum fundi.“

Segir Egede að atvikið geti skaðað orðspor Grænlands á opinberum vettvangi.

Minnihlutaálit Naleraq var hluti af gagnrýni flokksins á að Grænland fengi ekki meiri efnahagslegan ávinning af samningnum við Bandaríkjamenn. Þingmaður flokksins Pele Broberg segir að minnihlutaálitið hafi verið samþykkt af nefndinni og sent til forseta þingsins sem síðan birti álitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×