Innlent

Rússar hnýta í Þor­gerði Katrínu vegna um­mæla um skrif Heimis Más

Smári Jökull Jónsson skrifar
Orð Þorgerðar Katrínar á þingi í gær vöktu athygli Rússa.
Orð Þorgerðar Katrínar á þingi í gær vöktu athygli Rússa. Vísir/Anton Brink

Rússneska sendiráðið á Íslandi segist afar undrandi á orðum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á Alþingi í gær þar sem hún sagði tíst Ólafs Ragnars Grímssonar hafa verið alvarlegri en skrif Heimis Más Péturssonar framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins. Rússar skrifa þó að orð Þorgerðar Katrínar gefi ástæðu til varlegrar bjartsýni.

Þorgerður lét orðin falla í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í gær þar sem hún svaraði spurningum Stefáns Vagns Stefánssonar, þingflokksformanns Framsóknar, um skrif Heimis Más.

Eins og greint hefur verið frá svaraði Heimir færslu Emmanuel Macron Frakklandsforseta á samfélagsmiðlinum X með þeim orðum að forsetinn ætti að senda hermenn til Úkraínu og undirbúa kjarnorkuvopnin. Heimir baðst síðar afsökunar á orðum sínum.

Í máli sínu í gær ítrekaði Þorgerður Katrín afsökunarbeiðni Heimis Más og minntist síðan á aðra færslu á X þar sem Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, deildi færslu frá Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, þar sem hann gagnrýndi NATO.

„En ég hugsa núna þegar það kemur þessi athugasemd um eitt tíst frá Heimi Má Péturssyni, sem er búinn að draga það til baka, alveg skýrlega, að það sagði enginn í stjórnarandstöðunni neitt þegar tíst kom frá Sergei Lavrov þar sem hann agnúast út í sameiginlega eftirlitssveit NATO, Arctic Sentry, sem eykur öryggi hér á norðurslóðum. Þá var því endurtíst hér af fyrrum forráðamanni íslenskra stjórnvalda. Það finnst mér miklu alvarlegra heldur en þetta,“ sagði Þorgerður Katrín.

Sendiráðið undrandi

Rússar hafa nú brugðist við þessum orðum Þorgerðar Katrínar í færslu á Facebook-síðu rússneska sendiráðsins hér á landi.

Þar skrifa Rússar að þeir hafi tekið eftir orðum Þorgerðar Katrínar á Alþingi í gær og vitna í fréttir um skrif Heimis Más.

„Í þessu sambandi er sendiráðið afar undrandi á því að heyra ráðherrann halda því fram að í þessu samhengi sé það mun alvarlegra að ónafngreindur „fyrrverandi leiðtogi landsins“ hafi fært grein eftir Sergey Lavrovs utanríkisráðherra Rússlands, Alþjóðlegt samstarf á norðurslóðum: áskoranir og tækifæri, á samfélagsmiðlinum X,“ segir í færslunni.

Jafnframt er skrifað að miðað við rökhyggju Þorgerðar Katrínar ætti að vera ljóst að hún teldi skrif Lavrov meira ógnandi en yfirlýsingar háttsetts embættismanns innan stjórnarflokksins og vísað þar í Heimi Má.

Rússar tala þó um að ástæða sé til hóflegrar bjartsýni.

„Hins vegar er einnig nokkur ástæða til varlegrar bjartsýni: utanríkisráðherrann hefur þó staðfest að íslenska ríkisstjórnin styðji ótvírætt kjarnorkuvopnaafvopnun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×