Orri kemur til sjóðastýringarfélagsins frá verðbréfamiðlun Íslandsbanka, móðurfélag Íslandssjóða, en áður starfaði hann hjá Fossum fjárfestingarbanka og Kviku banka.
Í tilkynningu frá Íslandssjóðum kemur fram að Orri, sem er með B.Sc.-gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands og auk þess próf í verðbréfaviðskiptum, hafi góða þekkingu á íslenskum fjármálamarkaði og reynslu af greiningu og miðlun bæði hlutabréfa og skuldabréfa. Þá er vísað til þess að öguð vinnubrögð hans og fagleg nálgun falli vel að áherslum Íslandssjóða.
Skúli Hrafn Harðarson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða, segir afar ánægjulegt að fá Orra til liðs við félagið. „Framundan er spennandi uppbygging í hlutabréfastýringu félagsins og á næstu vikum munum við styrkja teymið enn frekar.“
Íslandssjóðir eru með nærri 400 milljarða eignir í stýringu. Á meðal hlutabréfasjóða í stýringu félagsins eru IS Hlutabréfasjóður og IS Equus hlutabréf ásamt einnig fagfjárfestasjóðnum Alpha Hlutabréf.
Innherji greindi frá því á laugardaginn að Mogens Mogensen, forstöðumaður hlutabréfasjóða hjá Íslandssjóðum, hefði látið af störfum hjá sjóðastýringarfyrirtækinu. Fyrr í sumar hætti Gísli Halldórsson einnig sem sjóðstjóri hlutabréfasjóða hjá Íslandssjóðum, en hann réð sig nýlega yfir í markaðsviðskipti hjá Arctica Finance.