Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. nóvember 2026 09:01 Sænski framherjinn Alexander Isak og Andoni Iraola, knattspyrnustjóri Liverpool. EPA/ADAM VAUGHAN Andoni Iraola, knattspyrnustjóri Liverpool, segist ætla að segja sænska framherjanum Alexander Isak að láta sig falla ef brotið verður á honum innan teigs í framtíðinni en ummælin koma í framhaldi af því að Liverpool var svikið um að hans mati augljósa vítaspyrnu gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Kai Havertz skoraði eina mark leiksins í gær þegar Arsenal vann sinn fyrsta sigur á Anfield síðan í september 2012. Liverpool-menn voru mjög ósáttir eftir að hvorki dómarinn Andy Madley né myndbandsdómarinn Stuart Attwell dæmdu vítaspyrnu þegar Jurriën Timber togaði í treyju Isaks er framherjinn reyndi að skalla fyrirgjöf frá Bradley Barcola í fyrri hálfleik. View this post on Instagram A post shared by The Athletic | Football (@theathleticfc) Í stað þess að falla til jarðar hélt Isak sér á fótunum og sneri sér við til að ræða við Timber eftir atvikið. Augljós vítaspyrna „Atvikið með Alex er augljós vítaspyrna,“ sagði Iraola við Sky Sports eftir leikinn. „Hann heldur í treyjuna hans, við sjáum öll að hann heldur í treyjuna. Af því að hann fellur ekki í grasið ætla þeir ekki að dæma víti. Ég skil það ekki,“ sagði Andoni Iraola. „Þetta er vandamálið sem við glímum við í fótboltanum. Af því að hann lætur sig ekki detta og fellur ekki í grasið. Sú staðreynd að þú sért yfirhöfuð að spyrja mig hvort hann hefði átt að falla – ef hann fellur, þá dæma þeir víti, 100%,“ sagði Iraola. Aðspurður hvort hann muni segja Isak að láta sig falla í framtíðinni bætti Iraola við: „Já, klárlega,“ sagði Iraola. Við erum með fimmtíu myndavélar Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, lýsti einnig yfir gremju sinni með ákvörðunina. „Ég tel að þetta hafi verið augljós vítaspyrna,“ sagði Van Dijk. „Ég hef séð þetta aftur og ég hef séð svona dæmt. Þetta átti ekki að verða í dag. Við erum samt með fimmtíu myndavélar,“ sagði Van Dijk „Af hverju þarf hann að kvarta þegar það eru svona margar myndavélar? Allir sáu þetta. Á endanum var ekkert dæmt og við töpuðum leiknum, því miður, svo vel gert hjá Arsenal,“ sagði Van Dijk.
Enski boltinn Liverpool FC Arsenal FC Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Sjá meira