Markvörður ársins náði að stöðva Orra Sindri Sverrisson skrifar 1. nóvember 2026 21:57 Orri Steinn Óskarsson varð að sætta sig við tap í kvöld. Getty/Juan Manuel Serrano Arce Eftir að hafa skorað í þremur leikjum í röð fyrir Real Sociedad fann Orri Steinn Óskarsson ekki leið framhjá heimsmeistaranum Unai Simón í kvöld, í 2-1 tapi gegn Athletic Bilbao í spænsku deildinni í fótbolta. Orri fékk reyndar bara hálftíma til að spreyta sig því hann var á varamannabekknum þar til á 61. mínútu. Þá var staðan þegar orðin 2-1 eftir að Inaki Williams kom Athletic yfir, Luka Sucic jafnaði og Álex Berenguer skoraði úr vítaspyrnu í lok fyrri hálfleiks. Orri kom sér í færi og lagði líka upp skot fyrir Carlos Soler liðsfélaga sinn en þeim tókst ekki að skora framhjá Simón sem varði mark Spánar á HM í sumar og var í síðustu viku valinn markvörður ársins á Ballon d'Or. Real Sociedad hafði unnið fjóra deildarleiki í röð en er eftir tapið í kvöld með 19 stig í 5. sæti eftir ellefu umferðir. Athletic Bilbao er með 15 stig í 7. sæti en á leik til góða. Fótbolti Spænski boltinn Íslendingar erlendis