Innherji

Arion telur byggingar­lána­safnið þola frekari verðlækkanir og söluta­fir

Hörður Ægisson skrifar
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion, benti á að það væri að draga úr vexti útlána, sem minnkuðu um þrjá milljarða, sem endurspeglaði viðvarandi hátt vaxtastig.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion, benti á að það væri að draga úr vexti útlána, sem minnkuðu um þrjá milljarða, sem endurspeglaði viðvarandi hátt vaxtastig.

Hægari sala nýbygginga er ein helsta sértæka áhættan í útlánasafni Arion, sem fjármagnar um 15 til 20 prósent nýrra íbúða sem ætlaðar eru til sölu á markaði, en bankinn telur álagspróf sýna talsvert svigrúm til að mæta bæði sölutöfum og verðlækkunum á íbúðamarkaði. Arion skilaði yfir sextán prósenta arðsemi á þriðja fjórðungi, sem var í samræmi við spár, og var afkoman drifin áfram af kröftugum vaxtatekjum á meðan þóknanatekjur gáfu eftir við krefjandi markaðsaðstæður.


Tengdar fréttir

Vara­seðla­banka­stjóri varar við hættu á „skarpri aðlögun“ í byggingar­geiranum

Varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, eini nefndarmaður peningastefnunefndar Seðlabankans sem vildi halda vöxtum óbreyttum við síðustu ákvörðun, varar við því að háir vextir og miklar birgðir af óseldum íbúðum muni auka hættuna á „skarpri aðlögun“ í byggingargeiranum. Hann bendir á að „raunveruleg fjármögnunarskilyrði“ heimila hafi versnað umfram stýrivaxtahækkanir samhliða mikilli hækkun verðtryggðra markaðavexta frá því í vor.

Mælist til að bankarnir „safni eigin fé“ og séu um­fram kröfur Seðla­bankans

Núna þegar það kann að reyna á viðnámsþrótt fjármálakerfisins, meðal annars vega óróleika á alþjóðlegum mörkuðum og erfiðrar stöðu á byggingamarkaði, þá er ástæða fyrir viðskiptabankana að huga að því að „safna eigin fé“ og vera tilbúna til að takast á við möguleg áföll, að sögn seðlabankastjóra. Arðgreiðslur og kaup bankanna á eigin bréfum hafa verið með mesta móti að undanförnu og nema samtals yfir hundrað milljörðum frá áramótum.

Útlána­tap bankanna gæti numið um 150 milljörðum við „al­var­legt áfall“

Samkvæmt álagsprófi Seðlabankans gætu kerfislega mikilvægu bankarnir þrír staðið af sér „alvarlegt áfall“, sem gæti þýtt fyrir þá samtals um 150 milljarða króna útlánatap, án þess að þeir þyrftu að skerða of mikið framboð af lánsfé til viðskiptavina. Fjármálastöðugleikanefnd vekur athygli á vaxandi skuldum í byggingargeiranum samhliða því að lengri tíma tekur að selja eignir og beinir því til lánveitenda að þeir þurfi að „gæta að aukinni áhættu í geiranum.“

Vara við lausafjárvanda verktaka þegar bankarnir setja þeim stólinn fyrir dyrnar

Vegna fordæmalausrar sölutregðu á nýbyggingum þá er einungis tímaspursmál hvenær bankarnir fara að setja fjármagnsþörf áframhaldandi birgðasöfnunar á nýjum íbúðum „stólinn fyrir dyrnar,“ samkvæmt nýrri greiningu um fasteignamarkaðinn, sem mun þá birtast í lausafjárvanda byggingarverktaka. Sögulega mikið ójafnvægi á milli fasteignaverðs og getu heimila til íbúðakaupa, ásamt horfum á aðhaldssamri peningastefnu, ætti að styðja við að verðið gefi enn eftir á komandi mánuðum og spurningin er aðeins hversu hröð sú aðlögun verður.

Lands­bankinn með lang­mest undir í lánum til bygginga­geirans

Eftir verulegan lánavöxt á liðnu ári til byggingageirans er Landsbankinn núna með um helminginn af öllum útistandandi lánum stóru bankanna til verktakafyrirtækja. Greinendur hafa varað við því að fyrirséð er að útlánasafn bankanna til geirans eigi eftir að „súrna“ núna þegar meðalsölutími nýrra íbúða hefur aldrei mælst lengri og þrengt hefur að aðgengi að lánsfé.

Hærri banka­skattur vegur á móti sterkari undir­liggjandi rekstri Arion

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi ætti að bera þess merki að undirliggjandi rekstur sé áfram sterkur, meðal annars vegna mikilla vaxtatekna og batnandi kostnaðarhlutfalls. Fyrirhuguð hækkun bankaskatts breytir hins vegar myndinni verulega og hefur DNB Carnegie lækkað afkomuspár sínar og verðmat á bankanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×