Innherji

Opin­beri geirinn „skilar nánast auðu“ í að­lögun hag­kerfisins

Hörður Ægisson skrifar
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Í nýrri greiningu verðbréfafyrirtækisins Acro er bent á að þegar opinberi geirinn haldi áfram að fjölga starfsfólki þrátt fyrir kólnun hagkerfisins þurfi aðlögunin í einkageiranum að verða meiri en ella til að ná fram tilætluðum áhrifum.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Í nýrri greiningu verðbréfafyrirtækisins Acro er bent á að þegar opinberi geirinn haldi áfram að fjölga starfsfólki þrátt fyrir kólnun hagkerfisins þurfi aðlögunin í einkageiranum að verða meiri en ella til að ná fram tilætluðum áhrifum. Vísir/Viktor Freyr

Mikil kólnun á íslenskum vinnumarkaði og vaxandi svartsýni atvinnurekenda bendir til þess að hagvaxtarhorfur næstu missera kunni að vera ofmetnar, samkvæmt nýrri greiningu. Á sama tíma og störfum fækkar á almennum vinnumarkaði heldur opinberum starfsmönnum áfram að fjölga, sem veldur því að aðlögun hagkerfisins að minni eftirspurn verður mun harðari í einkageiranum.


Tengdar fréttir

Óttast „harða lendingu“ með efna­hags­sam­drætti og veru­legu at­vinnu­leysi

Skýr merki eru komin fram um að hagkerfið sé að kólna mun hraðar en flestar hagspár hafa gert ráð fyrir og hætta er á að áfram dragi úr hagvexti á næsta ári samhliða verulega auknu atvinnuleysi, að mati greinenda Acro. Þeir óttast að þrálát verðbólga og háar verðbólguvæntingar komi í veg fyrir að Seðlabankinn geti brugðist við versnandi efnahagsástandi með vaxtalækkunum og að niðurstaðan verði „hörð lending“.

Óbreyttur tónn bankans og vonir um frið á vinnu­markaði lækkar markaðsvexti

Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að halda vöxtum óbreyttum, stutt af öllum nefndarmönnum, var viðbúin og engar breytingar voru gerðar á framsýnni leiðsögn hennar. Skömmu áður hafði náðst samkomulag hjá stórum hluta launþegahreyfingarinnar við SA um að slíta ekki kjarasamningum og hafa skuldabréfafjárfestar tekið vel í þær fréttir og markaðsvextir óverðtryggðra ríkisbréfa lækkað.

Vara­seðla­banka­stjóri varar við hættu á „skarpri aðlögun“ í byggingar­geiranum

Varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, eini nefndarmaður peningastefnunefndar Seðlabankans sem vildi halda vöxtum óbreyttum við síðustu ákvörðun, varar við því að háir vextir og miklar birgðir af óseldum íbúðum muni auka hættuna á „skarpri aðlögun“ í byggingargeiranum. Hann bendir á að „raunveruleg fjármögnunarskilyrði“ heimila hafi versnað umfram stýrivaxtahækkanir samhliða mikilli hækkun verðtryggðra markaðavexta frá því í vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×