Innherji

Kostnaður við Ís­lands­ferðir hækkað meira en tvö­falt á við samkeppnislönd

Hörður Ægisson skrifar
Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, en félagið er stór fjárfestir í ferðaþjónustu á Íslandi í gegnum eignarhluti sína í Bláa lóninu og Arctic Adventures.
Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, en félagið er stór fjárfestir í ferðaþjónustu á Íslandi í gegnum eignarhluti sína í Bláa lóninu og Arctic Adventures.

Kostnaður erlendra ferðamanna við að heimsækja Ísland hefur hækkað meira en tvöfalt umfram það sem gerst hefur í helstu samkeppnislöndum frá árinu 2010, en Ísland er núna farið að dragast hlutfallslega nokkuð aftur úr þegar kemur að fjölgun ferðamanna á heimsvísu. Samkvæmt forstjóra Stoða myndi fjögurra prósenta fjölgun erlendra ferðamanna skila ríkissjóði og öðrum opinberum aðilum meiri tekjum en áformað er að afla með nýjum sköttum á greinina.


Tengdar fréttir

Kynna vaxtar­plan sem gæti skilað 300 milljarða viðsnúningi í af­komu ríkis­sjóðs

Með markvissum aðgerðum til að efla fimm helstu útflutningsgreinar landsins, sölu ríkiseigna og auknu aðhaldi í opinberum útgjöldum væri hægt að auka hagvöxt um nær helming frá núverandi spám og bæta afkomu ríkissjóðs um hátt í 300 milljarða króna á næstu fimm árum, samkvæmt tillögum sem forstjóri Stoða hefur kynnt hluthöfum. Telur hann að með slíkum aðgerðum mætti jafnframt lækka skuldir ríkissjóðs um helming og draga verulega úr vaxtakostnaði hins opinbera.

Veltan er­lendis tvöfaldast með kaupum á Haman Group og fleiri yfir­tökur í pípunum

Með kaupum á Haman Group tekur Travel Connect sitt stærsta skref til þessa í alþjóðlegri uppbyggingu samstæðunnar og tvöfaldar veltuna sína erlendis. Stjórnendur félagsins ætla að halda áfram yfirtökum á erlendum mörkuðum en segja auknar álögur stjórnvalda með engum fyrirvara og takmarkaða vaxtarmöguleika valda því að fjárfestingar samstæðunnar nýtist nú betur erlendis en á Íslandi.

Mikil gengis­styrking krónunnar knýr Seðla­bankann í sín fyrstu inn­grip í eitt ár

Eftir mikla gengisstyrkingu krónunnar að undanförnu þá sá Seðlabankinn ástæða til að stíga inn á millibankamarkaðinn í dag með sérstökum inngripum og keypti gjaldeyri til að vega á móti gengishækkuninni. Þetta eru fyrstu gjaldeyrisinngrip bankans í ríflega eitt ár en raungengi krónunnar er núna í hæstu hæðum.

Er­lendir bókunar­risar sagðir taka til sín sí­fellt stærri hluta hagnaðarins

Vaxandi ítök alþjóðlegra bókunar- og sölusíðna þrengja verulega að kaupendastyrk íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja og taka til sín stóran hluta tekna af erlendum ferðamönnum. Hjá dæmigerðu fyrirtæki í greininni er bein sala til ferðamanna aðeins talin nema um 15 til 30 prósentum af heildartekjum en um 70 prósent sölunnar fer í gegnum sölusíður, ferðaskrifstofur eða aðra milliliði.

Margt sem bendir til að viðnámsþrótti ferðaþjónustunnar sé ábóta­vant

Þótt fyrirtækin standi almennt vel að vígi til að mæta efnahagsáföllum þá er staðan nokkuð misjöfn milli atvinnugreina og er margt sem bendir til þess að viðnámsþrótti ferðaþjónustunnar sé ábótavant, að mati Seðlabankans, einkum vegna þess hversu sveiflukennd eftirspurnin getur verið. Ekki eru hins vegar enn sem komið skýrar vísbendingar um samdrátt í greininni í ár.

„Á­þreif­an­leg ruðn­ings­á­hrif“ vegna uppgangs í ferð­a­þjón­ust­u

Uppgangur ferðaþjónustu hefur stuðlað að litlu atvinnuleysi og sett mikinn þrýsting á aðra innviði, þar með talið húsnæðismarkað þar sem meirihluti nýs starfsfólks í ferðaþjónustu kemur erlendis frá, segir Seðlabankinn. Ruðningsáhrif atvinnugreinarinnar hafa því verið „á­þreif­an­leg“ en hún hefur um leið átt mestan þátt í að stuðla að batnandi viðskiptajöfnuði. 

Laun ó­fag­lærðra hækkað mun hraðar en annarra stétta með fjölgun ferða­manna

Launakjör ófaglærðra á Íslandi, sem eru nú þau bestu sem þekkjast í Evrópu, hafa batnað mun hraðar en annarra stétta frá aldamótum en kaupmáttur lágmarkslauna hefur þannig nærri tvöfaldast á meðan þeir sem eru með meistarapróf úr háskóla hafa upplifað nánast enga kaupmáttaraukningu, að sögn forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Meginskýringin að baki þessari þróun sé „eðlileg afleiðing“ af efnahagsástandinu þar sem aukinn straumur ferðamanna til landsins hafi búið til mikla sókn í ófaglært vinnuafl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×