Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 26. október 2026 08:34 Daði Már segir þjóðina þakklát Herði fyrir störf hans, ágreiningurinn snúist um form en ekki stefnu. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir enga formlega stjórnarfundi Landsvirkjunar hafa verið haldna án Harðar Arnarsonar fyrrverandi forstjóra. Hann segir lögin ekki banna stjórnarmönnum að hittast sem hafi borðað saman hádegismat fyrir fundina. Ágreiningurinn snúist um form en ekki stefnu.
Þetta kom fram í Bítinu á Bylgjunni þar sem rætt var við Daða. Tilefnið eru orð Harðar sem sagði á Sprengisandi í gær að stjórnarfundir hafi verið haldnir án þess að honum hafi verið boðið líkt og lög kveði á um. Hörður tilkynnti starfsfólki þann 1. október að hann hefði ákveðið að láta af störfum sem forstjóri. Í Sprengisandi segir Hörður að honum hafi oft verið meinuð aðkoma að því að tjá mál sitt á fundum og þá hafi hann einnig orðið fyrir því að fá ekki að funda með fjármálaráðuneytinu, það hafi aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar. Daði segir í Bítinu að það hafi alltaf verið gott traust á milli hans og Harðar. Hörður hafi sjáflur talað fyrir þeim breytingum sem hgerðar hafi verið á stjórn Landsvirkjunar um að rjúfa pólitísk tengsl við Alþingi. Daði segir hinsvegar að samkvæmt hans upplýsingum hafi Herði ekki verið meinaður aðgangur að stjórnarfundum Landsvirkjunar líkt og hann sjálfur fullyrðir. Þannig Hörður er ekki að segja alveg satt frá? „Já eða semsagt, engir formlegir stjórnarfundir hafa verið haldnir án hans.“ Óformlegir þá frekar? „Ja það er auðvitað ekki þannig að ríkið banni þessu fólki að hittast, lögin kveða bara á um hvernig stjórnarfundir fara fram og þeir hafa farið að lögum.“ Ég skil ekki alveg, þannig það voru stjórnarfundir sem Hörður sat formlegir, hvað er hann þá að vísa í þegar hann segist ekki hafa fengið að sitja ákveðna stjórnarfundi? „Ég get ekki svarað þér. Eftir því sem formaður stjórnar Landsvirkjunar segir borðaði stjórnin saman hádegismat fyrir fundina, það eru auðvitað ekki stjórnarfundir. Þannig að okkar upplýsingar eru að honum hafi ekki verið meinaður aðgangur að neinum stjórnarfundum. Það er stundum þannig að forstjóri víkur, ef það er verið að ræða laun hans og þess háttar.“ Daði segist sjálfur ekki hafa hafnað neinum fundi með Herði í ráðuneytinu. Hann segist taka ábendingar Harðar alvarlega en að hann hafi ekki gengið á eftir honum og farið fram á að hann myndi ekki hætta. Ber stjórnarformaðurinn enga ábyrgð? „Nú hef ég setið fundi og heyrt báðar hliðar málsins, ég met það ekkert endilega þannig. Ég held samt að þetta hafi verið töluvert mikil kúltúrbreyting frá fyrra fyrirkomulagi.“ En af hverju kúltúrbreyting þegar fyrirtækið hefur gengið svona vel, skilað svona miklum arði? Ja, sko kúltúr breyting kemur auðvitað bara með fólki, það erum við sem búum kúltúr til. Ég held að umboð þessarar stjórnar sé skýrara heldur en fyrri stjórna. Ég held það sé mjög mikilvægt. Ég held það sé mjög mikilvægt að það sé alveg uppi á borðinu hvaða hagsmuni er verið að verja, að samskipti ríkisins og ríkisfyrirtækjanna séu uppi á borðinu ekki í einhverjum einkasamtölum heldur fari í gegnum eigendastefnu ríkisins og ég hef lagt mikla áherslu á að þróa þessa eigendastefnu.“ Daði segist sammála Herði um það að traust skipti öllu máli. Deilurnar í þessu tilviki snúist hinsvegar ekki um ákvarðanir, ekkert sé að gerast í stefnu Landsvirkjunnar og eigendastefna ríkisins og áherslur séu óbreyttar. Var stjórnin ekki að taka til sín meiri völd? „Nei.“ Þú fullyrðir það? „Já já. Það hefur komið fram að það eru engin einstök mál þarna undir. En þetta með traust skiptir gríðarlega miklu máli og það að byggja það upp og viðhalda því skiptir miklu máli en það er líka fyrirbæri sem er þannig að það tekur langan tíma að byggja upp og skamman tíma að skemma og þá þarf maður að vera meðvitaður um það í ákvarðanatöku. Ég hef hinsvegar farið yfir málið með báðum aðilum og ég ber fullt traust til stjórnar Landsvirkjunar.“ Hann segir að sín óskastaða hefði verið sú að Hörður hefði stigið sáttur frá borði. Hann segist skilja gremju í samfélaginu vegna brotthvarfs Harðar sem hafi notið mikils traust sem hann hafi átt skilið. Núverandi fyrirkomulag sé hinsvegar breyting í rétta átt. Af hverju var ekki strax frá upphafi gert hreint fyrir þessum dyrum, hvað gerðist þarna? Það fór líka í taugarnar á fólki að þetta væru hálfkveðnar vísur og svo situr Hörður þarna í gær með þessar í rauninni ásakanir sem manni finnst alvarlegar? „Já, sem ég að vísu get ekki að fullu staðfest. Ástæðan er sú að þarna er ekki, ég myndi segja, þetta er formlegur ágreiningur. Hann snýst ekki um stefnu fyrirtækisins, hann snýst ekki um einstaka ákvarðanir, hann snýst meira um hvernig ákvarðanir eru teknar og hver áhrif stjórnarinnar eru.“ Átti almenningur ekki rétt á að fá þessar upplýsingar strax? „Jú en mér finnst þetta ekki vera mikil viðbót. Þið áttið ykkur líka á því að það er erfitt að taka undir gagnrýni sem ég er ekki viss um að hafi verið fyllilega réttmæt, til dæmis að honum hafi verið haldið frá stjórnarfundum, sem raunar er ekki raunin.“
Landsvirkjun Starfslok Harðar Arnarsonar hjá Landsvirkjun Bítið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Fleiri fréttir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Sjá meira