Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pól­verjum

Kári Mímisson skrifar
Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði heil ellefu mörk í fyrri leiknum gegn Pólverjum.
Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði heil ellefu mörk í fyrri leiknum gegn Pólverjum. Getty/Marijan Murat

Ísland mætti Póllandi í æfingarleik nú í dag. Þetta var annar leikur liðanna sem undirbúa sig fyrir EM sem fram fer í desember. Ísland sigraði fyrri leikinn á fimmtudaginn var með þremur mörkum en því miður þurfti liðið að sætta sig við eins marks tap í kvöld eftir flotta frammistöðu. Lokatölur héðan úr Katowice 35-34.

Íslenska liðið byrjaði vel í dag og komst í 4-1 á fyrstu mínútum leiksins en þær pólsku jöfnuðu þó fljótt aftur. Leikurinn var afar hraður en mörkunum gjörsamlega rigndi framan af leik. Íslenska liðið náði að leiða leikinn að mestu í fyrri hálfleik þar til alveg rétt undir lokin þegar Pólland náði góðum kafla og tryggði sér eins marks forskot áður en liðin héldu til búningsherbergja. Staðan í hálfleik 21-20 fyrir Pólverjum.

Íslenska liðið byrjaði seinni hálfleik afar vel og skoraði þrjú fyrstu mörkin áður en Pólverjar komu sér á blað. Pólverjar jöfnuðu þó skömmu seinna og eftir það skiptust liðin á að skora mörk. Rétt eins og í fyrri hálfleik þá náðu þær pólsku góðum kafla á meðan íslenska liðið tapaði boltanum klaufalega í sókninni sem reyndist dýrt. 

Katarzyna Cygan kom Pólverjum tveimur mörkum yfir þegar skammt var til leiksloka og það skipti því litlu máli þótt Katrín Tinna skoraði lokamark leiksins. Niðurstaðan svekkjandi eins marks tap gegn Póllandi þrátt fyrir flotta frammistöðu íslenska liðsins.

Elín Klara átti góðan leik líkt og á fimmtudaginn en hún skoraði níu mörk í dag en næst á eftir henni kom Thea Imani Sturludóttir með 6 mörk en þetta var landsleikur númer 100 hjá Theu í dag. Sara Sif Helgadóttir stóð lengst af í marki Íslands en hún varði 9 skot á meðan Hafdís Renötudóttir varði 5 skot.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira