Leik lokið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Miklu sterkari í lokin Pálmi Þórsson skrifar 23. október 2026 22:11 Sigurður Pétursson átti frábæran leik í kvöld og hefur aldrei skorað meira í einum leik í efstu deild. Vísir/Guðmundur Álftanes hélt sigurgöngu sinni áfram í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld með tuttugu stiga sigri á Keflavík, 130-110, í lokaleik þriðju umferðar. Keflvíkingar héldu í við heimamenn fram í fjórða en þar sýndi Álftanes styrk sinn með því að vinna fjórða leikhlutann 35-17. Sigurður Pétursson skoraði 36 stig á móti sínum gömlu félögum og Dedrick Basile var með 31 stig og 7 stoðsendingar. Martins Laksa bætti við 18 stigum, Jordan Semple var með 18 stig og 11 fráköst og þá skoraði Luka Gasic 13 stig. Jamir Chaplin var frábær hjá Keflavík með 29 stig en hann meiddist og spilaði bara 27 mínútur í kvöld. Báðir bræðurnir voru að spila vel því Hilmar Pétursson skoraði 32 stig. Bæði lið voru búin að vinna tvo fyrstu leiki sína en Álftanes er nú á toppnum við hlið Reykjavíkurfélaganna KR og Vals sem hafa einnig unnið þrjá fyrstu leiki sína. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Bónus-deild karla UMF Álftanes Keflavík ÍF