Leik lokið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Stólarnir sluppu með skrekkinn á Höfn Sindri Sverrisson skrifar 23. október 2026 20:52 Stólarnir lentu í vandræðum á Höfn í kvöld en héldu Sindra í sex stigum í lokaleikhlutanum. Taiwo Badmus var með 15 stig og 8 fráköst. vísir/Guðmundur Þórlaugarson Nýliðar Sindra stríddu Tindastólsmönnum í hörku leik á Höfn í Hornafirði í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld en á endanum lönduðu Stólarnir sjö stiga sigri, 78-71. Ade Murkey skoraði 23 stig fyrir Tindastól og Ragnar Ágústsson var með 16 stig. Martins Meiers skoraði 23 stig fyrir Sindra og Kaleb Higgins var með 23 stig. Sindramenn höfðu tapað fyrstu tveimur leikjum sínum en voru sex stigum yfir í hálfleik, 45-39, eftir að hafa unnið fyrstu tvo leikhlutana 21-20 og 24-19. Stólarnir byrjuðu seinni hálfleikinn mun betur en heimamenn gáfu ekkert eftir og voru enn einu stigi yfir, 65-64, fyrir lokaleikhlutann. Tindastólsmenn voru sterkari í lokaleikhlutanum, lokuðu vörninni og fóru heim með stigin eftir krefjandi útileik á móti nýliðunum. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Bónus-deild karla Sindri Tindastóll