Innlent

Brutu kyn­ferðis­lega gegn börnum en sluppu við refsingu

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Ragna Bjarnadóttir, fangelsismálastjóri, segir að dómarnir sem um ræðir fyrnist á fimm árum.
Ragna Bjarnadóttir, fangelsismálastjóri, segir að dómarnir sem um ræðir fyrnist á fimm árum. vísir/anton/vilhelm

Tveir sem dæmdir voru fyrir kynferðisbrot gegn börnum hafa sloppið við refsingu á síðustu árum vegna þess að þeir komust ekki að í afplánun. 

Þetta kemur fram í svari Rögnu Bjarnadóttur fangelsismálastjóra við fyrirspurn fréttastofu.

Fréttastofa sendi erindi á fangelsismálastjóra þar sem spurt var hvort dómar hjá dæmdum barnaníðingum hefðu fyrnst án fullnustu refsinga á síðustu fimm árum þar sem ekki hefði verið hægt að koma föngum að í fangelsi vegna skorts á fjárveitingum.

Í svari frá Rögnu Bjarnadóttur fangelsismálastjóra kemur fram að á tímabilinu hafi tveir dómar fyrnst. Í báðum tilvikum hafi aðilar verið dæmdir fyrir kynferðisbrot gegn börnum.

„Á því tímabili sem spurt er um fyrndust tveir dómar fyrir kynferðisbrot gegn börnum, einn á árinu 2021 og annar á árinu 2026. Í báðum tilvikum var um að ræða brot gegn 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 (önnur kynferðisleg áreitni) og voru refsingar minna en 12 mánaða fangelsi. Slíkir dómar fyrnast á 5 árum, sbr. 1. tl. 1. mgr. 83. gr. sömu laga,“ segir í svari fangelsismálastjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×