Upp­gjörið: KR - Ár­mann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ármenningar áttu ekki séns í KR í kvöld.
Ármenningar áttu ekki séns í KR í kvöld. Vísir/Anton Brink

KR vann einkar öruggan 108-72 sigur á Ármanni í þriðju umferð Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld. KR er með fullt hús en Ármann án stiga.

Taplausir KR-ingar tóku á móti stigalausum Ármenningum í Vesturbænum í kvöld og spurningin hvort eitthvað myndi undan láta. Það hefur verið ljár á leik KR-inga að þeim hefur gengið illa í byrjun leikja og engin breyting varð á í kvöld.

Ármenningar voru orkumiklir og það vildi ekkert niður hjá KR. Þeir byrjuðu kvöldið á því að hitta einu af fyrstu 13 þriggja stiga skotum sínum, sem gerði nýtingu upp á sjö present.

Ármann leiddi verðskuldað með átta stiga mun, 26-18, eftir fyrsta leikhlutann.

KR brá á það ráð að pressa hátt og oftar en einu sinni, oftar en tvisvar og oftar en þrisvar töpuðu Ármenningar boltanum einkar klaufalega nánast undir eigin körfu og gáfu KR-ingum stig.

Það þurfti ekki meira til að KR-ingar fyndu lykt af blóði og réðust á bráðina. Ármenningar misstu hausinn og KR skoraði heil 35 stig gegn tíu í öðrum leikhlutanum sem var eign heimamanna.

Hallgrímur Árni Þrastarson með boltann í kvöld. Honum var sérlega vel fagnað í stúkunni.Vísir/Anton Brink

Staðan var því 53-37 í hálfleik.

Þriðji leikhlutinn tók við og fyrir óháðan áhorfanda var hann hrein unun áhorfs. Bæði lið keyrðu upp hraðann, boltinn gekk fram og til baka, engar villur, engin leikhlé og engin stopp. Tíu mínútna leikhlutinn kláraðist á mettíma þar sem KR skoraði 27 stig gegn 23 stigum Ármanns og var spennan því ekki beint mikil en leikurinn skemmtilegur áhorfs.

KR kláraði leikinn endanlega snemma í fjórða leikhluta og ungir leikmenn beggja liða fengu að klára leikinn. Munurinn varð að endingu 34 stig, 108-74 fyrir KR sem er með fullt hús eftir þrjá leiki en Ármann leitar enn fyrstu stiganna.

Atvik leiksins

Geggjuð karfa KR í stórskemmtilegum þriðja leikhluta. Lanaras réðist á körfuna í hröðu upphlaupi, gaf boltann milli fóta sinna aftur á bak á Ramstedt sem kastaði út á Þóri Guðmund sem setti niður þrist úr horninu.

Stúkan ærðist og það ekki að ástæðulausu.

Stjörnur og skúrkar

Linards Jaunzems frábær í kvöld með 21 stig og 17 fráköst, þar af tíu sóknarfráköst. Rafail Lanaras skoraði 18 stig og tók sjö fráköst með 63 prósent skotnýtingu.

Linards Jaunzems var framlagshæstur KR-inga með 21 stig og 17 fráköst, þar af heil tíu sóknarfráköst.Vísir/Anton Brink

Ósanngjarnt að plokka skúrka út úr Ármannsliði sem spilaði illa frá öðrum leikhluta og koðnaði gjörsamlega niður. Slakir í frákastabaráttunni sem þeir töpuðu 35-54 og köstuðu boltanum alltof oft svakalega klaufalega frá sér.

Dómarar

Ekkert út á dómarana að setja enda leikurinn ekki krefjandi.

Stemning og umgjörð

KR-ingar með allt í teskeið í umgjörðinni og stemningin góð. Hvolpasveitin í miðju stúkunnar söng og trallaði frá upphafi til enda. Til fyrirmyndar.

Viðtöl:

Steinar Kaldal: Koðnum niður eins og aumingjar

Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns.Vísir/Anton Brink

„Mér líður ekki vel, auðvitað. Við töpum þessum leik þarna í öðrum leikhluta. Þeir valta bara yfir okkur í öðrum leikhluta þar sem ég held þeir séu með 17 sóknarfráköst. Við eigum bara ekkert erindi í þessa deild ef við ætlum að spila svona vörn,“ segir Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, í ósáttur eftir leik kvöldsins.

Hvað gerist einmitt í þessum öðrum leikhluta, menn virðast hreinlega koðna niður?

„Ég spyr mig að því líka. Við vorum að spila fína vörn á gólfinu í fyrsta leikhluta en það var eins og við vorum ekki vanir því að það yrði skorað á okkur því frákast eftir frákast sem þeir taka í sókninni. Þeir skora 37 stig þar sem við náum ekki einu stoppi. Við koðnuðum bara niður eins og aumingjar,“ segir Steinar.

Róðurinn var þungur eftir það gegn sterku KR-liði.

„Það er það. Sérstaklega ef menn ætla að vera með svona litla baráttu, þá gerist það ekki. Þeir kláruðu þetta fannst mér – maður á kannski ekki að segja það sem þjálfari því allur seinni hálfleikurinn var eftir – en miðað við hvernig við vorum í öðrum leikhluta þá kláruðu þeir leikinn þar,“ segir Steinar.

Jakob Örn: Eitthvað sem við ætlum klárlega að skoða

Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR.Vísir/Anton Brink

Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, hafði orð á því fyrir leik að kominn væri tími til að KR-ingar byrjuðu leik af krafti í fyrsta sinn í haust. Honum varð ekki að ósk sinni.

En menn kvarta varla mikið eftir svo stóran sigur, eða hvað?

„Já og nei. Við kvörtum ekki yfir sigrinum en klárlega var fyrsti leikhluti ekki það sem við ætluðum okkur. Við ætluðum okkur að byrja mun betur, ná tökum á leiknum og þetta er eitthvað sem við ætlum klárlega að skoða,“ segir Jakob.

En annar leikhlutinn var þeim mun betri hjá KR-ingum sem skoruðu þar 35 stig gegn ellefu.

„Annar leikhlutinn var frábær. Ég er með góðan hóp og breiðan hóp. Ég er með marga stráka sem eru tilbúnir að koma af bekknum og skila framlagi. Það hefur verið þannig í öllum leikjunum núna. Það var mjög gott að sjá. Svo erum við orðnir helvíti góðir í því að byrja illa en ná að snúa því við. Það er alveg góður eiginleiki að hafa,“ segir Jakob.

Aðspurður um hvort hann hafi notið hraðs og skemmtilegs þriðja leikhluta þar sem liðin skiptust á að skora segir Jakob:

„Við viljum skora en ég var óánægður með vörnina aftur í þriðja leikhluta. Það var tækifæri fyrir okkur að algjörlega drepa leikinn en það kom svolítið í fjórða í staðinn.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira