Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar 20. október 2026 06:00 Gagnrýni á nýlegan dóm Landsréttar í nauðgunarmáli Á árunum 2018–2020 sneri Landsréttur sakfellingu héraðsdóms í sýknu í tíu kynferðisbrotamálum. Á sama tímabili var sýknu snúið í sakfellingu í aðeins einu máli. Þessar upplýsingar koma fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn á Alþingi árið 2021. Tölurnar vekja óneitanlega spurningar. Hvers vegna er svo mikill munur á því í hvora átt Landsréttur snýr niðurstöðum héraðsdóms? Hefur þessi þróun haldið áfram? Og hefur einhver rannsakað hvort kynbundnar staðalmyndir hafi áhrif á hvernig samþykki, trúverðugleiki og hegðun brotaþola eru metin fyrir íslenskum dómstólum? Tölurnar einar og sér svara þessum spurningum ekki. En þær gefa fullt tilefni til þess að spyrja þeirra. Sérstaklega í ljósi nýlegs dóms Landsréttar í máli nr. 767/2025, sem kveðinn var upp 15. október 2026. Í því máli hafði Héraðsdómur Reykjavíkur sakfellt mann fyrir nauðgun og dæmt hann í fimm ára fangelsi. Meirihluti Landsréttar, tveir dómarar af þremur, sneri þeirri niðurstöðu við og sýknaði manninn. Þriðji dómarinn skilaði sératkvæði og taldi rétt að staðfesta sakfellinguna. Það sem vekur sérstaka athygli við þennan dóm er ekki aðeins niðurstaðan, heldur röksemdafærslan sem liggur henni til grundvallar. Því þegar forsendur meirihlutans eru bornar saman við ákvæði almennra hegningarlaga, lögskýringargögn og fordæmi Hæstaréttar vakna alvarlegar spurningar um hvernig samþykki er í raun túlkað og metið í íslenskri dómaframkvæmd. Samþykki fyrir einhverju er ekki samþykki fyrir öllu Árið 2018 var nauðgunarákvæði 194. gr. almennra hegningarlaga breytt þannig að skortur á samþykki varð þungamiðja brotsins. Samkvæmt ákvæðinu telst samþykki liggja fyrir ef það er tjáð af frjálsum vilja. Í lögskýringargögnum er sérstaklega áréttað að samþykki verði að koma fram með orðum eða annarri ótvíræðri tjáningu. Þar er jafnframt tekið skýrt fram að ekki verði gerð krafa um að brotaþoli mótmæli eða sýni mótspyrnu og að algert athafnaleysi geti ekki talist samþykki. Þetta er grundvallarbreyting frá þeirri hugsun að brotaþoli þurfi að sýna fram á að hafa veitt mótspyrnu til þess að kynferðisbrot teljist hafa átt sér stað. Í nýja Landsréttarmálinu lá fyrir að konan hafði samþykkt að prófa ákveðna hörku í kynlífi. Meðal þess sem hafði verið rætt voru högg og kyrkingartök, auk þess sem aðilar höfðu komið sér saman um öryggisorð. En það er grundvallarmunur á því að samþykkja tilteknar kynferðislegar athafnir og því að veita öðrum einstaklingi ótakmarkað leyfi til að beita sig ofbeldi. Samþykki fyrir því að vera slegin í andlitið felur ekki sjálfkrafa í sér samþykki fyrir ítrekuðum barsmíðum. Samþykki fyrir kyrkingartaki felur ekki sjálfkrafa í sér samþykki fyrir því að þrengt sé að öndun viðkomandi svo mjög að hann geti ekki andað. Og ef engin nákvæm mörk voru skilgreind fyrir fram, á þá að túlka það sem víðtækt samþykki? Skortur á skýrum takmörkunum er ekki það sama og ótakmarkað samþykki. Samt leggur meirihluti Landsréttar verulegt vægi á að ekki hafi verið sannað að konan hafi sett skýrari mörk fyrir því ofbeldi sem hún samþykkti. Þarna vaknar sú spurning hvort áherslan hafi í framkvæmd færst frá því að meta hvaða háttsemi var samþykkt yfir í það að meta hvort brotaþoli hafi nægilega skýrt afmarkað hvað hann samþykkti ekki. Það er ekki sami hluturinn. Fordæmi Hæstaréttar – en er því beitt í samræmi við efni þess? Það sem gerir forsendur meirihlutans enn gagnrýniverðari er að í dóminum er vísað til Hæstaréttardóms nr. 46/2022 frá 22. febrúar 2023. Í því máli fjallaði Hæstiréttur um ofbeldisfull kynferðismök og mörk samþykkis. Ákærði hafði meðal annars byggt á því að brotaþoli hefði áður tekið þátt í harkalegu kynlífi og ekki mótmælt háttsemi hans. Hæstiréttur hafnaði því að hægt væri að ganga út frá samþykki á þeim grundvelli. Í 47. málsgrein dómsins er jafnframt lögð áhersla á að því meiri líkamsmeiðingum sem beitt er, þeim mun ríkari kröfur verði að gera til þess að ótvírætt samþykki hafi verið tjáð fyrir fram. Þetta er afar mikilvæg meginregla. Hæstiréttur er ekki að segja að sá sem hefur áður samþykkt harkalegt kynlíf hafi þar með samþykkt sambærilega háttsemi síðar. Þvert á móti er lögð áhersla á að samþykki þurfi að vera ótvírætt og ná til þeirrar háttsemi sem um ræðir. Vissulega er munur á málunum tveimur. Í Hæstaréttarmálinu hafði ákærði ekki aflað sérstaks samþykkis fyrir ofbeldinu. Í nýja Landsréttarmálinu hafði konan samþykkt ákveðna hörku fyrir fram. En sá munur svarar ekki lykilspurningunni. Náði samþykki konunnar til þess ofbeldis sem raunverulega var beitt? Ef Hæstiréttur hefur slegið því föstu að gera verði ríkari kröfur til ótvíræðs samþykkis eftir því sem líkamsmeiðingar eru meiri, hvers vegna virðist þá svo mikið vægi lagt á að konan hafi ekki skilgreint mörk sín nánar? Er verið að beita fordæmi Hæstaréttar í samræmi við þá meginreglu sem þar var lögð til grundvallar? Eða er túlkunin í framkvæmd orðin svo rúm að samþykki fyrir ákveðinni hörku getur náð til mun alvarlegra ofbeldis en nokkurn tíma var ótvírætt samþykkt? Samþykki sem aldrei var veitt þarf ekki að afturkalla Hér liggur að mínu mati eitt mikilvægasta lögfræðilega álitaefnið í málinu. Það er grundvallarmunur á því að afturkalla samþykki sem þegar hefur verið veitt og því að hafa aldrei samþykkt tiltekna háttsemi. Ef manneskja samþykkir ákveðna hörku í kynlífi, en ofbeldið verður síðan mun alvarlegra en samþykkið náði til, er ekki sjálfgefið að málið snúist um hvort henni hafi tekist að afturkalla samþykkið. Fyrst þarf að svara því hvort samþykki fyrir þeirri háttsemi hafi yfirhöfuð verið til staðar. Það er ekki hægt að afturkalla samþykki sem aldrei var veitt. Þetta skiptir sérstaklega miklu máli í ljósi þess að meirihluti Landsréttar leggur áherslu á að konan hafi ekki notað öryggisorðið oftar. Öryggisorð getur verið mikilvæg leið til að koma mörkum á framfæri. En tilvist þess getur ekki sjálfkrafa breytt samþykki fyrir ákveðnum athöfnum í ótakmarkað samþykki þar til orðið er sagt. Og það getur ekki leyst þann sem beitir ofbeldi undan því að gæta að því hvort samþykki sé enn fyrir hendi. Því þarf að spyrja hvort meirihlutinn hafi lagt of mikla áherslu á að konan hafi ekki afturkallað samþykki sitt með nægilega skýrum hætti, í stað þess að meta sjálfstætt hvort upphaflega samþykkið hafi yfirhöfuð náð til þeirrar háttsemi sem ákærði viðhafði. Hún reyndi að fjarlægja hendur hans af hálsi sínum Eitt af því sem mér finnst sérstaklega mikilvægt í þessu máli er frásögn konunnar af því að hafa reynt að fjarlægja hendur ákærða af hálsi sínum þegar hann þrengdi að öndun hennar. Hvernig á að túlka slík viðbrögð? Þegar manneskja reynir að losa hendur annars einstaklings af hálsi sínum er það augljóslega atriði sem getur haft verulega þýðingu við mat á því hvort hún sé samþykk því sem er að gerast. Þarf hún að segja ákveðið orð líka? Þarf hún að geta útskýrt að hún vilji ekki lengur láta þrengja að öndun sinni? Og ef ákærði varð var við að hún reyndi að fjarlægja hendur hans, hvaða þýðingu hefur það þá fyrir mat á því hvort honum hafi verið ljóst, eða hann gert sér grein fyrir möguleikanum á, að hann væri kominn út fyrir mörk samþykkisins? Þetta er ekki aðeins spurning um hvort samþykki hafi verið til staðar. Þetta er líka spurning um ásetning. Til sakfellingar fyrir nauðgun þarf að sanna að ásetningur ákærða hafi náð til þess að samþykki skorti. En ásetningur þarf ekki að felast í yfirlýstum vilja til að fremja nauðgun. Hann getur einnig falist í því að gera sér grein fyrir raunverulegum möguleika á að samþykki skorti og láta sig það í léttu rúmi liggja. Þess vegna skipta viðbrögð konunnar máli. Og þess vegna skiptir umfang ofbeldisins máli. Það er ekki nóg að spyrja hvort hún hafi sagt öryggisorðið aftur. Það þarf líka að spyrja hvað ákærði gat skynjað af aðstæðunum og eigin háttsemi. Hún gat sagt öryggisorðið einu sinni. Hvers vegna ekki aftur? Í forsendum meirihlutans kemur fram að það skjóti skökku við að konan hafi getað notað öryggisorðið einu sinni en ekki oftar, þrátt fyrir að hún hafi lýst því að hafa sætt áframhaldandi ofbeldi. Þetta finnst mér eitt gagnrýniverðasta atriði dómsins. Konan lýsti því að hafa frosið af hræðslu. Að frjósa er þekkt viðbragð við yfirþyrmandi ógn. Það er ekki meðvituð ákvörðun um að samþykkja það sem er að gerast. Það er heldur ekki viðbragð sem fólk getur alltaf stjórnað. Manneskja getur náð að tjá sig á einu augnabliki en verið ófær um það á því næsta. Samt virðist meirihlutinn gera ráð fyrir að þar sem konan hafi getað notað öryggisorðið einu sinni, hefði hún átt að geta gert það aftur. Á hvaða forsendum? Hvers vegna er það talið draga úr trúverðugleika frásagnar hennar að hún hafi ekki brugðist við með þeim hætti sem dómararnir telja að hún hefði átt að geta gert? Og hvernig samræmist sú röksemdafærsla lögskýringargögnum 194. gr., þar sem sérstaklega er tekið fram að ekki verði gerð krafa um mótmæli eða mótspyrnu? Meirihlutinn notar skort á frekari mótmælum ekki formlega sem sjálfstæða sönnun fyrir samþykki, heldur sem þátt í sönnunarmati sínu. En það breytir ekki því að spyrja verður hvort niðurstaðan byggist að einhverju leyti á væntingum um hvernig brotaþoli eigi að haga sér við ofbeldi. Hvers vegna er verið að spyrja hvers vegna hún sagði ekki öryggisorðið oftar, í stað þess að leggja meiri áherslu á hvort ákærði hafði ótvírætt samþykki fyrir því sem hann gerði? Áverkarnir eru ekki aukaatriði Í málinu lágu fyrir læknisfræðileg gögn um verulega áverka og afleiðingar ofbeldisins. Þau gögn skipta máli, ekki aðeins sem sönnun þess að ofbeldi hafi átt sér stað, heldur einnig við mat á því hversu langt háttsemin gekk og hvort hún hafi verið innan marka þess samþykkis sem konan hafði veitt. Hér verður aftur að horfa til fordæmis Hæstaréttar. Ef ríkari kröfur eru gerðar til ótvíræðs samþykkis eftir því sem líkamsmeiðingar eru meiri, verður að skýra hvernig þeirri meginreglu er beitt þegar umfangsmiklir áverkar liggja fyrir. Það er ekki nóg að staðreyna áverkana og láta síðan upphaflegt samþykki fyrir harkalegu kynlífi ráða meginþunga matsins. Áverkarnir sanna ekki einir og sér skort á samþykki eða ásetning ákærða. En þeir eru hluti af þeirri heildarmynd sem verður að meta. Sérstaklega þegar þeir eru skoðaðir samhliða frásögn konunnar af því að hafa átt erfitt með að anda, reynt að fjarlægja hendur ákærða af hálsi sínum, notað öryggisorð og síðan frosið af hræðslu. Þarna verður spurningin ekki aðeins hvað konan hafði samþykkt í upphafi. Spurningin verður líka hvað ákærða mátti vera ljóst um mörk þess samþykkis þegar atburðarásin þróaðist. Sama mál. Sömu sönnunargögn. Tvær gjörólíkar niðurstöður. Ingibjörg Þorsteinsdóttir landsréttardómari skilaði sératkvæði og taldi rétt að staðfesta sakfellingu héraðsdóms. Hún hafnaði ekki því að konan hefði samþykkt ákveðna hörku í kynlífi. Hún taldi hins vegar að það samþykki hefði ekki náð til þess umfangsmikla ofbeldis sem gögn málsins báru með sér. Hún lagði jafnframt annað mat á framburð ákærða, læknisfræðilegu gögnin og frásögn konunnar af því að hafa frosið af hræðslu. Það sem gerir sératkvæðið sérstaklega áhugavert er að þar er ekki byggt á öðrum lagareglum eða lægri sönnunarkröfum. Sömu gögn eru metin, en niðurstaðan verður gjörólík. Það sýnir hversu miklu getur munað um túlkun samþykkis og mat á trúverðugleika og ásetningi. Og það vekur óhjákvæmilega spurningar um hvaða sjónarmið ráða því að tveir dómarar telja ekki sannað að ákærði hafi farið af ásetningi út fyrir mörk samþykkis, á meðan sá þriðji telur sakfellingu réttmæta. Þegar sakfelling verður að sýknu Áður en kynferðisbrotamál kemur fyrir dómstóla hefur það almennt farið í gegnum rannsókn lögreglu og sjálfstætt mat ákæruvalds á því hvort sönnunargögn séu nægileg til málshöfðunar. Í þessu máli hafði Héraðsdómur Reykjavíkur þegar metið sönnunargögnin og sakfellt ákærða fyrir nauðgun. Refsingin var fimm ára fangelsi. Landsréttur komst hins vegar að annarri niðurstöðu með atkvæðum tveggja dómara gegn einu. Þegar niðurstöður dómstóla verða svo gjörólíkar er eðlilegt að almenningur spyrji hvernig það geti gerst. Sérstaklega þegar ágreiningurinn snýst um túlkun samþykkis, ásetning og vægi sönnunargagna um alvarlegt líkamlegt ofbeldi. Það er líka ástæða til að rifja upp tölurnar frá fyrstu starfsárum Landsréttar. Tíu sakfellingum í kynferðisbrotamálum var snúið í sýknu á árunum 2018–2020, en aðeins einni sýknu í sakfellingu. Hefur þessi þróun haldið áfram? Og ef svo er, hvað skýrir hana? Eru gamlar hugmyndir enn að hafa áhrif á sönnunarmatið? Við höfum um árabil rætt um nauðsyn þess að uppræta úreltar hugmyndir um hvernig þolendur kynferðisofbeldis eigi að hegða sér. Að þeir eigi að berjast á móti. Að þeir eigi að öskra. Að þeir eigi að segja nei ítrekað. Að þeir eigi að muna atburðarásina nákvæmlega og bregðast við á þann hátt sem öðrum finnst rökréttur. En eru þessar hugmyndir raunverulega horfnar úr réttarkerfinu? Eða birtast þær enn, jafnvel ómeðvitað, í því hvernig sönnunargögn eru metin? Hér finnst mér nauðsynlegt að ræða áhrif feðraveldis og kynbundinna staðalmynda innan réttarkerfisins. Ekki vegna þess að hægt sé að fullyrða um persónuleg viðhorf einstakra dómara út frá einum dómi, heldur vegna þess að dómstólar starfa ekki utan samfélagsins. Dómarar eru manneskjur. Þeir eru, eins og við öll, mótaðir af samfélaginu sem þeir tilheyra. Og samfélagslegar hugmyndir um kyn, kynlíf, ofbeldi og hegðun brotaþola geta haft áhrif á það sem okkur þykir trúverðugt, eðlilegt eða óeðlilegt. Þess vegna skiptir máli að skoða hvort slík sjónarmið birtist í dómaframkvæmd. Þegar brotaþoli lýsir því að hafa frosið af hræðslu, en það er síðan talið vekja spurningar að hún hafi ekki mótmælt oftar, hlýtur að vakna spurning um hvaða væntingar liggja að baki slíku mati. Hvernig á manneskja að haga sér til þess að viðbrögð hennar teljist trúverðug? Á hún að berjast á móti? Segja nei ítrekað? Nota öryggisorð á meðan hún á erfitt með að anda? Og ef hún nær að tjá sig einu sinni, á þá að gera ráð fyrir að hún hafi verið fær um það allan tímann? Hvenær hættum við að spyrja hvers vegna brotaþoli gerði ekki meira og förum að spyrja hvort gerandi hafi haft skýrt samþykki fyrir því sem hann gerði? Hver ber ábyrgð á mörkunum? Þegar lögunum var breytt árið 2018 var markmiðið að færa samþykki í forgrunn og tryggja raunverulega vernd kynfrelsis og sjálfsákvörðunarréttar. En ef skortur á skýrum mótmælum fær í framkvæmd meira vægi en skortur á ótvíræðu samþykki, þá hljótum við að spyrja hvort sú breyting hafi náð tilgangi sínum. Og ef Hæstiréttur hefur lagt áherslu á að gera verði ríkari kröfur til samþykkis eftir því sem ofbeldið er alvarlegra, þá verður að vera hægt að sjá hvernig þeirri reglu er beitt þegar mál koma fyrir dóm. Gagnrýni á röksemdafærslu dómstóla er ekki árás á sjálfstæði þeirra. Hún er nauðsynlegur hluti af réttarríkinu. Sönnunarkröfur í sakamálum eru ríkar og eiga að vera það. En þær mega ekki í framkvæmd verða að kröfu um að brotaþoli hafi brugðist við ofbeldi á einhvern fyrir fram ákveðinn hátt. Samþykki fyrir einhverju er ekki samþykki fyrir öllu. Þögn er ekki samþykki. Og það að frjósa af hræðslu er ekki samþykki. Það er kominn tími til að skoða af alvöru hvernig þessar meginreglur birtast í dómaframkvæmd íslenskra dómstóla. Því spurningin er ekki aðeins hvernig tveir dómarar Landsréttar komust að þessari niðurstöðu. Spurningin er líka hvað þessi niðurstaða segir okkur um það hvernig réttarkerfið skilur og metur samþykki þegar reynir á það. Ef við ætlum að segja að samþykki sé grundvöllur kynfrelsis, verðum við líka að tryggja að sú meginregla hafi raunverulegt vægi þegar á reynir. Annars er hætt við að samþykki verði fallegt orð í lagatexta, á meðan ábyrgðin á því að stöðva ofbeldi færist aftur yfir á þann sem fyrir því verður. Höfundur er ML nemi í lögfræði við Háskólann í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dómsmál Mest lesið Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun