Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar 19. október 2026 10:16 Ummæli Kristrúnar Frostadóttur um náttúru- og innviðagjald sýna að mínu mati alvarlega vanþekkingu forsætisráðherra á ferðaþjónustunni og því hvernig viðskiptin verða til. Þegar möguleikar tækninnar til innheimtu eru settir í forgrunn, án þess að fyrir liggi heildstætt mat á áhrifum gjaldtökunnar á viðskiptin, er horft fram hjá grundvallaratriði: Fyrst þarf að afla viðskiptavinarins. Síðan þarf að standa undir væntingum hans og tryggja að honum finnist Íslandsferðin peninganna virði. Náttúran er segullinn sem dregur ferðamenn til landsins. En segullinn þarf að vera sýnilegur í harðri samkeppni við aðra áfangastaði. Fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa fjárfest í að kynna Ísland, vekja áhuga á landinu og breyta þeim áhuga í raunveruleg viðskipti. Það gerist ekki af sjálfu sér. Í frétt Vísis 8. september lýsti Kristrún Frostadóttir gjaldinu sem jákvæðu skrefi. Hún sagði byrjað yrði á ferðamannastöðum ríkisins og nefndi mögulega þátttöku einkaaðila í tæknilausninni síðar. Það er ekki bein yfirlýsing um gjaldtöku um allt land. En það vekur spurningu um hvert stefnan leiðir: Verður sífellt auðveldara að bæta nýjum gjöldum við ferðalagið? Skilur forsætisráðherra hvernig viðskiptin verða til? Ferðamaðurinn er ekki sjálfvirkur tekjustofn sem bíður þess að stjórnvöld finni fleiri leiðir til að rukka hann. Hann er viðskiptavinur sem velur milli landa, ber saman verð og upplifun og ráðstafar takmörkuðum tíma og fjármunum. Það þarf að vekja áhuga hans, sannfæra hann um að velja Ísland og bjóða honum þjónustu sem stenst samanburð við aðra áfangastaði. Að baki þeirri ákvörðun liggja fjárfestingar, vöruþróun, markaðssetning og sölustarf fyrirtækja, oft árum saman áður en tekjurnar verða til. Þess vegna tel ég nálgun forsætisráðherra bera vott um alvarlega vanþekkingu á rekstri og viðskiptum ferðaþjónustunnar. Það er ekki nóg að skilja hvernig ríkið getur innheimt af ferðamanninum. Forsætisráðherra þarf líka að skilja hvers vegna hann kemur, hvernig viðskiptin urðu til og hvað getur orðið til þess að þau tapist. Þegar ný gjöld gera ferðina dýrari eða flóknari geta stjórnvöld unnið gegn þeirri eftirspurn sem fyrirtækin hafa kostað miklu til að skapa. Gjaldtakan getur þannig skert tekjur fyrirtækja og skattstofna annars staðar, þótt innheimtan sjálf gangi greiðlega. Skilvirkt greiðslukerfi er engin sönnun fyrir skynsamlegri atvinnustefnu. Forsætisráðherra ber að meta heildaráhrifin á gestina, fyrirtækin og þjóðarbúið áður en hún fagnar nýjum leiðum til innheimtu. Það er lágmarkskrafa. Náttúran er segullinn - fyrirtækin afla viðskiptanna Náttúra Íslands er eitt helsta aðdráttarafl landsins. En tilvist fossa, jökla, hvera og norðurljósa tryggir ekki að ferðamaður velji Ísland fram yfir aðra áfangastaði. Hann þarf að vita af því sem hér býðst, sjá fyrir sér upplifunina og telja ferðina þess virði að verja til hennar tíma og fjármunum. Þar gegna ferðaþjónustufyrirtækin lykilhlutverki. Þau hafa fjárfest í kynningu á Íslandi, þróað ferðir og afþreyingu, byggt upp sölusambönd erlendis og lagt fé í að ná til væntanlegra gesta. Þegar fyrirtæki auglýsir norðurljósaferð, náttúruböð eða ferð að fossum og jöklum er það jafnframt að kynna Ísland sem áfangastað. Þetta starf skapar viðskipti langt út fyrir fyrirtækið sem greiðir fyrir kynninguna. Gesturinn kaupir flug, gistingu, veitingar, samgöngur og aðra þjónustu. Ríkissjóður og sveitarfélög njóta síðan mikilla tekna af þeim viðskiptum. Fjölgun ferðamanna og auknar skatttekjur hafa því ekki orðið til af sjálfu sér. Að baki liggja fjárfestingar og áhættutaka fyrirtækja, bæði í aðstöðu til að taka á móti gestunum og í því markaðsstarfi sem fær þá til að koma. Ekki svelta mjólkurkúna Markaðsstarfið þarf að endurnýja á hverju ári. Árangur fyrri ára tryggir ekki bókanir næsta árs og aðrir áfangastaðir keppa stöðugt um athygli og viðskipti ferðamanna. Ef afkoma íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja versnar minnkar svigrúm þeirra til markaðssetningar, vöruþróunar og sölu. Dragi þau úr eða hætti kynningu á Íslandi getur það veikt eftirspurnina sem bæði fyrirtækin og ríkissjóður byggja tekjur sínar á. Þess vegna er varasamt að líta á hverja nýja álögu sem hreina viðbót við tekjur ríkisins. Ef álögurnar veikja fyrirtækin sem afla viðskiptanna geta þær um leið grafið undan framtíðartekjum ríkissjóðs. Það er skammsýn stefna að svelta mjólkurkúna og ætla síðan að mjólka hana meira. Stjórnvöld þurfa að skilja að góð afkoma ferðaþjónustufyrirtækja skapar svigrúm til fjárfestinga og markaðsstarfs sem getur aflað þjóðarbúinu frekari tekna. Sá sameiginlegi ávinningur á að vera leiðarljósið. Ferðamaðurinn greiðir þegar Í umræðunni um innviðagjaldið er stundum talað eins og erlendur ferðamaður leggi lítið til sameiginlegra sjóða nema hann greiði sérstakt gjald við náttúruperlu. Það er kolröng mynd. Ferðamaðurinn greiðir meðal annars virðisaukaskatt af skattskyldum kaupum sínum hér á landi. Viðskipti hans skapa einnig laun, atvinnu og hagnað og þar með tekjuskatt, útsvar, tryggingagjald og aðrar opinberar tekjur. Til viðbótar koma sérstakar álögur á einstaka þætti ferðalagsins. Áður en fullyrt er að erlendir gestir greiði of lítið þarf að leggja fram heildstætt mat á tekjum og kostnaði vegna þeirra. Margt smátt verður að stórum reikningi Hættan við smágreiðsluvæðingu ferðaþjónustunnar er að hvert gjald sé réttlætt eitt og sér. Eitt gjald fyrir bílastæði, annað fyrir aðgang og hið þriðja fyrir innviði. Hver fjárhæð kann að virðast viðráðanleg. Gesturinn þarf samt að greiða heildarreikninginn. Fyrirhugaður náttúrupassi á að leysa tiltekin bílastæðagjöld ríkisins af hólmi við Þingvelli, Geysi og Gullfoss. Það verður að taka með í reikninginn. En það svarar ekki stærri spurningunni um samanlagðar álögur á ferðamenn eða hvert frekari útvíkkun gjaldtökunnar gæti leitt. Það nægir ekki að spyrja hvort gesturinn geti greitt hvert gjald fyrir sig. Meta þarf hvernig heildarkostnaðurinn hefur áhrif á ráðstöfun ferðafjárins. Nýju gjaldtekjurnar geta að hluta komið í stað annarra viðskipta og skatttekna. Umfang þeirra áhrifa þarf að rannsaka. Náttúruperlan er hluti af stærri heild Heimsókn að náttúruperlu getur verið forsenda mun umfangsmeiri viðskipta í heilu byggðarlagi. Fossinn, hverasvæðið eða gönguleiðin getur ráðið því hvert gesturinn fer, hvar hann gistir og hvaða þjónustu hann kaupir. Þess vegna er varasamt að líta á hvern stað sem einangrað tækifæri til innheimtu. Meta þarf verðmæti hans sem aðdráttarafls fyrir önnur viðskipti og atvinnulíf svæðisins. Náttúruvernd og viðhald kosta fé og sums staðar þarf að stýra álagi. Gjaldtaka þarf að byggjast á skýrum markmiðum og mati á heildaráhrifum. Að tæknin geri kleift að rukka er ekki næg efnahagsleg röksemd fyrir því að gera það. Ferðaþjónustan er undirstaða byggðaþróunar Ferðaþjónustan er ein af undirstöðum byggðaþróunar á Íslandi. Fjölgun ferðamanna og betri dreifing þeirra um landið hefur víða skapað ný störf, styrkt atvinnulíf og rennt stoðum undir verslun og þjónustu sem íbúarnir njóta einnig. Þannig hefur ferðaþjónustan aukið möguleika fólks til að búa og starfa í heimabyggð. Reynslan sýnir að víða er áframhaldandi uppbygging ferðaþjónustu mikilvæg forsenda þess að viðhalda og efla byggð. Þegar gestum fjölgar skapast rekstrargrundvöllur fyrir gistingu, veitingastaði, afþreyingu og aðra þjónustu. Ávinningurinn nær því langt út fyrir fyrirtækin sem taka beint á móti ferðamönnunum. Forsætisráðherra tengdi gjaldtökuna við það markmið að ferðamenn færu víðar um landið. En gjaldtakan getur orðið tvíeggjað sverð. Aukin gjöld geta haft veruleg áhrif á ferðavenjur gesta og unnið gegn þeirri dreifingu sem stefnt er að. Ferðamaðurinn er ekki ótakmarkaður tekjustofn sem borgar bara og borgar. Hann hefur ákveðið svigrúm til útgjalda og þarf að forgangsraða eins og aðrir. Ísland er þegar dýr áfangastaður og auknum kostnaði getur hann mætt með aðhaldi: styttri dvöl, færri viðkomustöðum, minni afþreyingu og eða færri veitingahúsaheimsóknum. Byggðarlög fjarri helstu komuhliðum landsins þurfa á því að halda að fólk hafi bæði tíma og fjármuni til að ferðast lengra og dvelja lengur. Þau þurfa líka á öflugum ferðaþjónustufyrirtækjum að halda sem hafa bolmagn til að kynna svæðin, þróa þjónustu og afla viðskipta. Ef gesturinn bregst við auknum kostnaði með því að stytta ferðina og takmarka hana við fjölförnustu svæðin verða fjarlægari byggðir af viðskiptunum. Gjaldtaka sem á að stuðla að betri dreifingu ferðamanna getur þannig haft þveröfug áhrif og veikt undirstöður byggðar víða um land. Betri dreifing ferðamanna er byggðamál. Áður en ný gjaldtaka er kynnt sem leið að því markmiði þarf að sýna fram á að hún styðji lengri dvöl, ferðalög um landið og aukin viðskipti í þeim byggðum sem mest þurfa á þeim að halda. Nýtum tekjurnar og reiknum dæmið Við eigum að verja fé til náttúruverndar, salerna, göngustíga, öryggis og samgangna. Ferðaþjónustan þarf á öflugum innviðum að halda. En ef skatttekjurnar sem viðskipti ferðamanna skapa skila sér ekki nægilega til þessara verkefna þarf líka að ræða forgangsröðun ríkisútgjalda. Nýr skattur leysir ekki sjálfkrafa þann vanda. Í umsögn minni um náttúrupassann kallaði ég eftir því að fyrri kostnaðar- og ábatagreining á vegum Stjórnstöðvar ferðamála yrði endurtekin með nýjustu gögnum. Meta þarf allar viðeigandi opinberar tekjur, raunverulegan viðbótarkostnað og áhrif nýrrar gjaldtöku á neyslu, dvalarlengd og gjaldeyristekjur. Jafnframt þarf að bera nýtt innheimtu- og eftirlitskerfi saman við betri nýtingu núverandi skattkerfis. Markmiðið á að vera að ferðamaðurinn dvelji lengur, ferðist víðar og kaupi meiri íslenska þjónustu. Þar verða til störf, gjaldeyrir og skatttekjur og þar styrkjast undirstöður byggðar um landið. Til þess þurfa fyrirtækin svigrúm til að fjárfesta, þróa þjónustu og halda áfram að kynna Ísland. Náttúran er segullinn. Fyrirtækin fjárfesta í að kynna hann og afla viðskiptanna. Stjórnvöld þurfa að skilja þetta samhengi áður en þau bæta við reikninginn. Ísland á ekki að verða land gjaldhliða. Það á að vera áfangastaður sem fólk velur, mælir með og vill heimsækja aftur. Höfundur er fyrrverandi varaformaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórir Garðarsson Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun