Lífið

Diljá Mist á lausu

Bjarki Sigurðsson skrifar
Diljá Mist Einarsdóttir er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Diljá Mist Einarsdóttir er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Anton Brink

Leiðir hafa skilið hjá Diljá Mist Einarsdóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, og Róberti Benedikt Róbertssyni fjármálastjóra. Diljá og Róbert eiga saman tvö börn.

Mbl.is greindi fyrst frá.

Diljá er sjöundi þingmaður Reykjavíkur norður og skipaði annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Alþingiskosningunum 2024. Hún hefur setið á þingi síðan 2021 og er varaformaður þingflokksins. 

Róbert er fjármálastjóri Arnarlax. Hann starfaði áður hjá Kaldvík og Ice Fish Farm AS, auk þess að hafa starfað hjá Ernst & Young við endurskoðun og fyrirtækjaráðgjöf. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.