Innlent

Jón Gnarr segir sig úr þing­flokki Við­reisnar

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Jón Gnarr hefur verið þingmaður Viðreisnar síðan í alþingiskosningum 2024.
Jón Gnarr hefur verið þingmaður Viðreisnar síðan í alþingiskosningum 2024. Vísir/Vilhelm

Jón Gnarr hefur sagt sig úr þingflokki Viðreisnar samkvæmt heimildum fréttastofu. Vísir verður í beinni frá Alþingi vegna málsins auk þess sem fylgjast með málinu í vakt hér fyrir neðan. Gert er ráð fyrir því að þetta verði tilkynnt við upphaf þingfundar sem hefst klukkan 13:30. 

Ekki hefur náðst í Jón Gnarr vegna málsins, né heldur Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur formann Viðreisnar eða Pawel Bartoszek þingflokksformann. Ekki heldur aðra þingmenn flokksins. Jón Gnarr er þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður og hlaut kjör í alþingiskosningum 2024.

Meirihlutinn á þingi hefur hingað til staðið með 36 þingmönnum. Fari svo að Jón Gnarr styðji ekki ríkisstjórnina telur meirihlutinn 35 þingmenn. 32 þingmenn þarf til að mynda meirihluta. Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður sagði sig fyrr á þessu kjörtímabili úr Flokki fólksins en tók fram að hann styddi ríkisstjórnina áfram.

Fréttamaður Vísis Bjarki Sigurðsson er staddur í Alþingishúsinu ásamt Einari Árnasyni tökumanni. Hann mun freista þess að fá viðbrögð frá Jóni og öðrum þingmönnum vegna málsins.

Fylgjast með má nýjustu vendingum í beinni útsendingu hér fyrir neðan sem og í vakt Vísis. Þingfundur hefst klukkan 13:30. Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða síðuna. 




Fleiri fréttir

Sjá meira
×