Há­kon og fé­lagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír

Sindri Sverrisson skrifar
Hákon Arnar Haraldsson í kröppum dansi gegn Ezri Konsa í London í kvöld.
Hákon Arnar Haraldsson í kröppum dansi gegn Ezri Konsa í London í kvöld. Getty/Jacques Feeney

Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille urðu að sætta sig við 3-0 tap gegn Englandsmeisturum Arsenal í London í kvöld, í Meistaradeild Evrópu í fótbolta.

Hákon var á sínum stað í byrjunarliði Lille í kvöld og var nálægt því að leggja upp mark en það var dæmt af vegna rangstöðu.

Staðan var markalaus eftir klukkutíma leik en Jurrien Timber braut ísinn á 64. mínútu og í kjölfarið hleypti Mikel Arteta þeim Martin Ödegaard, Bukayo Saka og Kai Havertz inn á völlinn. Saka lagði í kjölfarið upp mark fyrir Eberechi Eze og Havertz lagði svo upp mark fyrir Saka en öll þrjú mörk Arsenal komu á aðeins sjö mínútna kafla.

Arsenal hefur þar með unnið fyrstu tvo leiki sína í keppninni en Lille tapað sínum fyrstu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira