„Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Tómas Arnar Þorláksson og Telma Tómasson skrifa 13. október 2026 10:59 Jóhann Magnússon hrossabóndi á Bessastöðum við Hrútafjörð að huga að stóðhestsefnunum áður en vonskuveður skellur á. vísir/aðsend „Maður býst ekki við neinu aftakaveðri fyrr en um hádegi á morgun. Ég býst nú við að menn hýsi í kvöld, þannig sofa menn betur og samviskan er betri. Maður undirbýr sig fyrir það versta.“
Þetta segir Jóhann Magnússon, hrossabóndi á Bessastöðum við Hrútafjörð, sem leggur nú allt kapp á að koma hrossum í var fyrir yfirvofandi óveður. Bændur á Norðurlandi vestra eru nú í óðaönn að undirbúa tilfærslu á skepnum af túnum og koma þeim í skjól eða á hús, áður en vonskuveður skellur á, á morgun. Spár gera ráð fyrir því að hin djúpa lægð sem mun ganga yfir stóran hluta landsins á morgun geti valdið mestum usla á norðanverðum Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra, en þar er gert ráð fyrir norðan stórhríð, með hvassviðri, lélegu skyggni og snjó á vegum. Færð getur spillst og búist við því að ekkert ferðaveður verði á þessu svæði, en þar taka appelsínugular viðvaranir gildi síðdegis á morgun og gilda inn í nóttina. „Við erum í þessum töluðu orðum að fara af stað í að smala heim öllum hrossum. Allavega folaldhryssur, veturgamlar, tveggja vetra, fara þar sem er aðgangur að skjólum og húsum. Einhver geld hross verða sett þar sem þau hafa aðgang að góðum skjólum,“ segir Jóhann sem tekur fram að folaldsmerar séu nú þegar komnar í gott skjól. Takið þið eitthvað inn af hrossum? Telurðu að það sé þörf á því? „Hrossin sem voru í þjálfun í sumar og þótt þau séu í haustfríi þessa dagana þá verða þau tekin inn í kvöld eða í fyrramálið.“ Hann segir aðra bændur í nágrenninu vera í startholunum fyrir komandi óveður. Fé sé komið í hús. „Þetta tekur svona tvo til þrjá klukkutíma og þá eru þeir komnir með allt sitt fé á hús. Það er bara spurning hvort menn bíði og sjái til hvernig þetta er í fyrramálið. Maður býst ekki við neinu aftakaveðri fyrr en um hádegi á morgun. Ég býst nú við að menn hýsi í kvöld, þannig sofa menn betur og samviskan er betri. Maður undirbýr sig fyrir það besta.“
Veður Hestar Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira