Upp­gjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigur­göngu Fram

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Fram tapaði fyrsta leiknum sínum á tímabilinu gegn Val í dag.
Fram tapaði fyrsta leiknum sínum á tímabilinu gegn Val í dag. Diego/Vísir

Valur sigraði Fram, 30-25, í hörkuleik í Olís deild kvenna í dag og batt þar með enda á sigurgöngu Framkvenna sem höfðu unnið alla fjóra leiki sína á tímabilinu fyrir viðureignina.

Leikurinn fór nokkuð jafnt af stað en Valskonur náðu fljótlega yfirhöndina. Það gekk lítið í sóknarleik Fram þar sem hvert skotið á fætur öðru hafnaði í stöng eða slá, auk þess sem Ísabell Schöbel Björnsdóttir, markvörður Vals, varði einstaklega vel. Valur nýtti sér þessar ógöngur Framkvenna og komust í fimm marka forystu, 5-10.

Fram tók þá leikhlé sem virtist skila góðum árangri. Heimakonur unnu sig þá hægt og bítandi aftur inn í leikinn og náðu á lokamínútu fyrri hálfleiks að jafna metin, 14-14.

Fram komst strax yfir í upphafi seinni hálfleiks en Valskonur svöruðu fyrir sig og var allt í járnum.

Valskonur náðu um miðbik seinni hálfleiks yfirhöndinni og komust í þriggja marka forystu, 21-24.

Síðustu mínútur leiksins reyndust Framkonum ansi erfiðar. Hvert klaufalegt boltartapið á eftir annað og gekk lítið upp í sóknarleiknum. Valskonum tókst að nýta sér mistök heimakvenna og juku forskotið jafnt og þétt og sigldu að lokum öruggum fimm marka sigri í höfn, 25-30.

Atvik leiksins

Ekkert eitt atvik en tankurinn virtist vera alveg búinn hérna í lokin hjá Fram.

Stjörnur og skúrkar

Ég myndi segja að sláin og stöngin hafi verið maður leiksins.

Elísa Elíasdóttir var frábær í dag fyrir Val og var með 10 mörk. Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir var næst markahæst með sex mörk. Ísabella átti svo góðan leik í markinu og var með 34% markvörslu.

Arna Sif Jónsdóttir átti frábæran leik fyrir Fram og var með 42% markvörslu.

Stemning og umgjörð

Fínasta stemning og frábær umgjörð.

Dómarar

Engin vafamál og fínasta dómgæsla.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira