Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Lovísa Arnardóttir skrifar 6. október 2026 10:08 Runólfur Ólafsson er framkvæmdarstjóri FÍB. Hann segir verða að bregðast við mikilli hækkun á olíuverði. Hún hafi áhrif á allt vöruverð og flutning vöru um land allt. Vísir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, kallar eftir því að olíufélögin lækki álagningu sína og að stjórnvöld stígi sömuleiðis inn með því að lækka virðisaukaskatt á ný. Bensínlítri kostar nú 253 krónur á höfuðborgarsvæðinu en víða á landsbyggðinni allt að 274 krónur samkvæmt vef Gasvaktarinnar. Lítri af dísilolíu kostar nú víðast hvar um 300 krónur.
Til samanburðar má nefna að þegar virðisaukaskattur var lækkaður tímabundið í sumar kostaði bensínlítrinn um 202 krónur og lítrinn af dísil um 244 krónur. Bensínverð lækkaði verulega um áramótin þegar innleiðing kílómetragjaldsins tók gildi. Í frétt sem skrifuð var á nýársdag kom fram að á stöð Orkunnar við Laugaveg í Reykjavík hafi verð á bensíni verið 308,5 krónur á næstsíðasta degi nýliðins árs en lítraverðið var komið í 212 krónur eftir miðnætti á nýju ári. Lækkunin nam um 31 prósentum. Að sama skapi fór verð á dísillítranum úr 314,2 krónum í 226,9 krónur sem var um 28 prósenta lækkun. Hækkunina má rekja til hækkunar á hráolíu erlendis og það tengist átökum Bandaríkjanna og Ísrael í Íran og lokun Hormússunds. „Það er eitthvað sem við stjórnum ekki en það sem við stjórnum hér eru skattarnir sem eru lagðir á eldsneytið,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, sem var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun um verðhækkun á olíu. Verðið hækkað mikið í september Runólfur segir að það megi helst sjá í verðlækkuninni sem var þegar virðisaukaskatturinn var lækkaður tímabundið í ellefu prósent en um mánaðamótin ágúst-september var sú lækkun afnumin og verðið hækkaði aftur. „Við höfum séð miklar hækkanir síðan,“ segir Runólfur og að bensín hafi frá 1. september hækkað um 52 krónur á lítra. Hann segir ástandið við Hormússund hafa lítið batnað en það sé örlítið meira flæði en hefur verið en það hafi ekki haft mikil áhrif á verðið. Við getum ekki haft áhrif á það en það sé hægt að hafa áhrif á skattlagningu og álagningu olíufélaganna. Hann bendir á að þau séu mörg hluti af stórum keðjum sem hafi tilkynnt um frystingu matvælaverðs síðustu daga í þeim tilgangi að hemja verðbólgu en Hagar eiga Olís og Bónus, Festi á N1 og Krónuna. Bæði fyrirtæki tilkynntu um verðfrystingu til áramóta. Runólfur bendir á að það hafi ekki að sama verið tilkynnt hvað varðar olíuverðið og álagningin hafi hækkað. Hann telur að álagning olíufélaganna á hvern lítra sé um 50 til 60 krónur og bendir á að til dæmis hafi nýlega verið greint frá 800 milljóna hagnaði Atlantsolíu en greint var frá methagnaði félagsins í Viðskiptablaðinu í gær. Þar kom fram að Atlantsolía hagnaðist um 740 milljónir króna í fyrra, samanborið við 651 milljón árið 2024. Runólfur segir meira aðhald varðandi álagningu í dag en áður og vísar til eftirlits sem Samkeppniseftirlitið hefur haft í tengslum við lækkun virðisaukaskatts. Frekar viljað sjá lækkun kolefnisgjalds Spurður um mögulegar aðgerðir stjórnvalda segir Runólfur að tímabundin lækkun virðisauka hafi verið jákvætt skref. Það hafi staðið vonir til þess að heimsmarkaðsverð myndi lækka á þessum tíma sem lækkunin var í gildi en staðan sé þannig að heimsmarkaðsverð sé hærra í dag en það var þegar virðisaukinn var lækkaður. Runólfur segir að FÍB hefði frekar viljað sjá kolefnisgjaldið tekið niður. Það hafi hækkað hressilega, eða um 80 prósent á tveimur árum, og í löndum í kring sé verið að lækka álögur til að hjálpa fólki. Runólfur bendir á að hærra olíuverð hafi ekki bara áhrif á það hvað það kostar fyrir almenning að fara á milli staða heldur sé allt vöruverð háð olíuverði vegna flutnings. „Þetta skilar sér út í hilluverð í verslunum og í auknum kostnaði við flutninga. Það er til mikils að vinna að reyna að draga úr þessum kostnaði,“ segir hann. Vilja þak á álagningu Hann segir FÍB vilja að þak sé sett á álagningu olíufélaga. Það sé fákeppni á Íslandi og það sé ekki eðlileg samkeppni við þær aðstæður. Hann segir Samtök atvinnulífsins mótfallna þessu en hann segist ekki geta séð að það sé eitthvað annað ástand hér en í Belgíu, Þýskalandi eða Danmörku. Runólfur telur æskilegt að, nú þegar útlit er fyrir að kjarasamningar losni, að olíufyrirtækin lækki sína álagningu og stjórnvöld virðisaukaskattinn sömuleiðis. „Þessi fyrirtæki hafa komið fram undir öðrum deildum og sagt við erum að geta þetta því við viljum gera samfélaginu gott,“ segir hann og að nú sé tækifæri til að stíga sams konar skref í þágu samfélagsins hvað varðar olíuverð.
Bensín og olía Kjaramál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bítið Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Skattar, tollar og gjöld Orkumál Fjármál heimilisins Verðlag Samkeppnismál Tengdar fréttir Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Verðbólga mældist 5,9 prósent í september og hefur ekki verið meiri í rúm tvö ár. Una Jónsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir hækkað eldsneytisverð skýra nær alla aukninguna frá ágúst. Hún býst við að verðbólgan haldist yfir fimm prósentum næstu mánuði. 29. september 2026 12:01 Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Flæði olíuafurða frá Mið-Austurlöndum og um Hormússund er nærri því sem það var áður en stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran hófst í febrúar. Klerkastjórnin í Íran virðist vera að missa tökin á sundinu og þar með getuna til að beita efnahagslegum þrýstingi á Bandaríkjamenn, á sama tíma og herkví Bandaríkjanna gegn Íran hefur leitt til þess að Íran flytur varla dropa af olíu eða jarðgasi úr landi. 29. september 2026 09:58 „Ég hafna samningi þeirra“ Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur staðfest að hann hafi hafnað tillögu Írana sem fólst í því að opnað yrði fyrir umferð flutningaskipa um Hormússund á ný. Hann segir tillöguna „óásættanlega“. 26. september 2026 21:30 Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Sjá meira
Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Verðbólga mældist 5,9 prósent í september og hefur ekki verið meiri í rúm tvö ár. Una Jónsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir hækkað eldsneytisverð skýra nær alla aukninguna frá ágúst. Hún býst við að verðbólgan haldist yfir fimm prósentum næstu mánuði. 29. september 2026 12:01
Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Flæði olíuafurða frá Mið-Austurlöndum og um Hormússund er nærri því sem það var áður en stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran hófst í febrúar. Klerkastjórnin í Íran virðist vera að missa tökin á sundinu og þar með getuna til að beita efnahagslegum þrýstingi á Bandaríkjamenn, á sama tíma og herkví Bandaríkjanna gegn Íran hefur leitt til þess að Íran flytur varla dropa af olíu eða jarðgasi úr landi. 29. september 2026 09:58
„Ég hafna samningi þeirra“ Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur staðfest að hann hafi hafnað tillögu Írana sem fólst í því að opnað yrði fyrir umferð flutningaskipa um Hormússund á ný. Hann segir tillöguna „óásættanlega“. 26. september 2026 21:30