Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar 4. október 2026 14:01 Ég á barn í 10. bekk. Ég er líka kennari og hef fylgst með breytingum á námsmati frá báðum sjónarhornum. Námsmat þarf að byggjast á skýrum forsendum og veita nemendum og foreldrum gagnlega leiðsögn. Sem foreldri þarf ég að skilja upplýsingarnar frá skólanum til að geta stutt barnið mitt, en eftir fyrsta námsmat skólaársins sit ég uppi með fleiri spurningar en svör. Fyrir helgi fékk sonur minn námsmat úr fyrstu lotu skólaársins í Mentor. Þar birtust tölur sem ég skildi ekki. Voru þær hlutfall réttra svara á prófi eða mat á hæfni samkvæmt nýjum kvarða? Hverju hafði hann náð tökum á og hvað þurfti hann að æfa betur? Hann var engu nær en ég og sagðist vilja fá hæfniviðmiðin aftur svo hann gæti séð hvað hann gæti bætt og hvar hann þyrfti að leggja meira á sig. Þarna er nemandi á lokaári grunnskólans sem vill taka ábyrgð á eigin námi, en finnur ekki í niðurstöðunum leiðsögn sem hann skilur. Fyrir ári síðan höfðum við betri yfirsýn. Námsmatið sýndi stöðu hans gagnvart einstökum hæfniviðmiðum: hvað þurfti að þjálfa, hvaða hæfni hann hafði náð og hvar hann stóð sérstaklega vel. Við gátum sest með honum og unnið markvisst með bæði það sem þurfti að bæta sem og hans styrkleika, og hann sá sjálfur að hverju hann ætti að stefna. Þess vegna staldraði ég við þegar Þorsteinn Mar kennari lýsti því í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 í vikunni að orðið „upplýsingamengun“ væri notað á kynningarfundum fyrir kennara um hæfniviðmið sem birtist foreldrum. Samkvæmt frásögn hans væri verið að draga úr þeirri sýn til að auðvelda foreldrum að átta sig á stöðu barnsins. Bæði sem kennari og foreldri er ég sammála því að hæfniviðmiðin geti verið of mörg og að bæta megi framsetningu þeirra. En þau hjálpuðu okkur að styðja barnið okkar í námi. Ef hvorki nemandinn né foreldrar hans skilja niðurstöðurnar hefur einföldunin ekki náð tilgangi sínum. Samhliða þessu fengum við boð frá skólanum á kynningu á námsmatskerfinu í nóvember. Ég fagna kynningunni, en við þurfum að skilja niðurstöðurnar núna og geta brugðist strax við ef eitthvað þarfnast þjálfunar. Í nóvember verða um það bil þrír mánuðir liðnir af skólaárinu. Þetta er ekki gagnrýni á skólann eða kennarana. Þau eru sjálf að læra á breytt fyrirkomulag og innleiða það samhliða daglegu skólastarfi. Sú staða veldur mér áhyggjum. Ragnheiður Stephensen kennari hefur lýst því að breytingin sé framkvæmd „í beinni útsendingu“. Hún telur að nær hefði verið að halda kerfinu óbreyttu í vetur og nýta tímann til undirbúnings fyrir næsta haust. Ég tek undir það. Skólar þurfa að geta undirbúið breytingar á námsmati áður en nemendur og foreldrar þurfa að treysta á niðurstöðurnar. Það er ekki endilega nýr tölukvarði sem truflar mig mest, heldur hraði innleiðingarinnar og óvissan sem fylgir. Breyting á birtingarmynd einkunna hefur áhrif á samskipti heimila og skóla, skilning nemenda á eigin stöðu og möguleika þeirra til að bregðast við. Kennarar þurfa skýrar leiðbeiningar og svigrúm til að samræma vinnubrögð, kerfin þurfa að birta upplýsingarnar með skiljanlegum hætti og nemendur og foreldrar þurfa kynningu áður en þeir nýta matið en ekki eftir á. Ábyrgðin á þessum forsendum liggur hjá mennta- og barnamálaráðherra og ráðuneytinu. Mér hefði þótt eðlilegt að nýta þetta skólaár til undirbúnings og innleiða breytingarnar á því næsta. Þess í stað líður mér eins og sonur minn og jafnaldrar hans séu tilraunahópur á meðan enn er verið að skýra framkvæmdina. Sú tilfinning er ekki góð. Við getum ekki beðið fram eftir vetri eftir að skilja hvað þurfi að bæta og hvernig. Ég kalla eftir því að stjórnvöld endurskoði hraða innleiðingarinnar og tryggi nemendum skýrar og gagnlegar upplýsingar um eigið nám. Það má breyta framsetningu námsmats og einkunnakvarða, en leiðsögnin verður að skila sér. Sonur minn vill vita hvað hann getur bætt og hvar hann getur lagt meira á sig. Hann þarf svör við því núna. Hann er í 10. bekk. Hann fær ekki þetta skólaár aftur þegar kerfið er orðið skýrara. Móðir nemanda í 10.bekk og kennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Grunnskólar Börn og uppeldi Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar