Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Slippfélagið 5. október 2026 10:06 Mæðgurnar Auður Skúladóttir og Fanný Heiða Hjartardóttir eiga og reka saman Kalkliti. Þær munu taka á móti gestum í Slippfélaginu í Skútuvogi föstudaginn 9. október. Mæðgurnar Auður Skúladóttir og Fanný Heiða Hjartardóttir, sem eiga og reka Kalkliti, verða í Slippfélaginu í Skútuvogi föstudaginn 9. október milli kl. 14 og 18. Þar ætla þær að taka á móti gestum, veita litaráðgjöf, sýna Kalkliti og svara spurningum um allt frá litavali og undirbúningi til framkvæmdarinnar sjálfrar.
Þær hvetja fólk sem er með verkefni í huga, stórt eða smátt, til að nýta tækifærið og koma við. Þar gefst gestum kostur á að ræða hugmyndir sínar við mæðgurnar, fá ráðleggingar um hvaða litir gætu hentað rýminu og fræðast um hvernig best sé að bera sig að við kalkmálun. „Það er alltaf mjög gagnlegt að hafa með sér myndir af rýminu. Við mælum líka gjarnan með að velja tvo til þrjá litatóna og taka sýnishorn með heim, því litirnir sjást alltaf best í birtunni og umhverfinu þar sem á að nota þá,“ segir Fanný. Þær mæðgur ættu að hafa úr nógu að moða þegar kemur að ráðleggingum um kalkmálningu. Kalklitir eiga sér tuttugu ára sögu, vörurnar eru seldar víða um heim og fyrirtækið hefur komið að verkefnum allt frá nútímalegum íbúðum í Asíu til gamalla halla í Frakklandi. Sjálfar reka þær fyrirtækið frá Belgíu, þar sem þær hafa komið sér fyrir í umhverfi sem fellur vel að fagurheimi Kalklita. Hugmyndin kviknaði á Akureyri Saga Kalklita hófst þó ekki í Belgíu heldur á Akureyri árið 2006. Framleiðslan hófst tveimur árum síðar en áhugi Auðar á kalki og náttúrulegum efnum nær mun lengra aftur. Fyrir um þrjátíu árum nam hún skreytilist og gamla málningartækni í Danmörku. Þar kynntist hún kalkmálningu sem þá var meðal annars blönduð með dýralími og notuð á veggi og loft. „Ég heillaðist strax af þessu matta og náttúrulega efni,“ segir Auður. Áhuginn jókst enn frekar árið 2003 þegar hún tók þátt í endurgerð á gömlu húsi í Amsterdam. Þar voru eingöngu notuð náttúruleg efni á borð við leir og kalk. „Þar opnuðust augu mín enn frekar fyrir frábærum eiginleikum þessara efna. Síðan þá hefur þetta verið mín ástríða og fjölskyldan hefur svo hrifist með.“ Í dag eru Kalklitir fjölskyldufyrirtæki og fleiri fjölskyldumeðlimir koma að rekstrinum. Auður og Fanný hafa sjálfar unnið saman í tæpan áratug og segja samstarfið ganga einstaklega vel. Þær eru líkar þegar kemur að smekk, stíl og áhugamálum en bakgrunnur þeirra er ólíkur. Á meðan Auður kemur úr skreytilist og gamalli málningartækni er Fanný með meistaragráður í evrópskum viðskiptarétti og stjórnun. „Við erum búnar að vinna saman í næstum tíu ár og okkur þykir ekkert betra,“ segir Fanný. Belgísk áhrif mæta norrænum léttleika Belgía hefur reynst góður staður fyrir alþjóðlegt fyrirtæki á borð við Kalkliti, enda liggur landið vel við þegar kemur að útflutningi. Kalklitir eru nú sendir þaðan til viðskiptavina víða um heim. En áhrif Belgíu eru ekki eingöngu praktísk. Þau má einnig sjá í fagurfræði fyrirtækisins. Belgísk innanhússhönnun er gjarnan tengd náttúrulegum efnum, hráum viði, blásteini, hör og antík. Auður hefur auk þess verið mikill aðdáandi belgíska innanhússhönnuðarins Axel Vervoordt í meira en þrjátíu ár. „Þessi áhrif blandast svo við okkar léttari norræna stíl. Við sækjum líka mikinn innblástur til Frakklands og höfum alltaf haft gaman af því að heimsækja antíkmarkaði og skoða gamlar byggingar,“ segir Auður. Þessi blanda af gömlu og nýju, hráu og fáguðu, norrænu og suðrænu hefur orðið hluti af þeim auðþekkjanlega fagurheimi sem umlykur Kalkliti. Frá upphafi hefur hugmyndafræðin meðal annars snúist um að gera fólki kleift að skapa falleg rými með náttúrulegri málningu án þess að verkefnið þurfi að vera flókið. Kalkmálning Kalklita er framleidd og seld í duftformi og það var meðvituð ákvörðun frá upphafi. „Auður sá strax fyrir sér að konur, sem eru vanar að vinna með hráefni í duftformi, til dæmis í bakstri, myndu ekki upplifa þetta sem fyrirstöðu heldur einfaldan og eðlilegan hluta af ferlinu,“ segir Fanný. Duftformið hefur einnig þann kost að ekki þarf að flytja vatn á milli landa. Fyrirtækið hlaut nýverið EU Ecolabel-vottun Evrópusambandsins, sem mæðgurnar segja falla vel að þeirri stefnu sem fylgt hefur verið frá upphafi. Veggur sem breytist með birtunni En hvað er það við kalkmálninguna sem hefur gert hana svona vinsæla? Að sögn mæðgnanna liggur svarið ekki síst í yfirborðinu. Kalkmálaður veggur er ekki fullkomlega einsleitur. Hann er mattur, lifandi og breytist eftir því hvernig birtan fellur á hann. „Þar sem litirnir eru sóttir úr náttúrunni eru þeir kunnuglegir fyrir augað og falla mjög vel að öðru í rýminu. Þeir eiga auðvelt með að vinna með gólfefnum, húsgögnum, textíl og öðrum efnum í umhverfinu,“ segir Auður. Þegar sami litur er notaður á bæði veggi og loft getur útkoman orðið enn sterkari. „Þá færist ákveðin ró yfir rýmið. Litaflæðið verður heildstætt og mjúkt og yfirborðið fær meiri dýpt og karakter. Það skapar hlýlegt, rólegt og afslappandi andrúmsloft.“ Og sá sem vill fullkomlega einsleitan vegg er kannski einmitt að missa af því sem gerir kalkið sérstakt. Kalkmálning er handmáluð með bursta og engin pensilstroka verður nákvæmlega eins og sú næsta. Birtan leikur svo við áferðina yfir daginn. „Með tímanum fær yfirborðið enn meiri karakter og okkur finnst það einmitt hluti af fullkomnuninni,“ segir Fanný. Frá Singapore til gamallar hallar í Frakklandi Kalkmálning er stundum tengd við ákveðinn hráan eða minimalískan stíl en mæðgurnar segja notkunarmöguleikana mun fjölbreyttari. „Við sjáum kalkmálninguna okkar notaða í mjög ólíkum rýmum, allt frá glænýrri og nútímalegri íbúð í Singapore yfir í gamla höll í Frakklandi. Það sýnir vel hversu fjölbreytileg hún getur verið,“ segir Auður. Litavalið skiptir þar miklu og birtan getur gjörbreytt því hvernig sami liturinn upplifist. Kalkmálaður veggur getur tekið á sig einn blæ í morgunsólinni og annan í kvöldbirtunni. Það sem fyrir er í rýminu skiptir líka máli. Grátt gólfefni getur til dæmis dregið fram kaldari tóna í drapplituðum vegg. Undanfarin ár hafa ljósir og mjúkir tónar verið sérstaklega vinsælir. „Það hefur klárlega verið ákveðin beige-sveifla um allan heim. Við sjáum mikið af mjög ljósum, mjúkum tónum og oft er sami litur valinn á bæði veggi og loft,“ segir Fanný. Fólk virðist jafnframt sækja minna í miklar andstæður en áður og velja frekar fáa tóna úr sömu litapallettu. Það þarf þó ekki að byrja á heilu rými. Einn kalkmálaður veggur getur breytt stemningunni verulega. „Margir byrja á einum vegg. Svo gerist það oft að fólk verður hrifið af áferðinni og endar á að kalkmála fleiri veggi eða jafnvel loftið líka,“ segir Auður. Dökkur kalkmálaður veggur getur gefið rými aukna dýpt og karakter en ljósari tónn á veggjum og lofti getur skapað rólegra og heildstæðara yfirbragð. Ekki bara fyrir stofuvegginn Kalkið má líka nota á fleiri staði en margir gera sér grein fyrir. Mæðgurnar nefna sérstaklega votrými. Kalkmálning er basísk og með hátt pH-gildi, sem gerir yfirborðið óhagstætt fyrir myglu. Málningin er jafnframt opin og leyfir veggjunum að anda. Svo má færa leikinn yfir á smærri hluti. „Það er mjög skemmtilegt að nota kalkmálningu á húsgögn, myndaramma, blómapotta og ýmsa skrautmuni. Við höfum sjálfar gefið bæði gömlum og nýjum hlutum breytt og nýtt útlit með kalkmálningu,“ segir Fanný. Þar skiptir undirbúningurinn þó miklu máli. Treystu ferlinu Þeir sem hafa eytt dágóðum tíma í að skoða kalkmálaða veggi á Pinterest og Instagram þekkja eflaust tilfinninguna: Þetta er afskaplega fallegt en ég get örugglega ekki gert þetta sjálf. Mæðgurnar segja það algengan misskilning. „Þetta er einfaldara en flestir halda. Kalkduftinu er einfaldlega blandað saman við vatn og málningin síðan borin á með bursta,“ segir Auður. Þær mæla með tveimur umferðum og mikilvægt er að klára allan flötinn í einu. Algengustu mistök byrjenda eru einmitt að fara aftur yfir litla bletti eftir að málningin er farin að þorna. Ný pensilstroka á hálfþurru yfirborði getur þornað öðruvísi og orðið ljósari en svæðið í kring. Best er því að vinna samfellt og standast freistinguna að fara aftur og laga það sem augað telur ófullkomið á meðan verkið er enn í vinnslu. Og svo þarf smá þolinmæði. „Treystu ferlinu!“ segir Fanný. „Kalkmálningin er töluvert dekkri þegar hún er blaut en hún þornar í sinn rétta lit. Það er líka mikill munur á fyrstu og annarri umferð. Ekki dæma útkomuna fyrr en báðar umferðirnar eru komnar á og veggurinn er orðinn alveg þurr.“ Það má heldur ekki ofhugsa pensilstrokurnar. „Það er í raun engin ein rétt eða röng leið. Við sjáum oft mjög frjálslegar málningaraðferðir sem koma mjög vel út,“ segir Auður. Þeir sem vilja hins vegar fara „eftir bókinni“ geta málað upp og niður eða notað svokallaða kriss-kross-aðferð, sem er vinsæl leið til að ná fram einkennandi áferð. H&M Home, Husdrömmar og villa í Taívan Á tveimur áratugum hafa Kalklitir ratað inn í ótal verkefni víða um heim. Mæðgurnar eiga erfitt með að velja eitt uppáhaldsverkefni en eitt af stóru augnablikunum var þegar H&M Home valdi Kalkliti til kynningar þegar fyrirtækið opnaði concept-verslanir sínar í helstu borgum Evrópu. Þær hafa einnig unnið með sænska hönnuðinum Marie Olsson Nylander, sem margir Íslendingar þekkja úr þáttunum Husdrömmar. Kalklitir hafa meðal annars þróað sérblandaða liti fyrir hönnunarverkefni hennar og eigið heimili í Svíþjóð. Eitt nýjasta stóra verkefnið er svo einkavilla í miðhluta Taívans, skammt frá Sun Moon Lake, unnin í samstarfi við þekkta arkitektastofu. Reyndar hefur velgengni Kalklita í Asíu komið mæðgunum nokkuð á óvart. „Við hefðum ekki endilega séð fyrir okkur í upphafi hversu vel vörumerkið og þessi náttúrulega áferð myndu falla að ólíkum menningarheimum og innanhússtílum þar,“ segir Fanný. Í dag fást Kalklitir meðal annars í Suður-Kóreu, Singapúr, Taívan, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Japan. Þrátt fyrir útrásina er sérstök ánægja með að vörurnar séu aftur fáanlegar hér á landi. „Okkur þykir sérstaklega vænt um samstarfið við Slippfélagið og að geta nú aftur boðið Kalkliti á Íslandi eftir nokkurra ára fjarveru,“ segir Auður. Kaffibolli, hvítvínsglas og pensill Draumarými Auðar er þegar nokkuð skýrt í huganum. Þar eru veggir, loft og jafnvel gólf kalkmáluð og áferðin fær að njóta sín til fulls. Raunar segjast þær þegar komnar býsna nálægt draumnum í Belgíu. Vinnurými og skrifstofur fyrirtækisins eru á neðri hæð hússins en heimili Auðar og Hjartar á þeirri efri. „En það er enginn skortur á nýjum hugmyndum og draumum hér á bæ,“ segir Fanný. Og kannski er það einmitt boðskapurinn sem þær vilja koma til fólks þegar þær mæta í Slippfélagið í Skútuvogi föstudaginn 9. október milli kl. 14 og 18. Komdu með mynd af rýminu, fáðu ráðleggingar, skoðaðu liti og áferð og taktu jafnvel nokkur sýnishorn með heim. Þar geturðu séð hvernig liturinn bregst við birtunni, gólfinu, húsgögnunum og öllu því sem fyrir er. Og ef eina hindrunin er óttinn við að taka fyrstu pensilstrokuna? Þá er ráð mæðgnanna einfalt. „Kýldu á það! Ekki ofhugsa þetta. Veldu lit sem þú elskar, fáðu þér kaffibolla eða hvítvínsglas og skelltu þér í gang. Sjón er sögu ríkari.“ Kalkmálun í nokkrum skrefum 1. Undirbúðu rýmið: Hvað þarf að þrífa, verja, teipa og laga? Mikilvægt er að veggurinn sé hreinn og laus við fitu og óhreinindi. Færið húsgögn að minnsta kosti einn metra frá veggnum og teipið þar sem þess er þörf. Fyllið í naglagöt og sprungur áður en hafist er handa. Gott er að verja gólfið með málningarteppi eða sambærilegri vörn, þó kalkmálning sé auðveld að þrífa af gólfi með blautum klút á meðan hún er enn fersk. 2. Undirbúðu vegginn: Hvernig á undirlagið að vera og hvenær þarf grunn? Ef veggurinn er hreinn og málaður með venjulegri vatnsbaseraðri málningu er yfirleitt hægt að kalkmála beint yfir hann, óháð því hvaða litur er undir. Ef spartla þarf í göt eða sprungur skal gera það fyrst og leyfa spartlinu að þorna vel. Ef veggurinn hefur verið spartlaður að hluta mælum við með einni umferð af vatnsbaseruðum grunni frá Slippfélaginu yfir allan flötinn áður en kalkmálað er. Þannig verður upptaka undirlagsins jafnari og endanleg áferð fallegri. 3. Undirbúðu kalkið: Þarf að hræra? Hversu mikið? Eitthvað sem þarf sérstaklega að passa? Setjið fyrst 1,7 lítra af vatni í fötu. Bætið síðan kalkduftinu hægt og rólega út í vatnið og hrærið vel, annaðhvort með handpísk eða handhrærivél. Gott er að hræra í um 10 mínútur, eða þar til blandan er alveg kekkjalaus. Hrærið síðan reglulega í fötunni á meðan málað er. 4. Fyrsta umferð: Hvaða pensill er notaður og hvernig eiga strokurnar að liggja? Við mælum með penslunum frá Kalklitum sem fást í Slippfélaginu. Þeir eru framleiddir sérstaklega fyrir okkur á Ítalíu og eru með extra löng hár sem hjálpa til við að skapa fallega og lifandi áferð. Hægt er að vinna með mismunandi tækni, en við mælum helst með annaðhvort upp-og-niður strokum eða frjálsri kriss-kross aðferð. 5. Leyfðu efninu að vinna: Hvað tekur fyrsta umferðin langan tíma að þorna og hvað á fólk ekki að gera á meðan? Fyrsta umferðin þornar yfirleitt á um 3–5 klukkustundum, eftir hita og aðstæðum í rýminu. Gott er að líta á fyrstu umferðina sem grunn að þeirri seinni, því það er eftir seinni umferðina sem endanleg áferð og dýpt fara virkilega að koma í ljós. Mikilvægt er að klára allan vegginn í einu og gera ekki hlé á miðjum fleti. Þegar kalkmálningin er farin að þorna skal forðast að fara aftur yfir einstaka bletti. Leyfið henni frekar að þorna alveg. Treystið ferlinu og njótið þess að sjá litinn breytast þegar hann þornar. 6. Önnur umferð: Hvernig byggjum við upp þessa einkennandi kalkáferð? Tvær umferðir gera mjög mikinn mun. Eftir seinni umferðina koma dýptin, skuggarnir og litbrigðin mun betur í ljós og þessi einkennandi kalkáferð fær að njóta sín. Það skemmtilega við Kalkliti er að hægt er að mála aftur og aftur yfir sama flötinn. Í stúdíóinu okkar eru til dæmis veggir sem hafa fengið að minnsta kosti tólf lög af mismunandi litum í gegnum árin. 7. Lokafrágangur: Hvenær er veggurinn tilbúinn? Þarf vörn eða yfirborðsmeðferð og í hvaða rýmum? Þegar seinni umferðin hefur þornað er flöturinn í sjálfu sér tilbúinn. Kalkmálningin heldur þó áfram að harðna eftir á og því er gott að fara varlega með yfirborðið fyrstu dagana og forðast sérstaklega vatn og mikla snertingu. Kalkmálningin er Voc-free, lyktarlaus og fljót að þorna. Við þornun gufar eingöngu vatn upp, þannig að það er til dæmis hægt að kalkmála svefnherbergi yfir daginn og sofa þar um kvöldið. Ef þörf er á meiri vörn er hægt að bera Top Coat frá Kalklitum yfir kalkmálninguna. Það getur hentað vel á álagssvæðum, til dæmis í eldhúsi, á gangi eða öðrum stöðum þar sem meiri hætta er á blettum. Top Coat er matt yfirborðsefni og hægt er að bera á 1–3 mjög þunnar umferðir eftir þörfum. 8. Umhirða: Hvernig þrífum við kalkmálaðan vegg og hvað gerum við ef hann rispast eða blettast? Kalkmálning frá Kalklitum er unnin úr náttúrulegum hráefnum og inniheldur ekki plastbindiefni sem mynda filmu á yfirborðinu. Því er ekki hægt að þrífa óvarinn kalkmálaðan vegg með blautum klút og sápu. Á svæðum þar sem meiri vörn er nauðsynleg er hægt að nota Top Coat. Fyrir þá sem vilja halda yfirborðinu óvörðu og eins náttúrulegu og mögulegt er — eins og við sjálf kjósum yfirleitt — er alltaf hægt að fríska upp á vegginn síðar með nýrri umferð af kalkmálningu. Smávægilegar rispur eru oft hægt að laga með litlum pensli og örfáum strokum. Ef um fitu- eða olíubletti er að ræða þarf yfirleitt meiri viðgerð: pússa blettinn létt með fínum sandpappír, setja vatnsbaseraðan grunn yfir svæðið og kalkmála síðan aftur. Á ljósum litum og mjög litlum blettum getur stundum verið nóg að laga aðeins viðkomandi svæði, en annars gefur oft bestan árangur að setja eina ferska umferð yfir allan flötinn.
Hús og heimili Mest lesið Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Lífið Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Lífið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Áskorun Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Fundu hvora aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Fleiri fréttir Húðin breytist með aldrinum Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Sjá meira