„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks, Eydís Sara Óskarsdóttir, Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir, Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir og Emma Rivard Henriot skrifa 29. september 2026 11:32 Til þjálfara, kennara og skólastarfsfólks sem vinna með ungu fólki. Jú, eflaust er hún á túr. En það er ekkert „bara”. Ef þú kennir, þjálfar eða starfar með ungu fólki þekkir þú hana örugglega. Stúlkuna sem mætir ekki í sund og íþróttir allavega 1-2x í mánuði. Sem hættir smám saman að mæta reglulega. Sem dregur sig hljóðlega út úr félagslífinu… Þú gætir líka kannast við stúlkuna sem sýnir ekki regluleg einkenni en biður oft um auka dömubindi, eða lendir ítrekað í því að það blæði í gegnum allt. Sem er tíður gestur hjá skólahjúkrunarfræðingnum. Sem kvartar sáran undan verkjum og verkirnir jafnvel farnir að hafa veruleg áhrif á skólasókn og daglegt líf. Við þekkjum þessar stúlkur vel - þær eru með endó. Það sem margir sjá sem stúlku sem „nennir ekki“, er „löt“ eða „alltaf lasin“ þá getur það í raun verið eitthvað allt annað - t.d. endómetríósa. Endómetríósa getur haft gríðarleg áhrif á líf ungra einstaklinga sem eru með sjúkdóminn, hvort sem formleg greining liggur fyrir eða ekki. Þú ert í einstakri stöðu. Þú sérð þessar stúlkur í hverri viku, ár eftir ár. Þú tekur eftir mætingu þeirra, orkustigi, félagslegri þátttöku og breytingum sem foreldrar sjá kannski ekki jafn skýrt heima fyrir. Nákvæmlega eins og þú ert vakandi fyrir einkennum lesblindu eða ADHD, viljum við í stjórn Endósamtakanna biðja þig um að hafa líka augun opin fyrir stúlkum og kvárum sem detta ítrekað út vegna verkja eða annarra einkenna endómetríósu. Því fyrr sem endómetríósa greinist, því betra verður líf viðkomandi. Og oft ert það þú sem tekur fyrst eftir mynstrinu. Endómetríósa, oft kallað „endó” í daglegu tali (ATH: ekki er lengur notast við hugtakið legslímuflakk), er krónískur, fjölkerfa og fjölgena sjúkdómur sem veldur mismiklum einkennum og hefur mismikil áhrif á daglegt líf fólks með sjúkdóminn. Endómetríósa leggst á 1 af hverjum 10 einstaklingum sem fæðast með kvenlíffæri. Það þýðir að í hverjum einasta bekk, og hverju einasta liði, eru líklega stúlkur eða kvár sem glíma við sjúkdóminn. Sjúkdómurinn lýsir sér þannig að endómetríósufrumur setjast á yfirborðsþekju á hinum ýmsu líffærum, bregðast við mánaðarlegum hormónabreytingum líkamans og valda þar bólgum. Þannig getur einstaklingur með endómetríósu verið með innvortis blæðingar í hverjum mánuði á þeim stöðum sem frumurnar eru. Þar sem þetta blóð kemst ekki í burtu geta myndast blöðrur á þessum stöðum. Einnig geta myndast samgróningar milli líffæra og innan kviðarholsins eða annarsstaðar í líkamanum. Allt getur þetta valdið miklum sársauka - sársauka sem er raunverulegur, líffræðilegur og oft ósýnilegur utanfrá. Einkenni sjúkdómsins sem vert er að þekkja: Endómetríósa getur birst á marga vegu, og ekki eru allir með öll sömu einkennin: Sársauki Í kviðarholi, oft mikill við blæðingar Fyrir blæðingar og við egglos Óeðlilegar blæðingar Langar, miklar eða óreglulegar blæðingar Brún útferð fyrir og eftir blæðingar Milliblæðingar Verkir sem geta leitt víðar Í mjóbaki eða niður eftir fæti, í tengslum við blæðingar eða egglos Í kviðarholi milli blæðinga Við eða eftir kynlíf Tengdir þvagblöðru, ristli eða þörmum Yfirlið Frá meltingarvegi Hægðatregða niðurgangur uppþemba ógleði eða uppköst Andleg einkenni Síþreyta Heilaþoka Erfiðleikar með einbeitingu vegna verkja Viðkvæmar fyrir áreiti Virðast bera tilfinningarnar utan á sér Sum eru einkennalítil eða einkennalaus og greinast fyrst þegar önnur heilsufarsvandamál koma upp. Því er aðkoma ykkar og vitund um sjúkdóminn þeim mun mikilvægari til að stuðla að snemmgreiningu. Einstaklingar á yngsta stigi geta verið farin að sýna einkenni um endó. Verum styðjandi og opnum gjarnan á umræðuna við barnið sjálft og foreldra. Með því einu að taka eftir, sýna skilning, og hvetja barnið og fjölskyldu þess til að leita svara, getur þú lagt grunn að því að barnið fái rétta greiningu og hjálp mun fyrr en ella og líklegra að hægt sé að halda sjúkdómnum í skefjum svo hann valdi síður varanlegum skaða. Sá sem heyrir „þér er trúað“ strax á unga aldri fær allt annað upphaf að lífi með þennan sjúkdóm en sá sem heyrir að hann sé bara að ýkja eða gera sér þetta upp. Endósamtökin hafa undanfarið ár frætt grunn- og menntaskólanemendur um endómetríósu. Okkar stærsti draumur er að ná til allra grunn- og framhaldsskóla á landinu með fræðslu. Samtökin eru til staðar fyrir þig og þinn vinnustað, og það er alltaf velkomið að hafa samband við okkur, hvort sem þú ert í leit að stuðningi eða vilt fá fræðslu um sjúkdóminn - við erum hér. Það getur verið erfitt að greina á milli þess sem er eðlilegt og þess sem er “nógu slæmt”. Ef eitthvað er að valda einstaklingi truflunum í daglegu lífi þá er mikilvægt að tala um það. Takk fyrir að vera vakandi. Höfundar eru í stjórn Endósamtakanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kvenheilsa Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skoðun Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun