Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 24. september 2026 21:11 Haukar unnu dramatískan sigur gegn FH í kvöld. Vísir/Diego Montrétturinn í Hafnarfirði er Haukamegin eftir að liðið vann dramatískan eins marks sigur gegn nágrönnum sínum í FH í Karplakrika í kvöld, 34-35. Hafnarfjarðarslagur svíkur yfirleitt engan og sú varð raunin í kvöld. Bæði lið skoruðu nóg af mörkum og Hafnarfjarðarhitinn var ekki langt undan. Gestirnir í Haukum virtust hálfu skrefi á undan framan af fyrri hálfleik og náðu þriggja marka forskoti í stöðunni 4-7 eftir um tíu mínútna leik. FH-ingar minnkuðu muninn strax í næstu sókn, en út frá því brutust út mikil læti. Hafnarfjarðarslagurinn bauð upp á læti eins og svo oft áður.Vísir/Diego Ómari Darra Sigurgeirssyni var skellt í gólfið í skotinu sem söng í netinu og í kjölfarið brutust út stimpingar sem enduðu með því að Brynjar Narfi Arndal fékk tveggja mínútna brottvísun í liði FH og Darri Aronsson var rekinn af velli með beint rautt spjald í liði Hauka. Blóðtaka fyrir gestina. Haukarnir létu brottrekstur Darra þó ekki á sig fá og héldu áfram að leiða leikinn. Liðið náði mest fimm marka forskoti þegar um tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik en þá náðu FH-ingar vopnum sínum á ný og minnkuðu muninn jafnt og þétt. Ekki tókst FH-ingum þó að jafna metin fyrir hlé og Haukar leiddu með tveimur mörkum í hálfleik, staðan 18-20. Í síðari hálfleik héldu Haukar forystunni stærstan hlutann. FH-ingar skoruðu reyndar fyrstu tvö mörkin eftir hlé og jöfnuðu metin, en Haukar náðu fljótt yfirhöndinni á ný. Jafnt og þétt byggðu gestirnir upp gott forskot og náðu fimm marka forystu í stöðunni 21-26. Mestur varð munurinn sjö mörk í stöðunni 22-29 og aftur í 23-30. Vísir/Diego FH-ingar reyndu hvað þeir gátu að bíta frá sér, en þegar Haukar náðu fimm marka forskoti á ný þegar um fjórar mínútur voru til leiksloka virtist öll von vera úti fyrir heimamenn. Þá hins vegar lifnaði heldur betur yfir FH-ingum sem skoruðu hvert markið á fætur öðru á meðan Haukarnir virtust verða minni. Ágúst Guðmundsson minnkaði muninn niður í eitt mark þegar slétt mínúta var eftir og Haukar náðu ekki að nýta sína síðustu sókn í leiknum. FH-ngar fengu því einn lokaséns til að jafna metin þegar liðið fór í sókn með tíu sekúndur á klukkunni. Heimamenn galopnuðu vörn Hauka fyrir Ómar Darra Sigurgeirsson, en Grétar Ari Guðjónsson kom á mikilli siglingu út úr marki Hauka og varði skot hans rétt áður en lokaflautið gall. Ómar Darri Sigurgeirsson var hársbreidd frá því að tryggja FH-ingum stig.Vísir/Diego Niðurstaðan því dramatískur eins marks sigur Hauka, 34-35, sem enn eru með fullt hús stiga á toppi deildarinnar þegar fjórum umferðum er lokið. FH-ingar sitja hins vegar í öðru sæti með fimm stig, þremur stigum minna en Haukar. Atvik leiksins Lætin í fyrri hálfleik náðu algjörlega að kjarna þennan Hafnarfjarðarslag. Ómar Darri með gott mark, skellt á herðablöðin í skotinu og út frá því verður mikill hiti í mönnum. Beint rautt spjald og olía á eldinn. Áhorfendur fengu í það minnsta nóg fyrir peninginn. Stjörnur og skúrkar Grétar Ari Guðjónsson stelur fyrirsögnunum í kvöld. Óhætt er að tala um stuld því Grétar átti ekkert sérstakan leik heilt yfir. Markvarslan var lítil í fyrri hálfleik, en eins og alvöru markverði sæmir mætti hann með hausinn rétt skrúfaðan á í seinni hálfleik og varði nokkuð vel áður en hann tryggði sigurinn með risavörslu í lokin. Össur Haraldsson getur einnig borið höfuðið hátt eftir leik kvöldsins. Ellefu mörk úr jafn mörgum skotum fyrir Hauka úr horninu. Í liði FH var Ómar Darri Sigurgeirsson markahæstur með tíu mörk, en hann þurfti hins vegar 19 skottilraunir til að koma þessum tíu boltum inn. Dómararnir Hafnarfjarðarslagur er aldrei auðvelt verkefni fyrir dómara. Bjarki Bóasson og Gunnar Óli Gústafsson komust þó nokkuð vel frá sínu. Undirritaður ætlar ekki að ljúga því að hann hafi séð nákvæmlega hvað átti sér stað í aðdraganda þess að Darri Aronsson fékk beint rautt spjald, en dómararnir virtust vissir í sinni sök. Auðvitað er hægt að pikka út eitt og eitt atriði sem hefði mögulega átt að dæma öðruvísi en var gert, en heilt yfir gerðu þeir félagar vel. Stemning og umgjörð Þessir leikir kalla alltaf á læti og stemningu. Áhorfendur beggja liða létu vel í sér heyra og þeir fengu líka nóg fyrir peninginn í kvöld. Gunnar Magnússon: „Það verður enginn meistari í september“ Gunnar Magnússon fer yfir málin með sínum mönnum í kvöld.Vísir/Diego Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, tók undir það að sigurinn hafi staðið óþarflega tæpt í kvöld. „Já, algjörlega. Mér fannst við töluvert betri aðilinn í kvöld, við leiddum leikinn allan leikinn og vorum með gott forskot þegar lítið var eftir,“ sagði Gunnar í leikslok. „En það er eitthvað með þessa leiki. Þeir leita alltaf í þetta rugl. Við fengum fullt af tækifærum til að halda þessu á góðu róli en vorum klaufar. En á endanum var þetta sigur og tvö stig sem er það sem skiptir öllu máli. En ég hefði auðvitað viljað sleppa þessari spennu í lokin.“ Hann segist ekki hafa svörin við því af hverju hans menn ná ekki að halda FH-ingum í hæfilegri fjarlægð í kvöld. „Ef ég hefði svarið þá hefðum við ekki lent í þessu. Við fengum færi eftir færi eftir færi til að klára þetta en settum ekki þau skot. Þá fer þetta bara upp í þennan dans í lokin. Það gerir þetta kannski bara sætara á endanum, en eins og ég segi þá hefði ég auðvitað bara viljað sleppa þessu. Mér fannst við bara betri aðilinn í kvöld og við áttum að klára þetta fyrr.“ Haukar þurftu að leika án Darra Aronssonar stóran hluta leiksins eftir að hann fékk að líta beint rautt spjald í fyrri hálfleik. Gunnar segist þó ekki geta tjáð sig um hvað gekk á. „Ég var bara að skipta manni inn á og þá sá ég að einhver lá þarna. Ég missti af brotinu. Ég sá þetta ekki en það sem sýndi sig í kvöld var breiddinn. Það komu menn mjög sterkir inn af bekknum og mér fannst breiddin skila þessum sigri. Við fengum mikið framlag frá mjög mörgum leikmönnum. Við höfðum sem betur fer breiddina til að lifa þetta rauða spjald af því við spilum án Darra nánast allan leikinn.“ Þá hélt Gunnar áfram að hrósa sínum mönnum. „Grétar Ari kom sterkur inn í seinni hálfleik og við sjáum í hægri skyttunni að Ólafur og Birkir eru báðir að hjálpa okkur og hornamennirnir báðir frábærir. Svo koma Hjörtur og Hergeir inn af bekknum með mikið framlag. Það sýndi sig ap breiddin er góð.“ Haukar eru nú taplausir eftir fjórar umferðir en Gunnar ætlar ekki að fara fram úr sér. „Við tökum bara einn leik í einu. Það er bara september. Ég er búinn að vera í þessu í yfir tuttugu ár og veit að það verður enginn meistari í september. Ég er bara ánægður með þessi stig. Þau verða ekki tekin af okkur. Svo er ég ánægður með spilamennskuna. Það nóg eftir, en nú er bara aðeins að jafna sig og aðeins að njóta þess að vera búnir að vinna FH. Þetta eru ekki bara tvö stig, þetta er miklu meira en það. Við ætlum aðeins að njóta í kvöld og næstu daga og svo höldum við bara áfram. Mótið er bara rétt að byrja og við vitum það manna best,“ sagði Gunnar að lokum. Olís-deild karla Haukar FH
Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“