Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar 24. september 2026 07:29 Þann 2. september voru liðin 50 ár frá því að Flugfélag Norðurlands hóf flugþjónustu fyrir Sirius-sleðahundasveitina á Grænlandi. Í dag sinnir Norlandair þessum mikilvægu verkefnum, en höfuðstöðvar félagsins eru sem kunnugt er á Akureyri. Á þessum fimm áratugum hefur byggst upp mikil og verðmæt reynsla á Akureyri af flugi við einhverjar erfiðustu aðstæður sem fyrirfinnast, þar sem reynir á ítrustu mörk tækninnar og mannlegrar getu. Flugmenn, flugvirkjar og annað starfsfólk hafa aflað sér sérþekkingar á flugi yfir hafís, fjalllendi, óbyggðir og jökla Grænlands. Slík þekking verður ekki til á einni nóttu. Hún byggist upp með áratuga reynslu, hæfu starfsfólki og fjölbreyttum verkefnum við krefjandi aðstæður. Grænlandsflugið hefur ávallt verið stór hluti af rekstri Norlandair og forvera þess. Uppfærðum varnarsamning fylgja tækifæri Þessi saga fær nú aukið vægi í ljósi nýs samnings Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna sem undirritaður var í New York þann 22. september. Samningurinn gerir ráð fyrir að Bandaríkin auki hernaðarlega viðveru sína á Grænlandi og komi upp nýrri varnaraðstöðu á tveimur stöðum. Annar staðurinn er Narsarsuaq á Suður-Grænlandi. Þar var bandaríska herstöðin Bluie West One reist í síðari heimsstyrjöldinni og gegndi hún mikilvægu hlutverki í flutningum flugvéla milli Norður-Ameríku og Evrópu. Aðstaðan var síðan nýtt áfram inn á fyrstu ár kalda stríðsins. Hinn staðurinn er Meistaravík, eða Mestersvig, á austurströnd Grænlands, norðan við Scoresbysund. Þar er um 1.800 metra löng malarflugbraut og aðstaða sem lengi hefur þjónað dönskum og grænlenskum stjórnvöldum ásamt Sirius hundasleðasveitinni. Staðsetning Meistaravíkur er hernaðarlega mikilvæg vegna nálægðarinnar við GIUK- hliðið, hafsvæðið milli Grænlands, Íslands og Bretlandseyja, en það hefur lykilþýðingu fyrir varnir Atlantshafsbandalagsins í norðanverðu Norður-Atlantshafi. Við vitum ekki enn hversu umfangsmikil uppbyggingin í Meistaravík verður, hversu margir verða þar að staðaldri eða hvenær framkvæmdir hefjast. Við eigum hins vegar að fylgjast vel með þróuninni enda gætu þar skapast ný verkefni fyrir íslenskan flugrekstur og mögulega aðra þjónustuaðila og þá sérstaklega fyrir rekstraraðila á norðurhluta Íslands og Norlandair, sem býr nú þegar yfir hálfrar aldar reynslu af flugi á þessu svæði. Grænlandssamningurinn Að mínu mati er nýi Grænlandssamningurinn í grunninn uppfærsla á tvíhliða varnarsamningi Danmerkur og Bandaríkjanna frá 27. apríl 1951. Sá samningur var undirritaður aðeins átta dögum áður en Íslendingar og Bandaríkjamenn gerðu sinn tvíhliða varnarsamning 5. maí sama ár. Mikilvægasta breytingin er þó sú að Grænlendingar koma nú sjálfir með beinum og formlegum hætti að nýjum varnarsamningi um eigið land. Það er eðlileg, tímabær og afar jákvæð þróun enda ljóst að varnir Grænlands verða ekki skipulagðar til framtíðar án virkrar þátttöku grænlensku þjóðarinnar. Fyrir okkur Íslendinga undirstrikar samningurinn jafnframt að öryggi Grænlands, Íslands og Norður-Atlantshafsins er nátengt. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður Íslandsdeildar NATO-þingsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Njáll Trausti Friðbertsson Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Öryggis- og varnarmál Grænland Bandaríkin Danmörk Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun