„Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. september 2026 18:33 Siggi stormur býst við alvöru haustlægð á morgun. Siggi stormur segir að nú fari hver að verða síðastur til þess að binda niður trampolínið í garðinum en að hans sögn er von á fyrstu alvöru haustlægðinni á morgun. Gular veðurviðvaranir verða í gildi á morgun á Suðurlandi, Vestfjörðum, Austfjörðum, Miðhálendi og á Suðausturlandi.
Rætt var við Sigga í Reykjavík síðdegis um málið. Hann segir von á alvöru hvassviðri og mjög vætusömu veðri. „Þetta er svona að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin sem ætlar að láta til sín taka. Hún er að dýpka mjög mikið núna í nótt og tekur land um fimmleytið í fyrramálið. Þá verður orðið mjög hvasst í Vestmannaeyjum og syðst á landinu, undir Eyjafjöllum og þar í kring. Þar getur vindhraði við fjöll, í svona strengjum við fjöll, orðið um eða yfir 35, fjörutíu metrar á sekúndu og sömuleiðis orðið hvasst á Suðausturlandi einnig og með svipuðum vindhviðum.“ Í fyrramálið verði vont veður fyrst og fremst á Suðurlandi. Mjög hvasst verði í Vík í Mýrdal og gott að hafa það í huga. Síðan gangi skil, djúp og kröpp lægð yfir landið og kviður verða víða við fjöll. „En á láglendi þá erum við að tala um gula viðvörun, getum við sagt svona frá sexleytinu í fyrramálið fyrir Suðurland og síðan eftir hádegi verður farið að lægja víðast hvar en þó ekki á Vestfjörðum, þar verður einna hvassast seint þegar líður á morgundaginn og þegar líður fram yfir hádegið, fram yfir degi og á föstudag verður reyndar líka hvasst.“ Þannig það fer hver að verða síðastur að binda niður trampolínin? „Þetta er akkúrat þannig veður þar sem lausir hlutir geta farið af stað. Það má reikna með að það verði mikið vatnsveður í þessu, sérstaklega á sunnanverðu landinu, mjög mikið vatnsveður og síðan gengur yfir allt landið og verður mígandi rigning um mest allt land. En það eru hlýindi með þessari lægð. Það eru kannski kostirnir við hana að hún ber með sér hlýindi og í kjölfarið fer hún í norðanátt og þá gæti snjóað í fjöll á Vestfjörðum. Þannig að við erum að byrja að sjá svona núna að haustið er að minna á sig af nokkrum krafti.“ Ekki margar lægðir í röð Siggi segir höfuðborgarsvæðið koma einna best úr veðri morgundagsins. Þar verði þó norðaustanhvassviðri þegar hvassast verður. „Og það má reikna með að trampólín og annað geti farið af stað þar en það er þó þannig rétt að hafa í huga að tré eru ennþá víða laufguð. Þau taka á sig mikinn vind og mikið vindfang verður mjög mikið hjá trjánum en í staðinn skapa þau einhvert skjól. En höfuðborgarsvæðið er einna best varið fyrir vindinum en þar rignir lárétt eins og þú segir.“ Þetta er fyrsta haustlægðin, eru margar í kortunum, er biðröð? „Nei, við getum sagt að þessi sé nokkuð stök sem lítur svona illa út. Það sem kemur í kjölfarið, mér sýnist á öllu að þær verði allar miklu rólegri og raunar þannig að þær ganga ekki yfir landið. Þannig að þær eru svona fyrir sunnan land og við sleppum en Bretar gætu fengið einhverja sendingu frá okkur með Íslandslægðinni eins og þeir kalla hana.“
Veður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Sjá meira