Svekkjandi jafntefli hjá Glódísi Perlu og Cecilía Rán hélt hreinu í Íslendingaslag Andri Broddason skrifar 22. september 2026 18:48 Glódís Perla Viggósdóttir var í byrjunarliði Bayern München í kvöld. Pau Barrena/Getty Images Bayern München tók á móti Manchester City í Meistaradeild Evrópu kvenna og var Glódís Perla Viggósdóttir í byrjunarliði Bayern. Liðið gerði svekkjandi 2-2 jafntefli við Manchester City en á sama tíma var Íslendingaslagur þegar Inter vann BK Häcken 1-0.
Bayern München byrjaði leikinn betur og náði Giulia Gwinn að koma liðinu í forystu strax á elleftu mínútu. Hún slapp inn fyrir vörn Manchester City og kláraði færið með föstu skoti sem var óverjandi fyrir Ayaka Yamashita í markinu. Þrátt fyrir að vera með forystuna var leikurinn ennþá jafn og var Manchester City nálægt því að jafna metin stuttu eftir að hafa lent undir. Lauren Hemo gaf fyrirgjöf sem Glódís Perla náði að koma í veg fyrir. Boltinn fór hins vegar í átt að marki og endaði í slánni. Nánast í næstu sókn kemst Bayern í tveggja marka forystu eftir að Kerstin Casparij, varnarmaður Manchester City, mistókst að hreinsa fyrirgjöf Bayern og skoraði sjálfsmark. Bayern hélt áfram að pressa á gestina en þeir fengu líflínu þegar þeir minnkuðu muninn rétt áður en flautað var til hálfleiks með marki frá Beth Mead. Leikmenn Bayern München kvörtuðu yfir markinu þar sem blys var á vellinum nálægt uppspili Manchester City sem truflaði varnarleik heimaliðsins. Myndbandsdómgæsla fór yfir atvikið en markið stóð samt. Í byrjun seinni hálfleiks var Glódís Perla grátlega nálægt því að skalla boltann inn en hann endaði á því að fara rétt fram hjá. Á 60. mínútu fékk Manchester City vítaspyrnu eftir að Ena Mahmutovic, markmaður Bayern, braut glannalega af sér. Khadija Shaw fór á punktinn en Mahmutovic varði spyrnuna og bjargaði sínum eigin mistökum. Shaw var tekin af velli um leið og hún klúðraði vítaspyrnunni. Manchester City reyndi að sækja jöfnunarmarkið og náði það loksins að koma á 86. mínútu leiksins með marki frá Carlottu Wamser. Leikurinn endaði því með svekkjandi jafntefli fyrir Bayern München en Manchester City sýndi mikinn karakter að koma til baka. Inter hafði betur í Íslendingaslagnum Á sama tíma var Íslendingaslagur í Meistaradeild Evrópu þar sem Inter mætti BK Häcken. Cecilía Rán Rúnarsdóttir var í marki Inter og Thelma Karen Pálmadóttir var í byrjunarliði BK Häcken. Inter Milan náði forystunni strax á fimmtu mínútu með marki frá Haley Bugeja og átti Hacken í erfiðleikum með að jafna metin. Á 56. mínútu leiksins kom Karólína Lea Vilhjálmsdóttir inn á völlinn til að auka sóknarþunga Inter. Inter var nálægt því að tvöfalda forystu leiksins í lokin en Jennifer Falk í marki Hacken gerðist brotleg og fékk að launum rautt spjald. Leikurinn endaði með 1-0 sigri Inter og náði Cecilía Rán að halda hreinu í marki Inter.
Íslendingar erlendis Fótbolti Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Fótbolti Konurnar komu Íslandi upp um deild í Bakgarðshlaupum Sport Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Körfubolti Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Körfubolti Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Fótbolti Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Fleiri fréttir Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Dagskráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Daníel og Mikael gátu loksins fagnað saman Sjáðu íslensku eldflaugina frá DJ Sigga Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Fá marbletti og gefa marbletti: „Klárar í slagsmál“ „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Glódís og Þorsteinn sátu fyrir svörum Heitur HM draumur og mega ekki slaka á: „Getur allt farið til fjandans“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Mikil óvissa um þátttöku Alberts í mikilvægum landsleikjum Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Valgeir þurfti fjórar mínútur til að skora fyrsta mark sitt fyrir Viborg Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ „Flott frammistaða miðað við aðstæður“ „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum „Líf markmannsins að vera tilbúinn alltaf“ Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjá meira