Prentaði mynd af brotum sem áttu að verðskulda rauð spjöld Andri Broddason skrifar 21. september 2026 21:47 Jose Mourinho prentaði út myndir af umdeilanlegum atvikum á blaðamannafundi eftir leik Atletico Madrid og Real Madrid. BBC Sport Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, var ekki sáttur á blaðamannafundi þegar Atletico Madrid vann Madrídarslaginn í gær. Hann prentaði út mynd af tveimur atvikum í leiknum sem hann segir að hefðu átt að vera rautt spjald.
Leikurinn endaði með 2-1 sigri Atletico Madrid á Metrapolitano-vellinum í Madríd. Samkvæmt Mourinho var dómgæsla leiksins ekki góð og sagði hann að heimamenn hefðu átt að fá tvö rauð spjöld í fyrri hálfleik leiksins. „Þetta eru tvö augljós rauð spjöld. Miðað við erfiðleikana sem við lentum í á meðan við vorum tíu gegn ellefu leikmönnum þeirra getum við rétt ímyndað okkur hvernig ellefu leikmenn okkar gegn níu leikmönnum þeirra hefðu verið.“ Dean Hujsen, varnarmaður Real Madrid, fékk rautt spjald á 52. mínútu leiksins og átti liðið í erfiðleikum með að ná stjórn á leiknum eftir það. „Eina sem ég get gert er að knúsa leikmennina mína sem gáfu allt sem þeir áttu og spiluðu frábæran fyrri hálfleik, sýndu frábæran smekk og karakter, sem undirbjó okkur fullkomlega til að sækja sigur í seinni hálfleik.“ Diego Simone, þjálfari Atletico Madrid, var ekki sammála Mourinho en bar þó virðingu fyrir hans skoðunum. Hann brýndi þó fyrir að það er mikil ábyrgð sem fylgir því að vera þjálfari stórliðs á Spáni og dómararnir eiga skilið virðingu. #StopAcosoArbitralYA pic.twitter.com/dqH7ldaes5— Atlético de Madrid (@Atleti) September 21, 2026 Atletico Madrid hefur undanfarið vakið mikla athygli á samfélagsmiðlinum X og gerði félagið grín að athugasemdum Mourinho. Félagið birti mynd af Mourinho haldandi á útprentuðu myndunum af brotunum þar sem var skrifað undir „Hættið strax að áreita dómara.“ 🖨️ pic.twitter.com/mjppfgZNYU— Atlético de Madrid (@Atleti) September 21, 2026 Einnig var deilt myndbandi af útprentun myndarinnar til að líkja því við útprentun Mourinho. Mikill rígur hefur verið milli Atletico Madrid og Real Madrid í mörg ár og virðist hann ekkert vera að minnka með árunum.
Fótbolti Spænski boltinn Real Madrid CF Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fleiri fréttir Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Sjá meira