Handbolti

Jóhanna um lands­liðið: „Auð­vitað er það svekkjandi“

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var mögnuð í kvöld.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var mögnuð í kvöld. vísir/Ernir

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var enn og aftur markahæst í liði Hauka þegar liðið vann góðan sigur á Íslands- og bikarmeisturum Vals að Ásvöllum í kvöld.

Jóhanna Margrét hefur farið með himinskautum í upphafi leiktíðar í Olís-deildinni og skorað 35 mörk í þremur leikjum, þar af tólf í sigrinum í kvöld.

„Ógeðslega stolt af því hvernig við komum inn í leikinn og spilum í sextíu mínútur. Hörku vörn allan tíman og náðum að keyra vel á þær,“ sagði Jóhanna Margrét beint eftir leik.

Fyrri hálfleikurinn var mjög jafn, en Haukar náðu að mynda sér tveggja marka forystu á lokamínútu fyrri hálfleiks og náðu að búa til góða forystu í þeim síðari sem að lokum skilaði sigrinum. Jóhanna Margrét segir muninn á hálfleikjunum hafa verið færanýtingin.

„Mér finnst við bara ná að klára færin okkar aðeins betur og ná að standa aðeins betur sóknarlega. Vinnum síðan leikinn á varnarleik og stemningu.“

Jóhann Margrét er afar sátt á Ásvöllum.

„Mjög gaman, mér líður ógeðslega vel. Ógeðslega skemmtilegar stelpur, gott þjálfarateymi og mér líður bara mjög vel hérna á Ásvöllum.“

Eins og fyrr segir hefur Jóhanna Margrét farið með himinskautum í upphafi tímabils, en hún var ekki valin í æfingahóp íslenska landsliðið fyrir komandi æfingaviku sem hefst á morgun. Aðspurð hvort það sé svekkjandi, þá stóð ekki á svörum.

„Auðvitað er það svekkjandi. Auðvitað vill maður spila fyrir landsliðið, en maður heldur bara áfram að gera sitt og vonandi skilar það sér,“ sagði Jóhanna Margrét að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×