Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Lovísa Arnardóttir skrifar 16. september 2026 08:21 Friðrik segir verkfallsréttinum fylgja mikil ábyrgð. Hann sér fram á tjón í næstu viku verði af verkföllum flugvirkja. Aðsend og Vísir/Vilhelm Friðrik Árnason, eigandi Hótels Breiðdalsvíkur, segir erfitt að flugstéttir hafi slíkt vald að þær geti lokað landinu í verkfalli. Hann óttast gríðarlegt tap fyrir ferðaþjónustuna í heild verði af verkfalli flugvirkja í næstu viku. „
Fyrir lítið ferðaþjónustufyrirtæki er fátt óþægilegra en að vakna við fréttir af því að enn ein fámenn starfsstétt í fluginu sé búin að boða til verkfalls 23. september nk. Ekki vegna þess að við gerum lítið úr rétti fólks til að berjast fyrir sínum kjörum, heldur vegna þess að afleiðingarnar eru í engu hlutfalli við stærð deilunnar,“ sagði Friðrik í aðsendri grein á Vísi í gær. Hann sagði verkfallsréttinn mikilvægan en honum einnig fylgja ábyrgð. „Verkfallsrétturinn er mikilvægur, en þegar áhrif verkfallsins ná langt út fyrir hinn eiginlega vinnustað fylgir honum líka mikil ábyrgð og það er ekki sanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki skuli endalaust þurfa að bera tjónið af síendurteknum verkföllum flugstétta,“ sagði hann einnig í greininni en Friðrik var til viðtals um þessi mál í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Miðlunartillaga ekki tímabær Greint var frá fyrirhuguðu verkfalli flugvirkja á mánudag. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari telur ekki tímabært að leggja fram miðlunartillögu í kjaradeildu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair að svo stöddu, enda séu engir formlegir samningafundir fyrirsjáanlegir að svo komnu máli. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sagði í samtali við fréttastofu í gær að mikið bæri í milli deiluaðila, einkum varðandi launaliðinn. Flugvirkjar hafa sett fram sín sjónarmið og segja að deilan snúist um fleira en laun, þótt vissulega sé farið fram á hækkun þeirra. Hafi víðfeðm áhrif Friðrik segir svona verkfallsaðgerðir hafa víðfeðm áhrif utan þeirra aðila sem að kjaradeildunni standa, sérstaklega þegar um flugstéttir er að ræða. „Ferðamenn sem ekki koma til landsins koma ekki með peningana sína,“ segir hann og að þeir leigi þannig ekki bílaleigubíl, versli ekki í Bónus og kaupi enga afþreyingu. „Ég er bara að sýna hvað tjónið er mikið hjá öðrum fyrirtækjum sem koma þessari kjaradeilu ekkert við,“ segir hann og að álíka verkfallsaðgerðir hafi haft áhrif á reksturinn hans. Hann segir slíkar aðgerðir jafnvel hafa áhrif áður en þær hefjast því fólk fari að breyta plönum. Hann segir að verði af verkfalli flugvirkja á miðvikudaginn í næstu viku geti það þýtt að einn til tveir milljarðar tapist í gjaldeyristekjum á dag, sé landinu lokað. Það jafngildi 150 til 200 milljónum í tapaðan virðisaukaskatt fyrir ríkið og um hálfum milljarði í skatttekjur til sveitarfélaga. Hann segir 60 prósent ferðamanna koma til landsins með Icelandair og þó svo að önnur flugfélög komi hingað myndi slíkt verkfall hafa gífurlega alvarlegar afleiðingar. „Ísland er í grunninn útflutningsland,“ segir hann og að sjávarútvegur og stóriðja séu þannig að varan fari úr landinu en í ferðaþjónustu þurfi neytandinn að koma til landsins. Friðrik segist ekki taka afstöðu í kjarabaráttunni og hann telji verkfallsréttinn mikilvægan en það þurfi að vera einhver millivegur. Ísland sé útflutningsland og við þurfum á útflutningstekjunum að halda. „Þetta er grafalvarlegt mál að svona stéttir geti verið með þetta vald að loka landinu.“ Hann segir aldrei góðan tíma fyrir verkfall. Það sé enn nokkuð gott að gera í ferðaþjónustu og sé fram í október. Svo hafi slíkt verkfall líka áhrif á Íslendinga sem vilji ferðast til útlanda og því bitni þetta líka á ferðaþjónustufyrirtækjum sem selji utanlandsferðir líka. Friðrik hefur rekið hótelið frá 2009 en hefur rekið hótel í 36 ár. Hann segir ferðaþjónustuna hafa vaxið hratt eftir hrun en hún hafi tekið miklum breytingum frá þeim tíma. Það sé góð afþreying og vönduð í dag og gæði og metnaður hafi stóraukist. Hann segir rekstrarumhverfið alltaf að verða erfiðara fyrir lítil fyrirtæki á Íslandi. Það miðist allt við stórfyrirtæki og ríkinu takist illa að búa til umhverfi sem henti litlum fyrirtækjum og frumkvöðlum og er þá að meina umhverfi í kringum skatta og gjöld, þá helst launakostnað og gistináttaskatt. „Það sýnir sig í samþjöppun, fyrirtæki eru að verða stærri og meiri og það er bara því lítil fyrirtæki eiga erfitt uppdráttar.“ Hann segir flutning á rafmagni hafa hækkað gífurlega sömuleiðis. Hann segir nóttina kosta allt frá 20 þúsund í janúar upp í 40 til 50 þúsund í júlí. Meðalverðið sé um 35 til 45 þúsund nóttin fyrir tveggja manna herbergi og morgunmat. Hann segir ekki endilega mikið sitja eftir en starfið sé skemmtilegt og hann myndi ekki gera þetta nema það væri gaman.
Ferðaþjónusta Kjaramál Icelandair Fjarðabyggð Flug Vinnumarkaður Bítið Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Tengdar fréttir Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir útlitið ekki gott með tilliti til yfirvofandi verkfalls flugvirkja. Icelandair hafi lagt til að gerðardómsleið verði farin í deilunni en ekkert hafi verið ákveðið. Verkfall myndi hafa áhrif á þúsundir ferðamanna. 15. september 2026 08:09 Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) munu ekki skrifa undir samninga í dag líkt og stefnt var á með verkstýrðri verkáætlun ríkissáttasemjara. Nefndirnar eru þó enn í virku samtali. 14. september 2026 16:38 Telur yfir milljarð á dag í húfi Tekjutap ferðaþjónustunnar gæti numið rúmum milljarði króna á dag vegna verkfalls flugvirkja Icelandair, ef farþegar sem ættu að koma þann dag skila sér ekki til landsins. Þetta er mat Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. 14. september 2026 16:14 Mest lesið Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Sjá meira
Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir útlitið ekki gott með tilliti til yfirvofandi verkfalls flugvirkja. Icelandair hafi lagt til að gerðardómsleið verði farin í deilunni en ekkert hafi verið ákveðið. Verkfall myndi hafa áhrif á þúsundir ferðamanna. 15. september 2026 08:09
Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) munu ekki skrifa undir samninga í dag líkt og stefnt var á með verkstýrðri verkáætlun ríkissáttasemjara. Nefndirnar eru þó enn í virku samtali. 14. september 2026 16:38
Telur yfir milljarð á dag í húfi Tekjutap ferðaþjónustunnar gæti numið rúmum milljarði króna á dag vegna verkfalls flugvirkja Icelandair, ef farþegar sem ættu að koma þann dag skila sér ekki til landsins. Þetta er mat Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. 14. september 2026 16:14