„Þetta er fullkomið áfall“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 12. september 2026 14:35 Benedikta er í forsvari félagins sem vill vernda Seyðisfjörð frá sjókvíaeldi. Félag um vernd Seyðisfjarðar er hvergi nærri af baki dottið þrátt fyrir að Kaldvík AS hafi fengið rekstrar-og starfsleyfi í gær til fiskeldis í firðinum. Formaður segir undirskriftarsöfnun hafa sýnt fram á að meirihluti bæjarbúa vilji fara aðrar leiðir til atvinnuuppbyggingar í firðinum.
Greint var frá því í gær að Matvælastofnun og Umhverfis- og orkustofnun hefðu veitt félaginu leyfi til að ala tíu þúsund tonn af laxi í Seyðisfirði, á eldissvæðum við Sörlastaðavík, Selstaðavík og Skálanesbót. Vidar Aspehaug forstjóri Kaldvíkur segir um mikilvægan áfanga að ræða. Fiskeldið hefur reynst umdeilt en þrettán þúsund manns hafa ritað nafn sitt undir undirskriftarlista félagsins Vá um verndun fjarðar þar sem fiskeldinu er mótmælt. „Við erum bara í algjöru áfalli, þetta er fullkomið áfall. En þetta er ekki búið. Þau komust skrefinu lengra í gær á þessum myrka degi, ellefta september en við höfum auðvitað fundið fyrir því að þetta gæti farið að gerast,“ segir Benedikta Guðrún Svavarsdóttir formaður félagsins í samtali við Vísi. Hún segir ljóst að meirihluti íbúa sé á móti áformum Kaldvíkur. „Þetta snýst núna ekki bara um Seyðisfjörð, þetta snýst um það að það er ekki verið að hlusta á þjóðina. Allir ríkisstjórnarflokkar sögðust vilja vernda Seyðisfjörð í aðdraganda kosninga enda sýndi skoðanakönnun sem við létum gera 2024 það afdráttarlaust að þjóðin vill vernda Seyðisfjörð og eins sjáum við endurtekið mikinn meirihluta þjóðarinnar vera í andstöðu við þennan mengandi iðnað,“ segir Benedikta. „Það eina sem þarf að gera til að vernda Seyðisfjörð er að fara að lögum og reglum í þessu landi þar sem sjókvíaeldi kemst ekki fyrir í þröngum firðinum. Stofnanir ríkisisins eru að beygja sig og bugta til að þjónka þessu fyrirtæki, sem hefur undanfarna mánuði verið í dauðateygjunum. Við höfum bent á þetta allt, möguleikana til að stöðva þetta og allt fúskið sem er að renna í gegnum stjórnsýsluna, sem svarta skýrslan frá ríkisendurskoðun 2023 sýndi svo bersýnilega. En það er ekki pólitískur vilji til þess ennþá. Ég ætla að trúa því að það geti breyst næstu vikurnar. Við höfum ekki og munum ekki gefa upp þá von. Þessi leyfi eru kæranleg og það mun ekki standa á okkur.“ Benedikta bendir á að á sama tíma sé verið að landa hundrað tonnum af dauðum laxi úr eldiskvíum í Reyðarfirði út af marglyttu þá sé sami marglyttuvandi til staðar í Seyðisfirði. Þá segir hún að félagið hafi ítrekað bent á tæknilegar hindranir þess að koma sjókvíaeldi fyrir í þröngum firði, þannig hafi sem dæmi ekki verið gert ofanflóðamat vegna slysasleppinga í Seyðisfirði af opinberum aðila en Benedikta segir norskt fyrirtæki að nafni Scale AQ sem framleiði sjókvíaeldisbúnað hafa gert matið eftir að því var útvistað til Kaldvíkur. „Hvað kemur? Ódagsett, óundirritað tveggja blaðsíðna áhættumat frá Scale AQ, hagsmunaaðila í sjókvíaeldisiðnaðinum. Dúkkar þarna upp og ætti að vera öllum ljóst sem það lesa það - að það er ekki fullnægjandi plagg, En það var tekið sem gilt áhættumat vegna slysasleppinga vegna ofanflóða og tók MAST sér hálfan dag í að skoða og stimpla skjalið sem Kaldvík keypti. Þetta snýst ekki bara um Seyðisfjörð, þetta snýst um að við sem þjóð segjum nei takk, nei takk við þessum vinnubrögðum.“ Hvert er þá næsta skref hjá ykkur? „Þetta verður bara kært. Við erum að rýna núna rekstrarleyfið og við erum með rosalega pappírsslóð í þessu máli eftir að hafa vaktað allar stofnanir, hvert einasta ferli og hvert einasta skref í þessu máli. Þetta stenst ekki skoðun. Það er mjög mikilvægt að starfsemin hefjist aldrei í Seyðisfirði, vegna þess að við sjáum það í öllum tilfellum, að ef þetta fer af stað þarna þá verður mjög erfitt að stöðva þetta. Seyðisfjörður býr yfir einstökum mannauð og hefur alla burði til að vaxa á eigin forsendum án þess að fórna náttúrunni og lífríki hennar, sem við erum fyrst og fremst að setja alla okkar orku í að vernda. Það er með öllu óskiljanlegt að opinberar ríkisstofnanir hendi þessum björgunarhring út til fyrirtækisins á þessum tímapunkti. Tíminn verður að leiða í ljós hvað liggur þar að baki. Á meðan biðjum við þjóðina að styðja við bakið á okkur.“
Múlaþing Fiskeldi Sjókvíaeldi Tengdar fréttir Málið orðið persónulegt og erfitt fyrir íbúa Seyðisfjarðar Nú þegar þetta er skrifað hafa tæp tólf þúsund skrifað undir bænaskjal þar sem biðlað er til stjórnvalda að stöðva leyfisveitingu til sjókvíaeldis í Seyðisfirði. 20. janúar 2025 11:01 Segja að ögurstund sé runnin upp í Seyðisfirði Félag um vernd Seyðisfjarðar segja að ögurstund sé runnin upp og hefur hrundið af stað undirskriftasöfnun þar sem biðlað er til nýrrar ríkisstjórnar um að veita ekki leyfi til sjókvíaeldis í Seyðisfirði. Þegar hafa 3387 skrifað ritað nafn sitt á listann. 15. janúar 2025 12:44 Kæru VÁ á hendur MAST vísað frá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur vísað frá kæru samtakanna VÁ! – félags um vernd fjarðar og eigenda jarðarinnar Dvergasteins á hendur Matvælastofnun vegna synjunar um frest til að skila inn athugasemdum við auglýsta tillögu að rekstrarleyfi til sjókvíaeldis í Seyðisfirði. 20. janúar 2025 22:30 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Sjá meira
Málið orðið persónulegt og erfitt fyrir íbúa Seyðisfjarðar Nú þegar þetta er skrifað hafa tæp tólf þúsund skrifað undir bænaskjal þar sem biðlað er til stjórnvalda að stöðva leyfisveitingu til sjókvíaeldis í Seyðisfirði. 20. janúar 2025 11:01
Segja að ögurstund sé runnin upp í Seyðisfirði Félag um vernd Seyðisfjarðar segja að ögurstund sé runnin upp og hefur hrundið af stað undirskriftasöfnun þar sem biðlað er til nýrrar ríkisstjórnar um að veita ekki leyfi til sjókvíaeldis í Seyðisfirði. Þegar hafa 3387 skrifað ritað nafn sitt á listann. 15. janúar 2025 12:44
Kæru VÁ á hendur MAST vísað frá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur vísað frá kæru samtakanna VÁ! – félags um vernd fjarðar og eigenda jarðarinnar Dvergasteins á hendur Matvælastofnun vegna synjunar um frest til að skila inn athugasemdum við auglýsta tillögu að rekstrarleyfi til sjókvíaeldis í Seyðisfirði. 20. janúar 2025 22:30