Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Kjartan Kjartansson skrifar 10. september 2026 13:34 Flugvél Amazon rann hundruð metra fram yfir flugbrautarendann í Miami og á tvær bifreiðar. FImm manns létust og jafnmargir eru slasaðir. AP/Rebecca Blackwell Annar flugmanna fraktflugvélar Amazon sem rann út af flugbraut í Miami reyndi að vara hinn við að vélin færi of hratt í tvær mínútur fyrir lendinguna og eftir að hún snerti flugbrautina. Sérfræðingar segja að flugmennirnir hefðu auðveldlega getað komið í veg fyrir slysið.
Fimm manns sem voru í sendiferðabíl ræstingafyrirtækis létust þegar flutningavél Amazon rann um 400 metra út fyrir enda flugbrautar alþjóðaflugvallarins í Miami í Bandaríkjunum og á bílinn um helgina. Fimm aðrir sem voru í sendiferðabílnum og jepplingi eru slasaðir. Upptaka í flugrita flugvélarinnar sýnir að annar flugmannanna reyndi í tvær mínútur að vara við því að hún nálgaðist flugbrautina á of miklum hraða, bæði í aðfluginni og eftir að vélin snerti niður. Hinn flugstjórinn hafi hins vegar ekki ekki brugðist sérstaklega við. Einnig heyrðist í sjálvirku viðvörunarkerfi flugvélarinnar á upptökunni. Sérfræðingur sem AP-fréttastofan ræddi við segir að flugmennirnir hefðu getað gert ýmislegt til þess að hægja á vélinni þegar annar þeirra byrjaði fyrst að vara við hættunni. Þeir hefðu einnig getað hætt við lendinguna, farið hring og reynt aftur. Sterkur vindur var þegar slysið átti sér stað og benda göng úr flugritanum til að flugvélin hafi verið óstöðug í lendingunni. Vísbendingar eru um að flugmennirnir hafi gert skammlífa tilraun til þess að hefja sig á loft aftur en þeir hafi hætt við það. Flugvélin var komin langt niður flugbrautina þegar hjól hennar snertu fyrst jörðu. Opinber gögn benda til þess að hún hafi verið komin nærri því hálfa leið niður eftir brautinni.
Flug Samgönguslys Bandaríkin Amazon Tengdar fréttir Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Fimm manns sem létust þegar fraktflugvél Amazon rann út af flugbraut í Miami í Bandaríkjunum á sunnudag voru allir í bílum sem urðu fyrir flugvélinni. Rannsókn á slysinu beinist meðal annars að hvers vegna flugmenn vélarinnar hættu ekki við lendinguna. 8. september 2026 08:34 Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Minnst fimm eru látnir eftir flugslys í Flórídaríki í Bandaríkjunum þar sem fraktflugvél á vegum netverslunarinnar Amazon fór út af flugbraut og lenti á bifreiðum utan hennar. Vélin var á leið frá San Juan í Púertó Ríkó til Miami-borgar. 6. september 2026 21:40 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira
Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Fimm manns sem létust þegar fraktflugvél Amazon rann út af flugbraut í Miami í Bandaríkjunum á sunnudag voru allir í bílum sem urðu fyrir flugvélinni. Rannsókn á slysinu beinist meðal annars að hvers vegna flugmenn vélarinnar hættu ekki við lendinguna. 8. september 2026 08:34
Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Minnst fimm eru látnir eftir flugslys í Flórídaríki í Bandaríkjunum þar sem fraktflugvél á vegum netverslunarinnar Amazon fór út af flugbraut og lenti á bifreiðum utan hennar. Vélin var á leið frá San Juan í Púertó Ríkó til Miami-borgar. 6. september 2026 21:40