Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Andri Broddason skrifar 10. september 2026 17:16 Ziyu Zhang er stærsta körfuboltakona allra tíma og er stærri en meðalhæð NBA-leikmanna. Marcin Golba/Getty Images Síðasta föstudag hófst heimsmeistaramót kvenna í körfubolta og hefur einn leikmaður stolið senunni. Kínverska körfuboltakonan Ziyu Zhang er hæsta körfuboltakona allra tíma og hærri en meðalleikmaður í NBA-deildinni.
Ziyu Zhang er aðeins 19 ára gömul en hæð hennar á körfuboltavellinum er gríðarleg. Hún er tveir metrar og 23 sentímetrar og hefur staðið sig vel undir körfunni hjá kínverska liðinu. Hún skoraði mikilvæg þrettán stig þegar Kína vann nauman þriggja stiga sigur á Puerto Rico í gærkvöldi. Hún tók líka átta fráköst og skoraði sjö stig gegn Frökkum í 8-liða úrslitum í dag en það dugði skammt í 90-61 tapi. Það er þó ekki alltaf þægilegt að vera svona hávaxin en kínverska liðið þurfti að biðja hótelið sem liðið gistir á um stærra rúm. Hún passaði ekki í rúmið sem var í herberginu hennar og komu hótelstarfsmennirnir með stærra rúm fyrir hana. Erfitt er að taka fráköst þegar Ziyu Zhang er undir körfunni.Mami Yasui/Getty Images Ziyu Zhang kemur úr mikilli körfuboltafjölskyldu þar sem báðir foreldrar hennar spila körfubolta. Hún segir þó að hæðin hennar láti hana líta út fyrir að vera þroskaðri en hún er en inn við beinið er hún ung 19 ára stelpa. Meðalhæð leikmanna í NBA-deildinni er tveir metrar og er hún því meira en 20 sentímetrum hærri en meðal NBA-leikmaðurinn. Hún er þó mikið hærri en allar stelpurnar á heimsmeistaramótinu og sást munurinn greinilega þegar hún mætti minnsta leikmanni mótsins. Það er Katerina Zeithammernova sem leikur með tékkneska landsliðinu en hún er 162 sentímetrar á hæð. Það voru því 61 sentímetri á milli þeirra og var því erfitt fyrir tékkneska leikmanninn að reyna að dekka Zhang. Kínverska körfuboltagoðsögnin Yao Ming var tveir 229 sentímetrar og því aðeins sex sentímetrar milli hans og Zhang. Stærsti körfuboltamaður allra tíma er Sun Mingming sem er einnig frá Kína. Hann komst þó ekki í NBA-deildina og spilaði aðeins í neðri deildum Bandaríkjanna.
Mest lesið Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Como - Manchester United | Fámennt United-lið mætt til Ítalíu Fótbolti Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Sjá meira