EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar 4. september 2026 10:16 Í fyrri grein fjallaði ég um nauðsyn þess að treysta EES-samninginn í sessi og tryggja með réttri innleiðingu bókunar 35 við samninginn að fólk og fyrirtæki geti byggt rétt sinn á honum. En fleira þarf til að EES-samstarfið virki sem skyldi fyrir íslenzkt atvinnulíf. Þrjú verkefni standa þar upp úr. Náum niður innleiðingarhallanum Í fyrsta lagi þarf að vinna á „innleiðingarhallanum“, halanum af tilskipunum og reglugerðum sem búið er að taka upp í EES-samninginn en hafa ekki verið innleiddar í íslenzk lög. Samkvæmt nýjustu stöðutöflu Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) var innleiðingarhalli Íslands 1,3% vegna tilskipana og 0,7% vegna reglugerða. Ellefu tilskipanir og 36 reglugerðir höfðu þá ekki verið innleiddar á réttum tíma. Árangurinn hefur batnað á undanförnum misserum, en Ísland er enn yfir viðmiði ESA um 0,5%. Einsleitni regluverksins er ein af grunnforsendum EES-samstarfsins og þess markaðsaðgangs sem samningurinn tryggir. Þess vegna verða tafir á innleiðingu að vera sem minnstar. Innleiðum einföldunarbálkana hratt Í öðru lagi þarf Ísland að búa sig undir að taka hratt upp þær einfaldanir á regluverki atvinnulífsins sem nú eru í undirbúningi og afgreiðslu hjá Evrópusambandinu, meðal annars í svokölluðum Omnibus-bálkum. Stefnt er að því að draga úr stjórnsýslu- og skýrslugjafarkostnaði fyrirtækja um 25% og um 35% hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Margir þessara bálka munu væntanlega verða teknir upp í EES-samninginn. Dragist framkvæmd þeirra á Íslandi aftur úr geta íslenzk fyrirtæki setið uppi með þyngra regluverk en keppinautar þeirra á innri markaðnum. Hættum að gullhúða Evrópureglurnar Í þriðja lagi þarf að hrinda í framkvæmd margítrekaðri stefnu stjórnvalda um afnám gullhúðunar EES-reglna. Gullhúðun er það kallað þegar íslenzk stjórnvöld ganga lengra en EES-reglurnar krefjast við innleiðingu þeirra, til dæmis með viðbótarkvöðum, lægri stærðarmörkum eða því að nýta ekki heimilar undanþágur. Gott dæmi er mál sem var til umfjöllunar í sumar, gullhúðun peningaþvættislöggjafar EES gagnvart bíla-, véla- og tækjasölum. Á þessi fyrirtæki eru lagðar kvaðir sem útheimta ærna skriffinnsku, umstang og kostnað, bæði fyrir fyrirtækin og viðskiptavini þeirra. Sambærileg fyrirtæki í öðrum EES-ríkjum bera ekki sömu skyldur. Þrátt fyrir það er djúpt á skýrum svörum frá dómsmálaráðuneytinu við spurningum um hvort undið verði ofan af gullhúðuninni. Gullhúðunin varðar oft stærðarmörk. Í reglum ESB er miðað við að fyrirtæki yfir ákveðinni stærð, segjum með 250 starfsmenn, beri tilteknar skyldur varðandi t.d. skýrslugjöf eða eftirlit. Þegar íslenzkir embættismenn fá reglurnar í hendur og eiga að semja frumvörp um innleiðinguna finnst þeim oft alveg afleitt að slík stærðarmörg fangi ekki nema kannski 80 íslenzk fyrirtæki – og fara þá neðar með mörkin, til dæmis í 50 starfsmenn. Þar með eru skyldur, sem ætlaðar eru stórfyrirtækjum í Evrópu, lagðar á meðalstór fyrirtæki á Íslandi. Afleiðingarnar eru tvenns konar. Annars vegar þarf hið opinbera meiri mannskap og peninga til að framkvæma eftirlitið af því að fleiri fyrirtæki eru undir. Hins vegar eru fyrirtækin með 50-249 starfsmenn sett undir meira íþyngjandi regluverk en jafnstór fyrirtæki í öðrum EES-ríkjum. Það skaðar samkeppnishæfni Íslands. Gullhúðun sóar peningum og skerðir samkeppnishæfni Ef við viljum ná tveimur mikilvægum markmiðum stjórnvalda, að halda útgjöldum hins opinbera í skefjum og bæta alþjóðlega samkeppnishæfni atvinnulífsins, eigum við að forðast gullhúðun eins og heitan eldinn við nýja lagasetningu. Það gengur svona og svona. Dómsmálaráðherrann lagði til dæmis fram á síðasta löggjafarþingi frumvarp sem vissulega afnam hina illræmdu jafnlaunavottun en setti í hennar stað kerfi sem svipar til þess sem launagagnsæistilskipun ESB kveður á um. Tilskipunin verður tekin upp í EES-samninginn. Samkvæmt henni nær hin reglubundna launaskýrslugjöf að meginstefnu til fyrirtækja með að minnsta kosti 100 starfsmenn. Í frumvarpi ráðherrans var þröskuldurinn hins vegar miðaður við 50 starfsmenn. Þegar ráðherra var spurð hvers vegna, var svarið að fyrirtæki með fleiri en 100 starfsmenn hefðu þótt of fá á Íslandi. Það er einmitt þessi hugsunarháttur sem vinnur gegn markmiðum um samkeppnishæfni og hagkvæman ríkisrekstur. Samráðsvettvangur til að fylgja stefnunni eftir Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið lögðu fyrr á árinu fyrir stjórnvöld ýtarlegar tillögur um að setja innleiðingu einfaldaðs Evrópuregluverks í forgang og að koma í veg fyrir gullhúðun EES-reglna. Þær hafa nú í grundvallaratriðum verið teknar upp í aðgerðaáætlun atvinnustefnu stjórnvalda, sem er fagnaðarefni. Vonir standa til þess að ráðgjafarnefnd um opinberar eftirlitsreglur, sem ekki hefur verið starfandi undanfarin ár, verði endurreist sem samráðsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda til að fylgja eftir markmiðunum um einföldun regluverks, ekki sízt þegar kemur að framkvæmd EES-samningsins. Nú, þegar fyrir liggur að aðild að Evrópusambandinu er ekki á dagskrá stjórnmálanna, þurfa stjórnvöld og atvinnulíf að taka höndum saman um að tryggja sem bezta virkni EES-samningsins. Hann er og verður lykill okkar að einum stærsta og verðmætasta markaði heims, innri markaði Evrópu. Við verðum að tryggja að framkvæmd hans skapi ekki flækjur sem setja íslenzk fyrirtæki í verri stöðu en keppinauta þeirra í öðrum EES-ríkjum. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðsins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Stephensen EES-samningurinn Evrópusambandið Alþingi Mest lesið Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Sjá meira
Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun
Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir Skoðun
Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun
Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir Skoðun
Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun